Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 Menning DV Svanur Bjarkar á uppboði Þegar þetta er ritað skömmu eftir hádegi á þriðjudegi hefur staðið yfir uppboð á kjól Bjarkar frá Óskarsverðlaunahátíðinni um árið í réttan sólarhring. Boð- in eru komin upp í 7.700 dollara og munu hækka en kaupverðið rennur til góðgerðarmála. Hvar eru nú hinir ríku drengir bank- anna? Væri ekki ráð að kaupa þenna kjól og koma honum á Þjóðminjasafn sem hluta af ís- lenskum sögulegum minjum fá 20. öld? > Björk Guð- mundsdóttir söngkona Fögurfyrirheit og innra skipulag Þeir á Félagsvísindatorginu fyrir norðan.standa reglulega fyrir opnum fyrirlestrum. Á morgun verður einn slíkur í boði á á Sólborg við Norðurslóð og v hefst kl. 16.30 í stofu L201. Þar talar Ágústa Hrefna Lárusdóttir um nauðsynina á góðu innra skipulagi til að takast á við örar breytingar og auknar kröfur. Með góðu innra skipulagi skap- ast svigrúm til að takast á við breytingar og þróun. Ágústa ræðir þetta útfrá starfsemi Kauphaliar íslands en starfsemi ( hennar felst aðallega í skráningu verðbréfa, rekstri viðskiptakerfis og eftirliti. Ágústa Hrefria Lárusdóttir hefur verið verkefna- og gæða- stjóri Kauphallar íslands frá árinu 1998. Hún var starfsmaður prófnefrtdar verðbréfaviðskipta á sama tímabili og aðalmaður í prófnefrid verðbréfaviðskipta fyrir Kauphöllina 2004-2005. Hún var skrifstofustjóri Endur- menntunarstofnunar 1995-1998, deildarfulltrúi á nefndasviði Al- þingis 1991-1995 og kenndi fyrir norðan 1987-1991. Hún stund- aði nám í íslensku við Háskóla íslands 1991-93, rekstrar- og við- t skiptanámi frá Endurmenntun HÍ og hefur að auki próf í verð- bréfaviðskiptum. Dagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar er að mótast og hefur nú verið til- kynnt hvaða myndir verði í flokki sem kallast Vitranir en þar verður leitað að upp- götvun ársins, verðlaunum sem eiga að auka orðspor þess sem þau hlýtur. Myndir í þeim flokki eru flestar eftir unga og athyglisverða leikstjóra Evrópu og Ameríku. Postulínsbrúðan Ein þeirra mynda afafar áhugaveröum lista sem kynntur er hér aö neðan úrflokknum Vitranir. Gríska dagskrárstjóranum Dimitri Eipides var falin umsjón með flokknum en áherslan er lögð á unga og upprennandi leikstjóra. Flestar myndirnar í flokknum eru fyrstu eða aðrar myndir viðkom- andi og margar þeirra gjaldgengar til verðlaunanna Uppgötvun árs- ins sem veitt verða í hátíðarlok. Alls eru þrettán myndir í flokkn- um, þrjár þeirra verða frumsýndar í Evrópu hér á landi. Einskonar hamingja, Hákarl í höfðinu og Postulínsbrúðan. Dimitri Eipides segir val sitt byggja á krefjandi kvikmyndum sem leitist við að endurnýja kvik- myndaformið og skapa sjónrænt táknmál sem liggur handan hefð- bundinna mynda. Þær endur- spegli það ferskasta og athyglis- verðasta í alþjóðlegri kvikmynda- gerð, menningarlega og fagur- fræðilega þróun okkar tíma. Sumar þeirra eru gjaldgengar í keppnisflokkinn okkar, en þar verða veitt verðlaun fyrir „upp- götvun ársins" af alþjóðlegri dóm- nefnd, en pólski leikstjórinn Pawel Pawlikowski er formaður dóm- nefndarinnar. í flokknum verða kvikmyndir frá Austurríki, Bretlandi, Rúmeníu, Tékklandi, Lettlandi, Líbanon, Rússlandi, Þýskalandi, Mexíkó og Ungverjalandi meðal annarra landa. Postulfnsbrúðan - A Porcelán- baba er ungversk og gerð af Peter Gardos eftir smásagnasafni, Stjörnubýlið eftir Ervin Lazar. Þrjár sögur af yfirnáttúrulegum atburð- um í sveit. Leikarar eru ekki lærðir leikarar og stíllinn dreifbýlislegur. Atriðin eru mörg hver hlaðin tákn- rænni merkingu. Ævintýralegar sögur af eyðingu og uppstigningu. Anteres er austurísk verðlauna- mynd frá Locarno, frá 2004. Leik- stjóri er Götz Spielmann og hann segir okkur sögur af þremur pör- um. Aiex og Nicole eru skilin. Sonja er ófrísk og verður stöðugt afbrýðisamari út í eiginmann sinn Marco. Eva er trygglynd eiginkona og móðir, en er smám saman að missa tökin á lífinu eftir ástarævin- týri með Thomaszi. Sumarást - My Summer of Love eftir Pawel Pawlikowski er sam- framleiðsla Breta og Pólverja, frá 2004. Sumarást fjallar um sam- band tveggja vinkvenna, Monu og Tamsin, en þær eru hvor af sinni stéttinni. Hugmyndin að mynd- inni er sótt í samnefnda skáldsögu eftir Helen Cross. Myndin sýnir á látlausan hátt skin og skúri sum- arsins hjá þremur enskum ung- mennum. Vann verðlaun sem besta mynd á Edinborgarhátíðinni árið 2004. Auk þess var hún valin besta breska myndin á BAFTA- verðlaunahátíðinni. Dauði herra Lazarescu - Moar- tea domnului Lazarescu eftir Cristi Puiu vann til verðlauna á kvik- myndahátíðinni í Kaupmanna- höfn og Certain Regard í Cannes en hún er rúmensk. Herra Laz- arescu hringir á sjúkrabíl um nótt vegna uppkasta og höfuðverkjar. í fylgd sjúkraflutningamannsins Miora (Luminga Gheorghiu sem birtist í myndunum Code inconnu og Le Temps du loup eftir Michael Haneke), fer hann frá einum upp- teknum lækni til annars, einum yfirfylltum spítala til annars þar til líf hans fjarar smám saman út. Einskonar hamingja - Stestí eftir Bohdan Sláma er þýsk/tékk- nesk framleiðsla frá 2005. Myndin gerist f úthverfi lítillar tékkneskrar borgar sem er ekki langt frá stærstu efnaverksmiðju landsins og gefur okkur innsýn í líf nokkurra persóna. Monika vinnur í smávöruverslun og bíður eftir að komast til Ameríku til kærasta síns. Líf hennar breytist þegar hún þarf að taka að sér börn vinkonu sem lögð er inn á geðsjúkrahús. Fallin - Krisana eftir Fred Kel- emen er lettnesk/þýsk. Safnvörður gengur fram hjá ókunnugri konu á brú síðla nætur. Seinna gerir mað- urinn sér grein fyrir að konan vildi binda enda á líf sitt með því að kasta sér í djúp fljótsins. Hin ókunnuga kona verður að áráttu hans. Ein vísbending liggur í smekklegri buddu sem skilin var eftir á nálægum bar, önnur er upp- kast að bréfi. Fullkominn dagur - A Perfect Day eftir Joana Hadjithomas og Khalil Joreige er hugleiðing um áhrif líbönsku borgarastyrjaldar- innar og tekur fyrir sólarhring í lífi Claudiu og sonar hennar Maleks. Eiginmaður Claudiu hvarf fyrir meira en 15 árum en hvarf hans óskráð. Nú þarf að taka ákvörðun. Myndin einkennist af björtum litum og áhrifamiklum myndræn- um samsetningum. Geimdraumar - Kosmos kak predchuvstvie er rússnesk og heit- ir leikstjórinn Aleksei Uchitel. Konyok er einfaldur og góðhjart- aður kokkur og áhugaboxari sem býr í lítilli hafnarborg í Sovétríkj- unum. Hann er í tygjum við þjón- ustustúlkuna Lara og fylgjast þau með ferðum fyrsta gervihnattarins af miklum áhuga. I boxhringnum hittir Konyok Gherman, dularfull- an og lífsþreyttan fyrrum pólitísk- an fanga. Gherman á sér þann draum að flýja til Vesturlanda, en þarf fyrst að frnna leið til þess. Hákarl í höfðinu - Zralok v hla- ve eftir Mária Procházková kannar óendanlega möguleika tæknibrella og stafrænnar myndvinnslu til þess að koma til skila heimssýn aðalsöguhetju sem þjáist af of- skynjunum. Söguhetjan, hr. Sherman, er einhleypur, miðaldra, og gengur um í náttslopp og á inniskóm, er með vindling og þriggja daga skegg. Hann er alltaf tilbúinn að skeggræða heimá og geima við þá sem eiga leið hjá litlu íbúðinni hans í Prag - og lætur ekki á sig fá þótt hann sé ekki virt- ur viðlits. Orrusta á himnum - Batalla en el cielo eftir Carlos Reygadas er mexíkósk frá 2005. Marcos er bíl- stjóri fyrir fjölskyldu herforingja. Hann og kona hans ræna barni til að heimta lausnarfé en barnið deyr óvænt, Marcosi til mikillar skelfingar. Hann trúir Önu, dóttur herforingjans fyrir sólarsögunni, og Ana býður honum huggun í formi kynlífs. Var tilnefnd til GuUpálmans á Kvikmyndahátíð- inni í Cannes árið 2005. Rekkjusögur - Postelnyye stseny eftir Kirill Serebrennikov er rússnesk frá 2005. Sjö samtengdar sögur sem gerast allar í rúminu. Svipmyndir, samtöl og rifrildi, tjáning ástar og haturs, gaman- leikur og angist fólks í nánum kynnum í rúminu. Serebrennikov hefur getið sér gott orð sem fram- úrstefnulegur leikhúsmaður og nýtir sér tilraunakennda kvik- myndatækni við leikræna fram- setningu Rekkjusagna, sem er upphaflega byggð á leikriti eftir Presnyakov-bræður. Teningunum er kastað - Spiele Leben er austurísk eftir Antonin Svoboda. Kurt er samviskulaus spilafíkill sem er algjörlega búinn að missa tökin á tilverunni og ákveður að gera hlutina áhuga- verða og láta teninga ráða athöfn- um sínum. Þetta verður til þess að líf hans tekur miklum breytingum og fær hann t.d. margvísleg starfstilboð. Ungur og vitlaus - Gargon stupide segir frá Loic, ungum sam- kynhneigðum manni sem starfar í súkkulaðiverksmiðju og deilir tíma sínum milli ástarævintýra og vin- skapar við trygga æskuvininn Marie. Loic lítur á kynh'f eins og hverja aðra neyslu, og neitar að sama skapi að horfast í augu við eigin tilfmningar. Þessi frumraun svissneska leikstjórans Lionel Bai- er hefur hlotið frábæra umsögn gagnrýnenda. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin f Reykjavík hefst þann 29. septem- ber og stendur til 9. október. Há- tíðin er styrkt af menntamálaráðu- neytinu og Borgarsjóði Reykja- vikur. Dagskrá og frekari upplýs- ingar um dagskrá er að fmna á vef: www.filmfest.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.