Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 29
DV Lífið
MIÐVIKUDAGUR21. SEPTEMBER 2005 29
Michael Bolton heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld. Hann er á tónleikaferða-
lagi um Evrópu og segist flla íslendinga í botn. DV spjaHaði við Michael í drykk-
langa stund og sagði hann ítarlega frá samstarfi sínu við Bob Dylan. Enn eru tH
miðar á tónleika Michaels Bolton.
Snaggaralegur með
sólgleraugu Bolton
er algjör töffari.
„Eg heyrði að Bob
væri þekktur fyrir að
stinga afúrsvona
lagasmíðum og láta
svo ekkert heyra í sér
aftur, ég skalfþví úr
stressi þegar ég
keyrði heim tilhans"
Michael Bolton lét bíða eftir sér.
Hópur fjölmiðlafólks sat óþreyjufull-
ur á annarri hæð Hótels Sögu og beið
eftir gulldrengnum. Þeir sem ferðuð-
ust með Michael gistu á Sögu en hann
sjálfur gisti á Hótel 101. Michael hafði
heyrt frá einhverju yfirmenni að 101
væri eini staðurinn fyrir hjartaknús-
ara eins og hann sjálfan. Þegar
Michael loks mætti var hann funheit-
ur, gerði að gamni sfnu og sagðist vilja
fá cappuchino sem væri bæði sætur
og sterkur. Hann var með sólgler-
augun á sér og sagði það vera vegna
þess að hann hefði aðeins sofið í þrjá
tíma. Hann tók gleraugun samt af sér
um leið og fréttamaður Stöðvar 2 hóf
spumingar sínar. Annað fjölmiðlafólk
á staðnum sat og beið eftir því að röð-
in kæmi að því.
íslendingar eru opnir og heill-
andi
Blaðamaður var ekki lengi að
smella „há dú jú læk æsland" á Mich-
ael þegar röðin kom að honum en
það var vegna þess að ekki var áður
búið að spyrja hann að því. Michael
sagðist ekíd hafa séð mikið af landinu,
en líkaði afar vel við það sem hann
hafði þegar séð. „Það sem heillar mig
mest er fólkið sjálft," segir Michael.
„Það er opið, heiílandi og viðkunnan-
Iegt. Til dæmis þegar við lentum í
morgun þá spurði ég bílstjórann sem
keyrði okkur til ReykjavQcur mikið um
ísland og honum fannst ekki mikið
mál að þylja upp allt sem hann vissi
um landið, það kann ég að meta,“
segir Michael einlægur.
Vonar að íslendingar séu eins
og írar
Michael segist vona að eftir tón-
leikana geti hann farið út á lrfið og
spjallað við íslendinga. Hann getur
þó ekki verið lengi úti því hann dag-
inn eftir heldur hann út til írlands að
spila. Þegar blaðamaður segir við
Michael að írum og íslendingum hafi
oft verið likt saman svarar hann um
hæl. „Ég vona að íslendingar séu jafii
góðir áheyrendur og írar, þeir em
alveg æðislegir. Maður réttir bara
hljóðnemann út í sal og hvert einasta
mannsbarn syngur með.“ Michael
kann vel við sig í írlandi. Hann hefur
spilað þar nokkrum sinnum áður og í
eitt skipti tók hann dætur sfnar með.
„Móðir þeirra er írsk,“ segir Michael
en hann var giftur henni í 18 ár. Núna
segist Michael ekki hafa tíma fyrir til-
hugalífið: „Ég ferðast átta mánuði á
ári, það væri hreinlega ósanngjamt
að leggja slíkt stress á einhvem."
Skalf úr stressi þegar hann
vann með Bob Dyían
Michael Bolton hefur verið lengi í
tónlistarbransanum. Hann hefur
unnið með mörgum þekktum lista-
mönnum, meðal annars Bob Dylan,
Pavarotti og Ray Charles. „Það var
eins og draumur að vinna með Bob
Dylan,“ segir Bolton en hann vann
með Dylan í kringum 1990 og var
sjálfur búinn að vera aðdáandi hans
frá 13 ára aldri. „Ég man þegar það var
hringt í mig og mér sagt að Bob vildi
semja lag með mér. Ég hélt að vinur
minn væri að grínast og sagði f kald-
hæðni: „Já endilega, verða Bítlamir
ekki með í því líka?““ En manninum í
símanum reyndist vera alvara og
samstundis afbókaði Michael tíma
sinn með Dianne Warren sem hann
átti daginn eftir, en Dianne Warren er
einn helsti lagahöfundur í heimi. „Ég
heyrði að Bob væri þekktur fyrir að
stinga af úr svona lagasmíðum og láta
svo ekkert heyra í sér aftur, ég skalf
því úr stressi þegar ég keyrði heim til
hans.“
Lék Bob eins og vön eftir-
herma
Michael lék Bob Dylan fyrir við-
stadda og var hann ótrúlega líkur
kappanum. Hann sagði að samstarfið
hefði gengið prýðilega en alltaf hefði
hann haft áhyggjur af því að Bob
myndi stinga af. „Við ætluðum að
halda áfram með lagið tveim dögum
seinna og var ég nánast alveg viss um
að ég myndi fá símtal þar sem mér
yrði tilkynnt að Bob væri farinn úr
landi og vildi ekkert með mig hafa
framar, en svo reyndist ekki, allt fór
vel." Michael segir að hann og Bob
hafi rætt mikið saman um hjóna-
skilnað en þeir áttu sameiginlegt að
hafa gengið í gegnum erfiðan skilnað.
„Divorce, man, it’s draining," sagði
Bob við Michael og lék hann það eftir
með miklum tilburðum.
Spilaði fyrir Díönu prinsessu
Að hitta Bob var eitt af hápunktum
ferils Michaels. Hann segir að það
hafi líka verið svakalegt að spila með
Pavarotti á ftalíu en þar var Díana
prinsessa mætt á fremsta bekk. „Ég
hef líka sungið með Ray Charles, það
var ógleymanleg lífsreynsla.”
Aðstandendur tónleikanna vom
famir að gefa blaðamanni illt auga
þegar þama var komið sögu. Michael
hafði gleymt sér í sögum af Bob Dylan
og nú var kominn tími á Höskuld
Ólafsson fyrir Morgunblaðið. Michael
Bolton er ekki hallærislegur, hann er
einlægur, töff, fjallmyndarlegur og
andskoti sjarmerandi.
dori@dv.is
Grapevine-búöinni hefur verið lokað eftir vel heppnað sumar
Allt troðfullt af túristum
I Grapevine-búðinni
„Það gekk ljómandi vel í allt
sumar,” segir Atli Bollason versl-
unarstjóri verslunarinnar
Grapevine info. Búðinni var lokað
fyrir helgi enda stóð aldrei til að
hafa hana opna lengur en yfir
sumartímann. „Við vomm mann-
legt kort fyrir túrista, sögðum þeim
hvað væri við þeirra hæfi í Reykja-
vík,“ segir Atli um starfsemi búðar-
innar. Atli neitar því staðfastlega
að kúnnar Grapevine info hafi allir
verið „hip og kúl" eins og tímaritið
Grapevine stflar inná heldur var
þarna öll flóran, „miðaldra, hall-
ærislega, venjulega og töff.“ Stefnt
er á að búðin verði aftur starfrækt
næsta sumar en segir Atli að það
muni koma í ljós hvort hann verði
verslunarstjóri aftur. Grapevine-
menn starfræktu ekki aðeins búð í
sumar heldur sáu þeir einnig um
tónleikaröð í samstarfi við Smekk-
leysu sem bar heitið Grapevine
Bad Taste. ,Ætli það hafi ekki verið
um 50 bönd sem spiluðu í heild-
ina, þrisvar í viku í allt sumar og
stundum oftar.“ Atli segir að tón-
leikaröðin hafi gefið mörgum ung-
um og upprennandi hljómsveitum
tækifæri á að spila og hljóta
þannig kynningu sem annars
þær hefðu ekki hlotið
„Að mínu mati voru
tónleikarnir með Plat
rosalega góðir og NBC
voru nokkuð feitir.
Síðan komu BOB mér á
óvart eins og alltaf," seg-
ir Atli um tónleikaröðina
Atli Bollason verslunarstjóri
Veit ekki hvort hann sjái um
búðina næsta sumar líka.
Atli Heimir Sveinsson tón-
skáld er 67 ára í dag.
„Maðurinn tekst á við
hindranirá opinn og
hreinskilinn hátt. Hér
er á ferðinni góður vin-
ur. Hann verður til stað-
ar þegar ástvinir
hans þarfnast
hans," segir i
stjörnuspá
hans.
Atli Heimir Sveinsson
Vatnsberinn (20.jan.-i8.febr.)
Hér kalia aðstæður á varkárni
þar sem þér er ráðlagt að kanna að-
stæður vel og vandlega.
*
*
Fiskarnir f?9, febr.-20. mars)
Dagarnir framundan verða
annasamir og skemmtilegir. Þér er
ráðlagt að sleppa fortíð þinni alfarið
lausri og horfa eingöngu fram á við.
HrÚtUrinnp?.mon-?9.aprt7j
Reyndu að draga úr bar-
dagafýsn þinni, kæri hrútur. Stefndu
hægt en staðfast að markinu sem þú
hefur ávallt stefnt að.
NaUtið (20. april-20. ma!)
—
Þín eigin dómgreind er
traustsins verð. En þú ættir að draga úr
gagnrýni þinni og taka náunganum
eins og hann birtist þér.
Tvíburarnir qi. mal-21.júni)
Aflaðu þér upplýsinga áður
en þú tekur til þinna ráöa eru ein-
kunnarorð til stjörnu tvíbura um þess-
ar mundir.
Krabbinn <22.júni-22.júii)
Vertu reiðubúin/n að fýrirgefa
og láttu skoðanir fólksins 1 kringum þig
ekki hafa of mikil áhrif á framgöngu
mála hjá þér.
[]Ón\b(23.júll-22.úgúíl)
Þú býrö yfir þeim einstaka
eiginleika að vera fær um að forðast
óþægindi og vonbrigði sem góður
stjórnandi þarfnast.
Meyjan (23. dgúst-22. sept.)
Ef þú hefur nú þegar sett þér
markmið er þér leiðbeint að einblfna
einungis á það sem skiptir þig máli.
Stjarna meyju sýnir árangur fýrir byrj-
un nóvembermánaöar 2005.
Voqin (23. sept-23. okt.)
Reyndu að skipuleggja þig
og tíma þinn mjög vel ef þú stendur
frammi fýrir próflestri eða einhvers- >
konar undirbúningi sem tengist starf-
inu (Nýttu tíma þinn vel).
Sporðdrekinn ih M.-21. mw
Hættu að horfa stöðugt um
öxl og veltu ekki fyrir þér orðnum hlut
því ef þú gerir það mun umhverfi þitt
ekki aðeins staðna heldur einnig þú
sjálf/ur.
Bogmaðurinn(22nór.-/?.*sj
Ekki fela tilfinningar þínar fyrir
þeim sem þú elskar þv( einhver tilfinn-
ingaflækja tengist hjartastöðvum þin-
um hér.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Lærðu að elska af alhug.Við-
urkenndu kosti þína að sama skapi.
Einnig ættir þú að tileinka þér listina
að sitja hjá og njóta stundarinnar án
þess að taka þátt íþví sem fram fer.
SPÁMAÐUR.IS
j