Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Vill stækka
húsið sitt
Jóhann Óli
Guðmunds-
son, oft
kenndur við
öryggisþjón-
ustufyrirtækið
Securitas, hef-
ur sótt um
það til borgar-
yfirvalda að fá
að stækka ein-
býlishús sitt í
Brekkugerði. Byggingar-
fulltrúi frestaði afgreiðslu
málsins á fundi sínum þar
til skipulagsfulltrúi hefur
farið yfir það. Skipulags-
fulltrúinn vísaði umsókn-
inni á hinn bóginn til
hverfisarkitektsins til um-
sagnar. Húsið í Brekku-
gerði, sem Jóhann Óli
keypti árið 2000, er í
augnablikinu 380 fermet-
rar. Annars býr hann með
fjölskyldu sinni í Bretíandi.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi viðskiptafræðinginn og kennarann Hlyn Ómar
Svavarsson í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að misnota ástand alzheimerveiks eldri
borgara. Hlynur fékk gamla manninn til að veita sér fullt forræði yfir Qármálum
hans, tók veð í íbúðinni hans og greiddi sjálfum sér pening. Hlynur kennir viðskipta-
fræði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja meðan hann bíður eftir að hefja afplánun.
Viðskiptatræöingur
sveik fé af
mm
"IrvrF’ifcf rl
. 'dáámmÉmmm
Júgóslavar á
Akureyri
Guðrún Blöndal sem nú
vinnur að lokaverkefni
sínu við Háskólann á Akur-
eyri mun fá sérstakan styrk
til að kaupa túlkaþjónustu
vegna verkefnisins. Það
ber heitið „Flóttafólk á Ak-
ureyri frá fyrrum
Júgóslavíu". Jafnréttis-og
fjölskyldunefnd Akureyrar
veitti Guðrúnu áheyrn á
þriðjudag og ákvað þá að
styðja við bakið á henni
vegna þessa máls.
Vill að borgin
ríðiávaðið
Kjartan
Magnússon,
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins,
flutti á þriðu-
daginn tillögu
í borgarstjórn
þess efnis að
launagreið-
endur sýni
það á launa-
seðlum hvernig afdreginn
skattur launamanns skipt-
ist á milli ríkis í formi
tekjuskatts og sveitarfélags
í formi útsvars. Með tillögu
Kjartans er lagt til að
Reykjavíkurborg hafi frum-
kvæði að breytingunni
með sínum átta þúsund
starfsmönnum og hvetji
jafnframt til þess að aðrir
vinnuveitendur geri slíkt
hið sama. Einróma var
samþykkt að vísa tillögu
Kjartans til meðferðar
borgarráðs.
alzheimensjuku
namalmenni
„Brot ákærða [Hlyns Ómars] er
alvarlegt og beindist gegn sjúk-
um, öldruðum manni, sem lagði
traust sittá ákærða."
Kennarinn og viðskiptafræðingurinn Hlynur Ómar Svavarsson,
50 ára, mun þurfa að eyða fjórum mánuðum í fangelsi vegna
þess sem hann gerði öldruðum og alzheimersjúkum leigusala
sínum. Hlynur er dæmdur fyrir að hafa nýtt sér minnisleysi
gamla mannsins til að svíkja út peninga. Gærdeginum eyddi
Hlynur hins vegar í vinnunni, í Fjölbrautaskóla Suðurnesja að
kenna nemendum sínum viðskiptafræði.
„Brot ákærða [Hlyns Ómars] er
alvarlegt og beindist gegn sjúkum,
öldruðum manni, sem lagði traust
sitt á ákærða," segir í lokaorðum
dómsins. Hlynur hélt statt og
stöðugt fram sakleysi sínu í réttar-
salnum en dómurinn taldi að hon-
um hafi verið fullkunnugt um
ástand gamla mannsins sem heitir
Óskar Þór Guðmundsson, 60 ára.
Sonur Óskars kærði Hlyn. Fram
að því hafði engum verið ljóst hvað
gekk í raun og veru á.
Erfiður tími
Þann 29. janúar 2003 lagði Skorri
Óskarsson, sonur Óskars Þórs Guð-
mundssonar, fram kæru á hendur
Hlyni Ómari. Faðirinn Óskar hafði
misst konu sína árið 2001. Eftir það
hafði farið að halla undan fæti.
Drykkjuvandamál og óregla auk
fyrstu einkenna alzheimersjúk-
dómsins gerðu vart við sig. Ógreidd-
ir reikningar hrönnuðust upp enda
hafði eiginkona Óskars alfarið séð
um fjármál heimilisins. Fyrir dómn-
um sagði nágranni og vinur Óskars
að á þessum tímapunkti hefði Óskar
leigt út hluta íbúðar sinnar. Leigj-
andinn var Hlynur Ómar Svavarsson
sem átti eftir að misnota ástand
gamla mannsins í sína þágu.
Viðskiptafræðingur að
mennt
Hlynur Ómar útskrifaðist Cand.
oecon. frá Háskóla íslands árið 1991.
Árið 2001 varð hann Msc. í fjármál-
um og viðskiptafræði frá HSEBA og
starfar í dag sem kennari við Fjöl-
Hvað liggur á?
brautaskóla Suðurnesja. Svo virðist
sem að stuttu eftir að hann flutti inn
til Óskars hafi hann boðið honum
hjálp til að koma fjármálunum í lag.
Hann greiddi Óskari ekki leigu, eitt-
hvað sem Óskar kvartaði undan við
nágranna sína, en sagði á móti að
hann hefði aldrei rukkað Óskar fyrir
ijármálaaðstoð sína.
Sveik gamla manninn
Sumarið 2002 dró til tíðinda.
Óskar sagði syni sínum frá því að
fjármálin hans væru komin í lag en
útskýrði málið ekki frekar. Vini sín-
um og nágranna sagði Óskar að
hann hefði gert mjög góðan „dfl".
„Hann sagðist hafa „lánað nafnið
sitt" og ekki talið sig vera í neinni
ábyrgð," sagði nágranninn fyrir
dómi.
Þarna var alzheimersjúkdómur-
inn farinn að ágerast. Óskar var
hættur að hugsa um útíitið, hann
datt oft og þurfti að fara á spítala.
Það var í einni slíkri heimsókn sem
Óskar var greindur með alzheimer.
„Milljónadíll"
„Díllinn" góði sem Óskar minnt-
ist á við nágranna sinn var eftir allt
ekki svo góður. Hlynur Ómar fékk
Óskar til að veita sér umboð til að sjá
um fjármál hans. Hann tók veð í
íbúð gamla mannsins fyrir 3,5 millj-
óna króna láni en góður vinur Hlyns,
Hreinn Sigurðsson, stóð á þessum
tíma í viðskiptum. Ætlaði að festa
kaup á húsnæði Mjólkursamsölunn-
ar við Höfðabraut 27 til að framleiða
vatn fyrir Þýskalandsmarkað.
Af peningum Óskars fékk Hreinn
liggur öllum á að drífa sig á Grasrótarsýninguna áður en hún verður tekin niður í byrj-
nóvember og sjá það nýjasta sem er að gerast ímyndiistarheiminum,"segir Lárus Vil-
hjálmsson, framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins.„Svo liggur myndlistinni á að fá markviss-
framlög og sinn skerfaf kökunni líkt og aðrar listgreinar. Það liggur svo á góðu veðri
til sjávar og sveita í vetur."
Hlynur Ómar Svavarsson viðskiptafræðingur Við kennslu í Fjölbrauta-skóla Suðurnesja í gær.
tæpar þrjár milljónir, en Hlynur
greiddi sjálfum sér 350 þúsund í um-
boðslaun fyrir ómakið.
Hélt uppteknum hætti
Meðan á meðferð málsins fýrir
dómi stóð hélt Hlynur áfram að nýta
sér veildndi gamla mannsins. Hann
fékk Óskar Þór tU að gefa út nýjan
víxU og, eins og stendur í dómnum,
kom sér þannig undan fjárhagslegri
ábyrgð vegna viðskiptanna. Þessi
ákæra var ekld tekin með í dómsnið-
urstöðum þar sem hún barst of seint
frá ákæruvaldinu. Hlynur var einnig
sýknaður af þeirri ákæru að hann
hefði ekki greitt gamla manninum
leigu þar sem ekki voru nægar sann-
anir fýrir hendi.
Skorri Óskarsson, sonur Óskars
Þórs, segir föður sinn búa nú á
Droplaugarstöðum og að fjölskyld-
an sé fegin að málinu sé lokið.
Segist saklaus
Hlynur sagðist í samtali við DV í
gær hafa lýst yfir sakleysi sínu fyrir
dómi. “Ég vissi ekki að hann hefði
alzheimer og það var enginn
brotavUji til staðar. Ég mun áfrýja
málinu og láta Hæstarétt fella sinn
dóm,” sagði-Hlynur.
simon@dv.is