Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBEFt 2005
Sport DV
Ungu strák-
arnirunnu
Breiðablik
Hið unga lið FSU eða
Skólafélag Fjölbrautaskóla
Suðurlands er að gera góða
hluti í 1. deild karla. Félagið
er tilkomið vegna körfu-
boltaakademíunnar sem
starffækt verður við skólann
í vetur að frumkvæði
Brynjars Karls Sigurðssonar.
FSU mun senda lið til
keppni í unglingaflokki karla
og drengjaflokki, auk meist-
araflokks karla. FSU-liðið
vann 18 stiga sigur á Blikum,
94-76, í 1. deildinni í fyrra-
kvöld en miklu er búist við
af Breiðabliksliðinu í vetur.'
Elsti leikmaður FSU er tví-
tugur en flestir eru tveimur
til þremur árum yngri. Þrír
leikmenn FSU-liðsins skor-
uðu 20 stig í sigrinum, Árni
Ragnarsson (21), Alexander
Dungal og Ragnar Gylfason.
Eins oq aðfá
Collina til
landsins
Mjög virtir FIBA-dómarar
eru komnir hingað til lands
til þess að dæma fyrsta Evr-
ópuleik íslensks kvennaliðs í
körfúbolta en Haukastúlkur
mæta spænska liðinu
CajaCanarias klukkan 20.30
á Asvöllum í kvöld. Þetta eru
þeir Lahdo Sharro frá Sví-
þjóð og Steve Ellis frá
Englandi. Koma þessara
ffægu dómara eykur enn á
spennuna í kringum þennan
tímamótaleik í sögu íslenska
körfúboltans og það er mikill
áhugi hjá íslenskum dómur-
um fyrir komu þeirra enda
hafa þeir líkt komu Sharro til
landsins við að Pierluigi
Collina mæti hingað til
lands til að dæma knatt-
spymuleik.
Mætirgöml-
um félaga í
fyrsta leik
Nýi serbneski leikmaður
kvennaliðs Hauka, Jelena
Jovanvoic, spilar sinn fyrsta
leik með liðinu
gegn CajaCanarias
í Evrópukeppn-
inni í kvöld en Jel-
ena hefur ekki
fengið leikheimild
til þess að taka
þátt í leikjum
Hauka hér heima.
„Jelena kemur með allt ann-
að hugarfar til leiks en aðrir
leikmenn liðsins og hún hef-
ur mikla reynslu. Við erum
búnar að spila æfingaleik
þar sem ég var mjög ánægð-
ur með hana og hún mætir
líka sérstaklega einbeitt og
ákveðin til leiks í kvöld þar
sem hún spilar á móti stelpu
sem hún þekkir mjög vel en
þær voru liðsfélagar," segir
Ágúst Björgvinsson, þjálfari
Hauka, um frumraun henn-
ar í kvöld.
■^TJTn
Haukakonur spila fyrsta Evrópuleik íslensks kvennakörfuboltaliðs í kvöld þegar
spænska liðið CajaCanarias kemur í heimsókn á Ásvelli. Það er búist við mörgum
áhorfendum á leikinn en Haukar hafa lagt mikla áherslu á að fá sem flesta til þess
að styðja við bakið á ungu liði Hauka sem tekur þetta risaskref fyrir íslenskan
kvennakörfubolta.
Fyrirliðinn að stíga upp úr meiðsl-
um Helena Sverrisdóttir, fyrirliði Hauka,
harkar af sér þessa dagana en hún er
ekki orðin góö af erfiðum ökklameiðsl-
um semhún varð fyrir daginn fyrir
fyrsta leik tímabilsins.
Kvennalið Hauka spilar sinn fyrsta leik í riðlakeppni Evrópubik-
arkeppni kvenna í kvöld þegar spænska stórliðið CajaCanarias
mætir áÁsvelli. Þetta er langstærsti kvennakörfuboltaleikur sem
hefur farið fram hér á landi en hvorki íslenskt kvennalandslið né
íslenskt félagslið hefur áður tekið þátt í Evrópukeppni.
Haukaliðið er ungt að árum og því reynir mikið á liðið í leiknum
í kvöld þegar þær glíma við reynda atvinnumenn í einu af bestu
liðum spænsku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan
20.30 og fer fram í íþróttahúsi Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði.
„Markmiðið er að koma tilbúnar í
leikinn frá fyrstu mínútu, ef það
tekst er ekki hægt að biðja um
meira. Við verðum síðan að sjá til
hvernig staðan verður á stigatöfl-
unni í lokin. Það skiptir mestu máli
að stelpurnar geri eins vel og þær
mögulega geta," segir þjálfari
Haukaliðsins, Ágúst Björgvinsson.
Ágúst veit samt að hann er ekkert að
fara að stjórna liðinu í neinum
venjulegum leik. „Þetta er náttúru-
lega mjög stór leikur og einn sá allra
stærsti sem hefur verið spilaður hér
á ísfandi. Við komum bara með til-
hlökkun í þetta verkefni og ég finn
sjálfur ekki fyrir neinni pressu. Við
erum að gera eitthvað sem enginn
hefur gert hér á landi áður og ég held
að enginn ætíist til þess að við séum
að fara gera eitthvað rosalega mikið
í þessari keppni. Það væri samt mjög
gaman að gera eitthvað óvænt og
það er það sem við stefnum á - að
koma öllum á óvart og standa okkur
í þessari keppni."
Haukaliðið hefur ekki náð sér á
strik í upphafi tímabilsins en vann
sinn síðasta leik gegn ÍS á útivelli á
mánudagskvöldið. Það hefur haft
mikil áhrif á liðið í upphafi að fyrir-
hðinn og besti leikmaður síðasta
tímabils, Helena Sverrisdóttir,
meiddist illa daginn fyrir fyrsta leik
og lék ekkert í fyrstu þremur leikjun-
um. Helena hefur verið að komast af
stað á nýjan leik þrátt fyrir að fara
meira áfram á hörku og keppnis-
skapinu en að vera búin að ná sér að
fullu af meiðslunum.
„Helena meiðist daginn fyrir
fyrsta leik og á sama tíma og útíend-
ingarnir eru að koma inn og liðið
þurfti að vinna í því að spila án Hel-
enu sem það heftir aldrei gert áður.
Undirbúingurinn hefur því kannski
ekki verið sá sem við hefðum kosið
en ég trúi því að þessir erfiðleikar
sem við höfum gengið í gegnum síð-
ustu þrjár vikur eigi eftir að styrkja
liðið þegar við verðum komin lengra
inn á tímabilið," sagði Ágúst um
vandræðin í upphafi en Haukaliðið
hefur tapað þremur af fyrstu fimm
leikjum sínum.
CajaCanarias átti einnig í vand-
ræðum í byrjun tímabilsins, tapaði
tveimur fýrstu leikjum sínum í
spænsku úrvalsdeildinni en vann
fyrsta leikinn í þriðju umferðinni
um síðustu helgi. Liðið er gríðarlega
hávaxið með fimm sterka leikmenn
yfir 185 sm, þar af tvær stelpur upp
194 og 198 sentimetra. Á meðal leik-
manna liðsins eru auk tveggja há-
vaxinna, bandarískra stelpna tvær
spænskar landsliðskonur, tvær fyrr-
verandi spænskar landsliðskonur og
sterkur, serbneskur framherji sem er
nýkominn til liðsins.
Það er búist við miklum fjölda
áhorfenda á leikinn á Ásvöllum í
kvöld, Haukar hafa dreift boðsmið-
um til allra stelpna sem æfa körfú-
bolta á íslandi og eins voru gefnir
boðsmiðar til allra grunn-
skólakrakka í Hafnarfirði. Það verð-
ur mikil umgjörð í kringum leikinn
og með góðri mætingu gæti þessi
leikur orðið eftirminnilegur, ekki
bara út frá sögulegu gildi hans held-
ur einnig vegna frábærrar stemmn-
ingar á pöllunun og góðs körfubolta
inni á vellinum. „Það er erfitt að
giska á fjöldann en við höfum sett
það markmið að fá þúsund manns á
leikinn og setja nýtt met á kvenna-
leik á íslandi," sagði Ágúst.
Björgólfur Takefusa gæti leikið með KR-ingum næsta sumar
KR-ingar á höttunum eftir Björgólfi
Nafnarnir BjörgólfurTakefusa
er barnabarn Björgólfs Guð-
mundssonar, forstjóra Lands-
bankans og mikils KR-ings sem
þætti eflaust ekki leiðinlegt að
sjá strákinn í KR-röndunum.
Samkvæmt heimildum DV Sports
munu KR-ingar vera á höttunum eft-
ir Björgólfi Takefusa, leikmanni Fylk-
is. Björgólfúr er samningsbundinn
Fylkismönnum í eitt ár til viðbótar
en þar sem Fylkismenn eiga eftir að
leggja inn samninginn til KSÍ er
staða Björgólfs óljós. Samkvæmt KSÍ
er Björgólfur samningslaus leikmað-
ur.
KR-ingar skrifuðu í gær undir
þriggja ára samning við Gunnlaug
Jónsson og greinilegt að þeir hafa
hug á þvf að styrkja sig mikið fyrir
komandi átök, eins og þeir hafa
reyndar ítrekað gert undanfarin ár.
Árangur liðsins síðasta sumar olli
miklum vonbrigðum en illa gekk hjá
liðinu að skora mörk. Koma Björg-
ólfs myndi óneitanlega styrkja sókn-
arleik KR-inga mikið og saman
myndu þeir Grétar Ólafúr Hjartarson
og Björgólfur mynda afar sterkt
framherjapar.
Björgólfur er nú í námi í Banda-
ríkjunum en hann útskrifast nú um
áramótin og mun því geta tekið þátt
í undirbúningstímabilinu af fuilum
krafti. Undanfarið hefur Björgólfur
komið til landsins ýmist rétt áður
eða eftir að mótið byrjar og hefur lík-
amlegt form hans verið misjafnt eftir
því. En það dylst engum að Björgólf-
ur er kröftugur leikmaður þegar
hann er heill og í góðri æfingu og
mikill fengur fyrir hvaða lið sem er.
Hann gekk til liðs við Fylki fyrir
tveimur árum frá Þrótti og skrifaði þá
undir þriggja ára samning. En þar
sem hann var á sérstökum náms-
styrk í Bandaríkjunum á þeim tíma
samdi hann við Fylkismenn um að
skila ekki samningum inn til KSÍ.
Hann er enda samnings-
laus samkvæmt upplýs-
ingum á heimasíðu
knattspyrnusambands-
ins. Það er þó ljóst að ef
aðilar ætía að ffarn-
kvæma þessi fé-
lagaskipti af ein-
hveijum heilind-
um munu KR-
ingar þurfa að
greiða fyrir
Björgólf til að
leysa hann imd-
an sínum samn-
ingi.
eirikurst@dv.is