Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 39
DV Síðast en ekki síst MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 39 Sigurjón Kjartansson skilur ekkert i því hvern- ig stöðumælaverðir fara að því að vera ávallt skrefi á undan honum. Siðast en ei<ki sist Ef miðbærinn yrði eina eftir- standandi hverfið á höfðuborgar- svæðinu eftir heimsendi og þú yrðir sá eini/sú eina sem lifði af, hvað væri það fyrsta sem þú tækir eftir? Jú, þú sæir engan stöðumælavörð á ferli. Síðan mundir þú taka eftir því að fuglamir væm hættir að syngja. Stöðumælaverðir em óvelkomnir sendiherrar Stóra bróður. Fæst okk- ar fagna þegar við sjáum þá, en samt held ég að sumum okkar líki betur við þá heldur en bévítans svartbak- inn, þ.e.a.s. lögguna. Tengsl mín við stöðumæla hafa lengi verið lituð af trassaskap og fjárútlátum af minni hálfu. Alltof oft hef ég treyst á að stöðumælavörður sé nýfarinn og sé ekki væntanlegur fyrr en eftir klukkutíma. Og alltof oft hafa þeir betur í kapphlaupinu. Alltof oft sjá þeir við mér. Ég hef ekki ennþá áttað mig á kerfinu sem þeir vinna eftir. Til þess að komast framhjá stöðumælavörð- unum þyrfti ég að helga mig njósn- um í nokkra daga. Ég mundi þurfa að setja mig inn í hugarheim stöðu- mælavarðarins eins og tölvuhakkar- ar brjóta sig í gegnum flókna eld- veggi. Ég mundi þurfa að verða eitt með stöðumælinum. Það er í alvöru stórundarlegt hvernig þeir sjá alltaf við mér, jafn fáliðaðir og þeir eru. Þeir eru víst ekki nema um átta talsins. Ailtaf fæ ég samt sekt, jafnvel þótt ég leggi ekki bílnum nema í tíu mínútur. Þetta er orðið svo slæmt að ég er í fúlustu alvöru farinn að hugsa um að borga í stöðumælinn. Toppiði það. Stoðumælavörðurinn Dularfulla týpan, sem talarígátum. Enginn er óhultur Hvernig er kerfíð? Búa stöðumæla- verðir I huliðs- heimum? Stoðumælasektin Þeir leynast I skúma- skotum og koma aft- an að manni. i1-1’ „á! ' m ■ mm agg1 ■ ■ Það má búast við nokkurri golu suðaustantil á landinu. Jafnvel strekkings- vindi. Bláartölureru komnar á kortið. Frost á hálendinu. Annars staðar er kalt. (höfuð- borginni má búast við svölu veðri þegar kvöldar. Fyrirt.4 austan geta jafnvel él fallið og á Vest- 4 é é ,0, fjörðum bætir í vind. Veturinn minnir á sig. £3 6 em Ok ’ 0 o ♦ * - r seb o /»* * V O * * Kaupmannahöfn 18 París 22 Alicante 26 Ósló 13 Berlín 19 Milanó 23 Stokkhólmur 20 Frankfurt 19 New York 29 Helsinki 16 Madrid 26 San Francisco 23 London 22 Barcelona 23 Orlando/Flórída 32 Sandkorn Eiríkur Jónsson • Það var kátt á hjalla í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð um helg- ina. Þangað mætti kærustuparið Jón Ólafsson tónlistar- séní og Hildur Vala Idol-stjarna ásamt tveimur dætrum Jóns. Léku þau keilu vel og lengi við mikla kátínu eins og vera ber. Var til þess tekið hversu vel Idol-stjarnan Hildur Vala stóð sig í stjúp- móðurhlutverkinu enda ekki ama- legt fyrir ungar stúlkur að fá stjúpu eins og hana úr því að þær urðu að fá stjúpu á annað borð... • Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var í Kast- ljósinu í fyrrakvöld að ræða fæðing- arorlof karla. Fylgdust konur með af miklum móð enda málið þeim flestum skylt. Er h'ða tók á þáttinn fór þó málflutningur Ara fyrir ofan garð og neðan því þeim varð starsýnt á hendur framkvæmdastjórans. Eða eins og ein orðaði það í sófanum heima hjá sér: „Óskaplega er maðurinn með fallegar hendur." Þarna sló Ari Ed- wald í gegn á óvæntan hátt... • JóhannAxelsson, prófessor og einn helsti sérfræðingur heims í áhrifum kulda á mannslíkamann, er nú að ná sér eftir áverka er hann hlaut er lögreglan barði á honum fyrir skemmstu. Mála- vextir munu vera þeir að prófessorinn slóst í lið með and- stæðingum Kára- hnjúkavirkjunar sem vildu fá félaga sína lausa úr haldi lögreglu. Fylgi Jóhann þeim á lögreglustöðina þar sem hann lét yfirvaldið heyra það óþvegið. Sáu lögregluþjónarnir sitt óvænna og neyddust til að leggja hendur á prófessorinn með fyrrgreindum af- leiðingum. Prófessorinn mun þó vera á batavegi og hvílist á heimili sínu eftir ósköpin... • Til stendur að endurbyggja gamla gufubaðið á Laugarvatni og gera það þá með stæl. Stefnt er að því að byggja heilsum- iðstöð af bestu gerð með gamla gufu- baðið sem mið- punkt. Fyrir þessu standa Hollvina- samtök gufubaðsins í samvinnu við Bláa lónið og fleiri. Aðalmaðurinn og rekstrarstjóri gufu- baðsins í dag er Þor- steinn Kragh, fyrr- verandi umboðs- maður Bubba Morthens; maður- inn sem flutti Placido Domingo til landsins fyrir skemmstu. Áætlað er að framkvæmdirnar kosti 300 millj- ónir... • Óskar Jónasson leikstjóri sem slegið hefur í gegn með Stelpunum á Stöð 2 talar helst ekki í GSM-síma ótilneyddur. Ástæð- an er sú að Óskar fær höfuðverk af símanum. Því notar kvikmyndaleikstjórinn ekki farsíma nema til að senda SMS og svo er hann með talhólf...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.