Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 Sport DV Þjóðverjar svartsýnir fyrir HM Það eru aðeins þrjú pró- sent Þjóðverja sem telja þýska knattspyrnulandslið- ið eigi mögu- leika á að verða heims- meistari í íjórða sinn þegar HM fer fram í Þýska- landi næsta sumar. í könnuninni sem birtist í Stern-blaðinu kom einnig fram að 15% þýsku þjóðarinnar spá því að þýska liðið komist ekki upp úr riðlakeppninni, 25% segja liðið komast í átta liða úrslit og 19% spá því að þýska landsliðið komist alla leið í undanúrslitin. Það jók ekki á bjartsýnina að könn- unin var framkvæmd 13. og 14. október eða skömmu eftir að þýska liðið hafði tapað 1-2 fyrir Tyrklandi á heimavelli og rétt náð að vinna kínveska landsliðið í næsta leik á undan. Haukar mæta KA í bikarnum í gær var dregið í 16 liða úrslit SS-bikars karla í handbolta og stórleikurinn er örugglega viðureign Hauka og KA á Ásvöllum en hann er einn af fimm inn- byrðisleikjum liða í efstu deild. Bikarmeistarar ÍR- inga fá heimaleik gegn Fylki og þá mætast tvö lið FH í uppgjör eldri leikmanna, FH-Elítunnar, og núverandi meistaraflokksleikmanna. Aðrir Ieikir eru: Þór Ak. - Selfoss, Valur - Stjarnan, Stjarnan 2 - ÍBV, FH 2 - FRAM og Afturelding - HK en leikimir fara fram 8. og 9. nóvember. Meistararnir hafa ekki enn unnið leik NBA-meistarar San Ant- onio Spurs hafa ekkert ver- ið að sýna neina meistara- takta á undirbúningstíma- bilinu en NBA-deildin fer af stað á nýjan leik í nóvem- ber. Spurs-liðið hefur tapað öllum fimm leikjum sínum nú síðast 81- 94 fyrir liði Indi- ana Pacers sem marg- ir spáð mikilli vel- gengni í vetur. „Ég er að leyfa öllum að spreyta sig svo að við kom- um öllum í gott leikform," sagði þjálfarinn Greg Popovich sem hefur séð tímana tvenna og hefur ekki miklar áhyggjur af genginu. Popovich gaf líka mörgum lykilmönnum frí en það var aðeins Tony Parker sem náði að skora á annan tug stiga en hann skorað 11 stig. RonArtest var stigahæstur hjá Indiana með 20 stig og 13 fráköst. í fyrradag varð Thierry Henry marka- hæsti leikmað- ur í sögu Arsenal þegar hann bæði jafnaði og bætti met Ian Wright í einum og sama leiknum. Það var gegn Spörtu Prag í Meistaradeild Evrópu og stóð reyndar aldrei til að Henry myndi spila stórt hlutverk í leiknum. Henry hefur átt við meiðsli að stríða síðan í ágúst en Arsene Wenger ákvað að hafa hann með í hópnum í Tékklandi þó svo að hann væri að- eins nýbyrjaður að æfa á nýjan leik. Hann kom svo óvænt inn á völlinn á 15. mínútu þegar Jose Antonio Reyes meiddist og gat ekki spilað meira í leiknum. Henry var einungis sex mínútur að skora fyrsta markið og hafði hann svo skorað annað áður en yfir Iauk. En þó svo að Thierry Henry hafi skorað bæði fyrsta og sitt nýjasta mark sitt fyrir Arsenal sem varamaður er ekki margt líkt með þeim pilti sem þandi netmöskva Southampton-marksins í sept- embermánuði árið 1999. Arsenal leitaði logandi ljósi að nýjum fram- herja hjá félaginu eftir að Nicolas Anelka yfir- gaf Lundúnir sumarið 1999. Arsene Wenger, stjóri félagsins, ákvað að kynna til leiks tvo nýja leikmenn. Annar var gömul hetja sem hafði sleg- ið allrækilega í gegn á Heimsmeistaramótinu í Frakklandi árið á undan. Það var Króatinn Davor Suker. Hinn var 22ja ára franskur kantmaður sem hafði átt erfitt með að finna sig eftir að hafa orðið heimsmeistari með Frökkum árið á undan. Það var Thierry Henry. f fyrsta leik tímabilsins var framlína Arsenal skipuð þeim Suker og Kanu og fyrir aftan þá var Dennis Bergkamp. Þessi uppstilling kom mönn- um ekki á óvart og þurfti Henry að sitja í skuggan- um af þeim. Frakkinn ungi fékk þó sínar mínútur á vellinum en fyrsta markið kom þó ekki fyrr en í níunda leiknum. Það var á útivelli gegn Sout- hampton. Hvort lið ákvað að skipta manni inn á þegar einungis nítján mínútur voru eftir af leiknum. Henry kom inn á hjá Arsenal og varnarmaðurinn Marco Almeida fékk að þreyta frumraun sína hjá Southampton. Þeir stóðu hlið við hlið á hliðar- línunni og biðu eftir sfnu tækifæri. Nokkrum mínútum síðar hittust þeir á ný inn á vellinum. Henry sótti að marki Southampton og Almeida var til varnar. Frakkanum gekk eitt- hvað illa að framkvæma þá hluti sem hann ætí- aði sér en blessunarlega fyrir hann var Almeida jafn klaufskur á vellinum. Henry nýttí tækifærið og þrumaði knettinum í fjærhornið á markinu og reynd- ist það sigurmark leiksins. í dag muna fáir eftir Marco Almeida en allur knattspyrnuheimurinn veit hver Thierry Henry er. Þá daga var Henry vængmaður sem talaði litla ensku og var í skugga annarra framherja liðsins. I dag, 185 mörkum síðar, er hann marka- hæsti maður félagsins, sá sem gefur flestar stoðsendingar, er helsti talsmaður leikmanna, vítaskytta, sá sem tekur horn og aukaspymur liðsins sem og fyrirliði þess. Þar að auki er hann átrúnaðargoð stuðningsmanna félagsins og virt- ur knattspyrnumaður í öllum heimshornum. Arsene Wenger hefur lýst Henry sem leik- manni sem vill helst spila hverju einustu mínútu í hverjum einasta leik. Hann þolir ekki að vera skipt út af. En drifkraftur hans leynir sér ekki og sást það einna best á frammistöðu hans í fyrra- dag. „Hann hefur aðeins tekið þátt í einni stuttri æfingu síðustu 37 daga og það er ekki mikið,“ sagði Wenger. „Ég bjóst ekki við því að skipta honum svo snemma inn á og ekki hann heldur. Þegar ég sagði honum að hann ætti að koma inn á horfði hann bara á mig, furðu lostinn." Henry var ekki lengi að jafna met Ians Wright og hann bætti það svo undir lok leiksins. „Hann er enn aðeins 28 ára gamall og Ian Wright var 33 eða 34 ára gamall þegar hann sló met Cliff Bast- in. Það er því meira í vændum frá Henry." Henry sjálfur hefur oft rætt um fyrsta markið 18. september 1999 Fyrsta mark Thierry Henry fyrirArsenal kom þegar hann skoraði eina mark leiks Southampton og Arsenal. 28. nóvember 1999 Arsenal- Derby County 2-1. Henry er kom- inn í framherjastöðuna og skorar íþessum leiksina fyrstu tvennu. MB. febrúar 2001 Lyon- 1 Arsenal 0-1. Eftir aðeins eitt j stig ífyrstu tveimur leikjum | Arsenal i meistaradeildinni . *~j það árið reyndist mark Henry I I gegn Lyon afar dýrmætt. I 14. apríl 2001 Arsenal- Valencia j j 2-1. Eftir að hafa lent marki undir Iskorar Uenry sigurmarkið ífjórð- | ungsúrsiitum meistaradeildar- I innar gegn Valencia. 125. nóvember 2001 Arsenal-Manchest- Ier United 2- i.Eftirað leikurinn er ijárnum I í stöðunni 1-1 nýtir Henry sér klaufaleg I mistök Fabien Barthez og hirðir lélegt út- 'l kast hans og skorar auðveidiega. Víkingar ganga frá sínum málum Magnús tekur við Víkingum Magnús Gylfason hefur tekið við Vfkingum en í sfðustu viku greindi DV frá því að Magnús þætti líklegasti arftaki Sigurðar Jónssonar. Sú er nú orðin raunin og skrifaði Magnús undir þriggja ára samning við Vík- inga en samningurinn er óuppsegj- anlegur fyrstu tvö árin. Að sögn Ró- berts Agnarssonar, formanns knatt- spyrnudeildar Víkings, er samning- urinn þannig gerður svo að Magnús fái svigrúm til að byggja upp sitt lið í Víkinni. „Við ákváðum að ráða Magnús því við höfum trú á honum. Hann hefur góða reynslu sem þjálf- ari og hefur menntað sig vel og mik- ið í þeim fræðum," sagði Róbert en Magnús er við það að ljúka UEFA-A þjálfaragráðu. Magnús hefur hug á því að fá þá leikmenn sem eru samningsbundn- ir Víkingi en hafa undanfarið leikið með öðrum liðum. Þaö eru þeir Viktor Bjarki Arnarsson (Fylki), Grét ar Sigfinnur Sigurðs- son (Val) og Stefán Örn Arnarson (Kefla- vík). DV hefur þó heimildir fyrir því að þeim tveimur fyrst- nefndu stendur ekki mikill hugur til að snúa aftur í Víkina. Þeir eru þó samn- ingsbundnir Vfk- ingum og má því ætla að viðkom- andi félög verði að kaupa upp samninga þeirra, Gunnlaugur samdi við KR til þriggja ára KR-ingar nældu j stærsta bitann ' r-------, ætli þau sér að m halda þeim. eirikurst@dv.is Magnús Gylfason Hef- ur skrifað undir þriggja ára samning við Víkinga sem unnu sér sæti i Landsbankadeildinni í haust. DV-mvnd Vilhelm Gunnlaugur Jónsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við KR. Gunnlaugur var áður á mála hjá ÍA en hann tilkynnti forráðamönn- um Skagamanna nú fyrr í vikunni að hann hyggðist ekki endurnýja samning sinn við félagið. Hann hef- ur undanfarið átt í viðræðum við þrjú félög á höfuðborgarsvæðinu, Fylki, Val og KR en gekk frá samn- ingum við síðastnefnda félagið í gær sem fyrr segir. „Auðvitað er það skrýtið að leika nú fyrir KR sem maður hefur háð svo margar rimmur við í gegnum tíðina. Ég er vanur því að labba hingað inn í KR-heimilið sem andstæðingur," sagði Gunnlaugur. „En hér eru menn ákveðnir að taka á sínum mál- um og hingað hefur verið ráðinn þjálfari sem hefur mikla reynslu að- allega er- lendis frá. Menn hafa ekki verið sáttir við árangur og spila- mennsku liðsins undanfar- ið og ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum til að ná árangri, eins og ég hef alltaf reynt að gera sem fótboltamaður." Gunnlaugur hefur um árabil verið einn sterkasti vamarmaður landsins og er klárlega mikill fengur fyrir KR. Gunnlaugur Jónsson Mun klæðast KR-treyjunni næstu þrjú árin og leggja gamla góða Skagabúninginn á hilluna. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.