Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 19
DV Sport MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 19 Heinze bjartsýnn Argentínski vamarmaðurinn Gabriel Heinze, sem meiddist iila á hné á dögunnm, er staðráðinn í þ\n að snúa aftur í lið Manchester United áður en þessu tímabili lýkur. „Það skiptir mig miklu máli að snúa aftur sem allra fyrst. Það er draumur minn að standa mig vel með Argentínu í heimsmeist- arakeppninni í Þýskaiandi á næsta ári. Ef ég á að gera það verð ég að leggja hart að mér í endur- hæfingunni og það er ég tilbú- 'CÁ.. innaðgera." Heinze sleit krossbönd í hné í leik gegn Villarr- eal í Meistaradeild ; Evrópu í síðustu viku. Kieran Ric- hardson tók stöðu ' hans sem vinstri bakvörður í síðasta q leik gegn Liverpool . og stóð sig vel. Hann hefur ekki leikið í > stöðuvinstri P bakvarðar |* . áður, en Alex Fergu- / ' son virðist sjá mikla möguleika í því að hafa Richardson í stöðu bakvarðar, þar sem hann gefur mikið af sér í sóknarleiknum. Ric- hardson hefur leikið þijá lands- leiki fyrir England og er talið lík- legt að hann verði viðloðandi enska landsliðshópinn í næstu leikjum. Moyes með áhyggjur Það hefur ekki gengið nógu vel hjá Everton í upphafi leiktíðarinn- ar á Englandi og hefur David Moyes, knattspymustjóri liðsins, töluverðar áhyggjur af gangi mála. Sérstaklega hefur hann áhyggjur af því að hugarfar leik- manna sé ekki nægilega gott. „Það er augljóst mál að það vant- ar sjálfstraust í liðið, en það er ekki vegna þess að ég hafi ekki trú á leikmönnunum. Ég sá á síðustu leiktíð úr hverju leikmenn Ev- erton em gerðir en einhverra hiuta vegna hefur ekki gengið eins vel hjá okkur núna. Það er mitt verkefni að finna lausn á þeim vanda sem upp er kominn og vonandi fömm við að vinna leiki á næstunni." Everton tapaði fyrrakvöld 2-0 fyrir Arsenal á Highbury, en hafði tapað þar á undan fyrir Dinamo Bukarest firá Rúmeníu, 5-1. Cole vill lækka miðaverð Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole er ekki ánægður með þá stefnu Chelsea að hækka miða- verð á Stamford Bridge, en fyrir skemmstu var ákveðið að hækka miðverð mikið á leiki liðsins. Fatl- aðir gestir þurfa nú að borga helmingi meira fyrir miðann en í fyrra en mörg liðin í úrvalsdeild- inni bjóða fötluðum frítt á leiki, „Mér finnst undarlegt að hækka verðið á miðunum svona mikið. Flestir aðdáenda Chelsea hafa ekki efni á því að borga þetta hátt verð fyrir miða á deildarieiki. Ég held að það sé mikilvægara að hafa völlinn fullan af fólki frekar en að fá örlítið fleiri krónur í kass- ann. Yngstu aðdáendur Chelsea geta ekki borgað helmingi meira heldur en aðdáendur annarra liða. Vonandi verður verðið á miðanum lækkað því annars missir Chelsea dýrmæta aðdá- endur í framtíðinni." Aðsókn í ensku úrvalsdeildinni hefur dregist saman um 4% það sem af er leiktíð- inni og aldrei hafa færri mörk verið skoruð. Chelsea. sem hefur unnið alla leiki sína og ekki fengið á sig mark, er sakað um að spila leiðinlegan fótbolta. Ilerðum uð skemmtu iki Hvað er að gerast í ensku úr- valsdeildinni, þeirri stærstu, ríkustu og skemmtilegustu í heimi? Áhorfendum fækkar, aldrei hafa færri mörk verið skoruð í upphafi leiktíðar og topplið Chelsea, sem hefur unnið alla leiki sína og ekki fengið á sig mark, er sakað um að spila leiðinlegan fótbolta. Forráðamenn ensku liðanna eru áhyggjufullir og leita skýr- inga og Arsene Wenger, stjóri Arsenal, varar sterklega við þeirri þróun að lið leggi ofurá- herslu á varnarleik, það þýði fall fótboltans. Áhorfendum í ensku úrvalsdeild- inni hefur fækkað um 4 prósent að meðaltali eftir 55 leiki eða 1.300 manns á hvern leik. Virkar kannski ekki svo mikið en verði þetta þróun- in fækkar áhorfendum í vetur um hálfa milljón! Sérstaka athygli vekur að í sjón- varpsleikjunum hefur áhorfendum á leikjum fækkað um 10.675 manns hjá níu af þeim 17 liðum sem voru í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Sem dæmi mættu 28.075 manns á heimaleik Middlesbrough gegn Arsenal, sem sýndur var beint í sjón- varpi, sem er fækkun upp á 5.799 manns frá leik liðanna í fyrravetur sem einnig var sýndur beint. Alls voru 62.000 sæti auð í leikjunum 9 í úrvalsdeildinni um helgina. Mikil fækkun Áhorfendaaðsókn í ensku úrvals- deildinni dróst saman um 3,19 pró- sent á síðustu leiktíð. aðgöngumiðaverð Ferskir og fjörugir Þessir kátu stuðningsmenn Chelsea láta hátt miðaverö á Stamford Bridge ekki hafa áhrifá sig og mæta vel rakir á flesta leiki og skemmta sér konunglega eins og sjá má. Getty images Alls mættu 12,9 milljónir á leikina borið saman við 13,3 milljónir leik- tíðina 2003-04. Malcolm Clarke, formaður Sam- taka stuðningsmannaklúbba á Englandi. segir í blaðinu The índependent að aukið framboð á fótbolta í sjónvarpi hafi mikið að segja. „Við höfum líka bent á undan- farin ár að ástæðan fyrir fækkun áhorfenda er sambland af of háu ir að hún var sett á laggirnar, eða 110 mörk í 55 leikjum eða 2 mörk að meðaltali í leik. Leikstfll Chelsea, 4-5-1, þar sem öryggið er sett á oddinn, hefur líka verið gagnrýndur og sagt að liðið spili leiðinlegan fótbolta. Frank Lampard, leikmaður Chelsea, hló að þessum aðdróttunum í enskum íjöl- miðlum í gær en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að félögunum Chelsea og Anderlecht í Meistara- deildinni og aldrei hafa færri horft á Evrópuleik með Chelsea á ITV-sjón- varpsstöðinni í Meistaradeildinni. Þá var mjög léleg aðsókn á leiki ensku liðanna í Evrópukeppni fé- lagsliða þrátt fyrir lækkað miðaverð. Fækkun víða Aðsókn hefur ekki bara dregist saman á Englandi heldur einnig á Fullorðinn + bam Chelsea Birmingham Newcastle Portsmouth Everton Real Madrid Bolton Valencia AS Roma Juventus Bayern Munchen Dortmund Bayer Leverkusen Schalke 9.990 kr. 6.655 6.160 5.720 5.060 3.146 2.860 2.728 2.345 2.227 1.364 1.320 1.287 1.023 „Chelsea hækkaði miðaverð fyrir þessa leiktíð og til að mynda þurftu fatlaðir aðdáendur að greiða helmingi meira fyrir aðgöngumiða en áður." miðaverði, einokun fárra liða um tit- ilinn og sífelldar breytingar á leik- tíma." Margir leikir í beinni í Englandi verða 138 leikir í beinni útsendingu hjá Skysports í vetur borið saman við 106 leiki fyrir 2 árum. Aldrei hafa færri mörk verið skor- uð í ensku úrvaldeildinni í vetur eft- beri skylda til þess að skemmta áhorfendum. „Þegar einhver kaupir aðgöngu- miða á 50, 60 eða 70 pund, þá er hann ekki að því til þess að láta sér leiðast. Hann vill njóta þess að fara á fótboltaleik. Mér finnst að við þurf- um allir að axla þá ábyrgð," sagði Wenger. Athygli vakti í síðustu viku að að- eins 30 þúsund manns mættu á leik Ítalíu og fleiri löndum. Hins vegar er mikill uppgangur í Þýskalandi. Chelsea hækkaði miðaverð fyrir þessa leiktíð og til að mynda þurftu fatlaðir aðdáendur að greiða helm- ingi meira fyrir aðgöngumiða en áður. En hvað kostar að fara á völl- inn í Evrópu? Samkvæmt samantekt í breska blaðinu Guardian er dýrast að fara á völlinn í Englandi en ódýr- ast í Þýskalandi. thorsteinngunn@dv.is Ekki sérstaklega góð helgi hjá Guðjóni Þórðarsyni og lærisveinum hans Töpuðu leiknum og svo bilaði rútan á leið heim Guðjón Þórðarson og strákarnir hans í Notts County töpuðu sfnum fyrsta leik í vetur um helgina er þeir mættu Shrewsbury. Lokatölur urðu 2-0. Það var ekki nóg að leikurinn skyldi tapast heldur bilaði rútan þegar liðið var á leið heim. Notts Counfy var frekar dapurt í leiknum og ekkert gekk upp hjá liðinu. Mörkin sem liðið fékk á __ sig vom ódýr og svo klúðraði liðið líka vítaspymu í * * leiknum. Vanur kappi eins og Guðjón átti alveg von á því að þetta yrði erfiður dagur. „Ég var með vont bragð í munninum þegar ég vaknaði um morguninn. Maður fær stundum svona tilfinningu," sagði Guðjón ekki allt ömmu sínu og hefur reyndar aldrei gert. „Ég veit ekki hvemig ég á að kallar útskýra það en ég fann þetta bara á mér um morguninn. Þessi sama tilfinning kom þegar við vomm mættir til Shrewsbury. Þetta er reynslan sem þama var að tala," sagði Guðjón af sinni alkunnu hógværð. Rúta liðsins bilaði á miðri leið heim til Nottingham og þá vom góð dýr. „Ég var með vont bragð í munninum þegar ég vaknaði um morguninn. Maður fær stundum svona tilfinningu." Blessunarlega em stuðningsmenn félagsins með hjartað á réttum stað en þeir stöðvuðu fyrir leikmönnum liðsins og gáfu þeim far heim. „Við eigum frábæra stuðnings- menn og þeir snéru við til þess að ná í okkur og fyrir það ber að þakka," sagði Guðjón sem er að komast í guðatölu hjá stuðningsmönnum liðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.