Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 16
7 6 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 Saddam Hussem fer fyrir rétt í Bagdad fyrir glæpi gegn mannkyninu. Ákærur sem varða aðild hans að Qöldaaftök- um á andstæð- ingum sínum voru birtar hon- um í gær. Sjö samstarfsmenn hans eru ákærð- ir með honum. Fyrrum forseti íraks, Saddam Hussein, bíður nú réttarhalda með stóískri ró að sögn talsmanna hans. Heimsbyggðin héfur fellt sinn dóm yfir honum. Fyrir hvað er hann ákærður og hvað gerðist í raun? Ljóst er að réttarhöldin munu verða söguleg í mörgu samhengi. DV leiðir lesendur í gegnum sög- una. Ekki hefur áður verið réttað yfir svo háttsettum manni í múslimsku ríki. Sjaldan hefur verið jafn mikill pólitískur þrýstingur á sakfellingu. Sjaldan hefur athygli fjölmiðla ver- ið jafnmikil. Saddam Hussein var handtek- inn af liðsmönnum Bandaríkjahers 13. desember 2003 og kom hann fyrst fyrir rétt rúmlega hálfu ári síð- ar. Þar lýsti hann vanþóknun sinni á réttinum og sagði hann ekki hafa neitt vald yfir sér og gæti því ekki dæmt hann. Síðar lýsti hann yfir að ef af réttarhöldum yrði óskaði hann eftir að réttað væri í Svíþjóð, því þar taldi hann sig fá bestu meðhöndl- un. Göran Person, forsætisráðherra Svíþjóðar, tók vel í umleitun lög- manna Saddams, en beiðni um réttarhöld þar var eigi að síður hafnað. Dujail árásin Það var um morguninn þann 8. júlí 1982 að forseti íraks var í bílalest sem keyrði inn í bæinn Dujail, smá- bæjar með 10.000 íbúum, í um 60 kílómetra fjarlægð norður af Bagdad. Bærinn var helsta aðsetur Daawa flokksins sem stóð gegn Saddam og stríði hans í Iran sem þá var í hámarki. Þegar bilamir koma inn í bæinn hefst skotárás sem stendur yfir í nokkra klukkutíma þar til herþyrlur og fótgöngulið koma forsetanum til aðstoðar. Eftir þessa atlögu að forsetanum mæta sveitir leynilögreglumanna til bæjarins og handtaka fjölda manns, jafhvel heilu fjölskyldurnar. Bæir og hús ertj jöfnuð við jörðu. 143 manneskjur, sú yngsta 13 ára eru aflífaðar eftir skyndiréttarhöld. 1500 manns í við- bót, mikið til konur og böm, teknir höndum og send í fangabúðir. Dujail árásin er fyrsta ákæran sem réttað er í yfir Saddam, en lík- legt er talið að hann geti átt von á allt að 13 mismunandi réttarhöld- um fyrir aðrar ákæmr. Sjö sam- starfsmenn hans sitja með honum á ákæmbekknum. Talið er að ákæmvaldið hafi tekið Dujail málið fýrst fyrir vegna þess hve sönnun- argögnin í málinu em sterk, þar á Beinagrindur Kúrda Fjöldc gröfsem fannst I al-Samawa- eyöimörkinni og er talinn vera frá þjóðarmorðum stjórnar ÍSaddams á Kúrdum á árunum 1987-1988. . meðal fjöldi vitna og jafnvel mynd- þessi réttarhöld, sakfelling sem Heimurinn leit í hina áttina bandsupptökur. gæti leitt til dauðarefsingar. Sam- Saddam Hussein komst til íraksstjórn hefur þó sagst ekki kvæmt íröskum lögum er heimilt áhrifa innan Baath-flokksins árið myndu sækja Saddam til saka fyrir að fullnægja dauðadómi innan 30 1968, stuttu eftir að flokkurinn fleiri ákæmr ef sakfelling næst við daga frá uppkvaðningu. náði tökum á stjórn íraks, með Saddam Hussein fæð- ist í al-Awja, 150 km norð- ur af Bagdad. Tekur þatt i uppreisn gegn stjórn- inni. Tekur þatt i morðtilraun á forsætisráð- herra og er skotinn í fótinn. Flýrtil Sýrlands og þaðan til Eg- yptalands þar sem hann hóf laganám. Er dæmdur til dauða í írak á meðan útlegð Snýr aftur til Bagdad þegar Baath-flokkur- inn nær völd- um í valdaráni. Fangelsaður niu mánuðum seinna eftir að stjórninni er rutt af stóli. Kosinn aðalrit- ari flokksins í fangelsinu. Skipuleggur valdarán sem kemur Baath- flokknum afturtil valda. Kos- inn varafor- seti fraks. Tekur við völdum sem forseti eftir að frændi hans Ahmad Has- an al-Bakr víkur úr ■ stóli. I kjölfar landamæra- deilna lýsir hann yfir stríði gegn fran sem stendur yfir næstu átta ár. Ræðst inn í Kúvæt. Ör- yggisráð SÞ grípur til við- skipta- þvingana. Fjölþjóðaher undir forystu BNA ræðsttil atlögu gegn íröskum her- sveitum í Kúvæt. Írakar flýja Kúvæt og kveikja í leiðinni í olíulind- Öryggisráð SÞ fyrirskipar frak að hætta þróun efnavopna og langdrægra flauga. ! ■ V '*A ^ ] t t■ ' *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.