Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 22
b-
cr1 ■jftnr maATMr' r,r o'o^puTUMin
22 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005
Ást og samlíf DV
Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur er sérfræðingur DV i öllu sem
viðkemur ást og samlífi. Hún tekur á móti ábendingum og svarar spurningum
lesenda I gegnum netfangið samlif@dv.is.
Hæ Ragga.
Ég er 19 ára stelpa og er í
sambandi með strák sem er
tveimur árum yngri. Ég hef alltaf
verið mjög skipulögð og veit
hvað ég ætla að gera í lífinu.
Skipulagið er stór hluti af mér og
ég verð mjög óánægð og stressuð
ef plönin mín standast ekki eða
ef einhver kemur í veg fyrir að
þau gangi upp. Ég er búin
að plana það sem ég
ætla að læra og hvað
ég vil vinna við í
framtíðinni og svo
hef ég mjög ákveðn-
ar hugmyndir um
hvemig fjölskyldu ég vil eiga.
Mér finnst engin ástæða til að
bíða með hlutina ef maður veit
hvað maður vill en kærast-
inn er alls ekki sammála
mér. Honum finnst til
dæmis allt of snemmt
að við byrjum að búa
saman og er ekki til í
að eignast barn eftir eitt
og hálft ár eins og mér
fmnst passlegt. Við elskum
hvort annað og þess vegna er
þetta stórt vandamál.
Kæra Ragga, getur þú
sagt mér hvernig ég fæ
hann til þess að breyta
um skoðun?
Kærkveðja,
MM
KæraMM
Þú ert 19 ára stelpa -
kornung og greinilega með
frekar óvenjulega sýn á lífið fyrir
manneskju á þínum aldri. Ákveðn-
ar skoðanir svo vægt sé til orða tek-
ið. Kærastinn (nýkominn með bfl-
próf veslingurinn) eftir bréfi
þínu að dæma kannski með ör-
lítið hefðbundnari hugmyndir
fyrir kornungan einstakling. Þetta
er það fyrsta sem ég tek eftir. Nú
finnst þér ég kannski hljóma eins
og gömul kelling. Ég held samt að
við getum skoðað áhyggjurnar þín-
ar algjörlega óháð aldri. Þetta snýst
um tvær manneskjur með ólíkar
skoðanir - svo einfalt (eða flókið) er
málið.
—-----------------------------
-
BKLl- --m --------— -
ValiÓ fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
i I
Minnistöflur
Ef þið eruð viss um að þið séuð
sköpuð hvort fyrir annað og bæði til
í að plana framtíðina saman held ég
að þú verðir aðeins að slaka á þínum
stífa ramma. Stundum er allt í lagi
að bíða aðeins og sjá til - það er líka
allt í lagi að skipta um skoðun, sér-
staklega ef markmiðið er að koma til
móts við þann sem maður elskar.
FOSFOSER
MEMORY
Umboðs- og söluaðili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Kynlíf veldur hausverk
Vlsindamenn segja karl-
menn frekar segja sann-
leikann þegar þeir segja:
„Ekki I kvöld, ástin. Ég er
með hausverk." Þýskir vís-
indamenn segja að einn
afhverjum hundrað karl-
mönnum finni fyrirharka-
legum hausverk á meðan
og eftirkynmök.„Verkur-
inn tengist ekki einhverri
sérstakri stellingu og
veldur ekki skemmdum á
heilanum. Hann hefst
vanalega þegar sáðlát
verður og stendur í nokk-
uð langan tima. Flestir
upplifa þetta I nokkrar
vikur og svo kannski
aldrei aftur á ævinni."
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunar-
og kynfræðingur heldur námskeið um
kynverund kvenna í næsta mánuði.
Jóna Ingibjörg segir margar konur sem
telja sig aldrei hafa fengið fullnægingu
þegar hafa fengið það þar sem þær mis-
skilji birtingu fullnægingunnar.
skiptir konui
„Við ætlum að íjalla um
reynsluheim kvenna í þessum
málum, hvernig það er að vera
kona og þeirra kynferðislegu þarf-
ir," segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir
hjúkrunar- og kynfræðingur um
námskeiðið Kynverund kvenna
sem hún heldur í næsta mánuði.
„Orðið kynverund hljómar
kannski skringilega en mér fannst
vanta gott orð fyrir enska orðið
„sexuality". Það þýðir nefnilega
meira en kynlífsatburðir því það
viðkemur öllu því sem er að vera
kynvera," segir Jóna Ingibjörg sem
heyrði fyrst af orðinu fyrir tveimur
árum.
Að vera í sambandi snýst um
málamiðlanir. Það gildir jafnt um
vinasambönd sem ástarsambönd
en líka um öll önnur sambönd sem
við stofnum til - við börnin okkar,
við vinnuveitanda, við þjónustu-
fulltrúann í bankanum, við einka-
þjálfarann o.s.frv. Ef við höfum
smámetnað til þess að vera þokka-
legar manneskjur með virðingu fyr-
ir öðrum manneskjum verðum við
einfaldlega stundum að slá af kröf-
unum og grípa til málamiðlana.
Vandamál kvenna skil-
greind af öðrum en konum
Jóna Ingibjörg segir þetta nám-
skeið fyrir allar konur, 16 ára og
eldri, hvort sem þær eru í sam-
bandi eða ekki. „Allar konur sem
langar að velta kynverund kvenna
fýrir sér og ræða við aðrar konur
eru velkomnar. Þetta er ekki með-
ferðarnámskeið heldur almenn
fræðsla um reynslu kvenna í þess-
um málum því öll erum við kyn-
verur þó að sumir haldi öðru
fram," segir Jóna Ingibjörg og
bætir við að konur þurfi ekki að
eiga við einhver vandamál að
stríða til að eiga heima á nám-
skeiðinu. „Það er eðlilegt að upp
komi einhver togstreita í öllum
samböndum enda hluti af para-
sambandi en við ætlum að spjalla,
spyija og heyra í öðru fólki og skil-
greina okkur sjálfar. Við ætlum að
tala um það sem okkur finnst, ekki
það sem aðrir tala um að sé að
okkur," segir Jóna Ingibjörg og
bætir aðspurð við að kynlífs-
vandamál kvenna hafi hingað tii
verið skilgreind af öðrum, s.s.
markaðsöflunum, sem fjalla þá
um fullnægingarvandamál
kvenna og karlmönnum sem
kvarta yfir áhugaleysi þeirra.
„Kynlíf skiptir okkur allar máli
en rekkjunauturinn skiptir okkur
konur meira máli en
kynlífið í sjálfu
sér. Við
Segjum svo að þér takist að valta
yfir strákaumingjann og troða hon-
um inn í þitt fastskorðaða munstur.
Kannski gengur dæmið upp í ein-
hvem tíma en ég er ansi hrædd um
að fyrr en síðar muni óánægjan
læðast aftan að honum, tilfinningin
um að hann sé ekki að uppfýlla sín-
ar eigin þarfir heldur bara þínar.
Ég vona að þér gangi vel með
þetta!
Kærkveöja,
Ragga
í lítilli og óvisindalegri könnun kemur
fram að karlmenn vilja upp til hópa
konur sem geta bjargað sér sjálfar.
Karlmenn vilja
skemmtilegar konur
fl
Frakkar
Franskir karl-
menn vilja kon-
ur sem koma
þeim á óvart,
konur sem jafn-
vel sjokkera þá
með tali sínu.
Þeir vilja konur
sem geta haldið
uppi samræðum
og konur
sem taka af skarið. Þó fá franskir
karlmenn grænar bólur ef konur
sletta fram algengum, hallærisleg-
um frösum til að hefja samræður.
Þjóðveijar
Karlmenn í
Þýskalandi segja
kynþokka eða lík-
amslögun ekki það
sem veki athygli
þeirra á kvenfólki.
Þjóðverjar telja
nefnilega að of fal-
legar konur brosi
minna en þær
minna fallegu en að bros konu lýsi
sjálfsöryggi hennar. Konur sem
brosa geisli og dragi að sér karl-
menn.
I