Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Qupperneq 32
i
og teiknimyndagerö, Ragnar Axelsson fyrir afbragös-
blaðaljósmyndir og „Andlit norðursins", Rórí fyrir fram-
lag sitt sem fulltrúi íslands á Feneyjatvíæringnum 2003 og
gjörning á Kirkjulistahátfð, Steina Vasulka fyrir framlag sitt
Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is
32 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005
Menning DV
Átta tilnefndir
Tilkynnt var í gær að átta manna hópur hefði verið til-
nefndur til verðlauna Myndstefs: Finnbogi Pétursson
fyrir framlag sitt á Listahátíð, Gabríela Friðriksdóttir
fyrir framlag sitt sem fulltrúi íslands á Feneyjatvíær-
ingnum.Grétar Reynisson fyrir athyglisverð mynd-
verká leiksviði á siðastliðnum árum, Gunnar Karlsson
fyrir útgáfu barnaefnis, nýstárlegar myndskreytingar
til myndbandalistar og pau njon bteve Lhrister og Margret
Harðardóttir, sem hér eru eitt, vegna djörfungar og frumleika við hönn-
un bygginga og mannvirkja.
Flugur
ERLENDAR vetsíour um solu mynd-
listar láta hátt um miklar sölur á Ijós-
myndum síðustu vikur; það eru stóru
uppboðshúsin sem eru að slá sín fyrri
met: Christie's, Sotheb/s og Phillips.
Stærsta salan var á kunnu safni Ed-
wards S. Curtis
(1868-1952): The
North American
Indian sem
geymir mörg
þekktustu por-
trett af indíán-
um sem til eru.
Mappan var
metin á 600
þúsund dali en
seldistá 1,2
milljónir.
KUNNUR sölumaður sem hér var á
ferð í haust og starfar beggja vegna
Atlandshafsins við að leita uppi og
höndla með myndir eftir frægustu
Ijósmyndara heims
hafði á orði að
heimsmarkaðurinn
væri lltill: þetta væru nokkrir safnarar
og sjóðir sem stæðu I kaupum á orig-
inal kópíum. Hann var hér á ferð til að
skoða Ijósmyndasöfn og ganga frá
miðlun á tveimur myndum eftir Man
Ray fyrir íslenska safnara. Hér á landi
er markaður með Ijósmyndir ekki til:
enn má finna handlitaðar myndir eftir
Ólaf Magnússon. Kóplur eftir Kaldal
eru fáséðar og ýmsir seinni tlma Ijós-
myndarar eru ekki mikið á ferð.
TfÐAR sýningar á Ijósmyndum eftir
starfandi listamenn eru að auka al-
menningi skilning á þessu listformi
slðustu aldar en markaðurinn er van-
þróaður. Stóru aðilarnir, Ljósmynda-
safn Reykjavlkur og Myndadeild Þjóð-
minjasafns, hafa á síðústu árum unn-
-ið þrekvirki (að koma hér á framfæri
sögulegum arfi okkar í Ijósmyndum
og hafa jafnframt kynnt yngri höf-
unda, erlenda og innlenda. Ljós-
myndir á bók eru orðnar staðreynd
og ættu að styrkja markaðinn.
CHRISTIE'S hefur á slðustu dögum átt
stærstu sölurnar: hætt er við að les-
andi kippi sér upp við verðin. Þar var
uppboð dagana 10-12 október úr
safni sem kennt er við Gert Elfering,
Blómasería Ro-
berts Mapplet-
horpe var þar
seld með
meiru. Heild-
arsala nam
14,5 miljón-
um dala en
uppboðsgrip-
ir voru 409
og seldist
stærstur hluti
þeirra. Þar fóru verk
eftir meistara á borð
við Avedon, Irving
Penn, Henri Cartier-
Bresson og Brassái. Verð fer hækk-
andi, hefur stigið um 88% á fjórum
árum.
HJÁ SOTHEBY'S seldist Ijósmyndin
The Breath eftir Edward Weston
(1886-1958) fyrir 720 þúsund dali
sem er hæsta verð á mynd frá síðari
timum sem þekkist. Það stóð i sólar-
hring þvf daginn eftir fór mynd eftir
Dorotheu Lange (1895-1965) á sama
pris. Yngri menn eru líka mikils metn-
ir: Ljósmynd eftir Andreas Gursky
sem er fæddur 1955 var seld á 264
þúsund dali.
Fræg mynd
Mapplethorpe
af Lisu Lyons
Ný skáldsaga eftir Ólaf Gunnarsson kemur út í dag, Höfuðlausn. Um þessar
mundir eru þrjátíu og fimm ár síðan hann sendi frá sér sína fyrstu bók, en
Ólafur er þungavigtarmaður í sagnaskáldskap á íslandi.
Þið er forresten
óbserilegt líf
Höfuðlausn heitir nýútkomin
skáldsaga Ólafs Gunnarssonar en
sagan hefst árið 1919 og er aðal-
sögusviðið Reykjavík. Fyrsti hluti
sögunnar segir af Jakob sem átti
afar erfiða æsku í Keflavík þar
sem hann var settur í vist hjá
móðurbróður sínum sem bæði
barði hann og svelti. Svo fer að
hann flýr til Reykjavíkur aðeins
16 ára gamall en þar fer hann í
Iðnskólann og lýkur prófi í húsa-
smíðum.
Bíleigandi
í upphafi sögunnar er hann
hins vegar orðinn eigandi að bíl og
vinnur fyrir sér sem einkabflstjóri.
Sú iðja, svo og kunnátta hans við
smíðar fleytir honum inn í vinnu
við kvikmyndun á Sögu Borgarætt-
arinnar eftir Gunnar
Gunnarsson
en til lands-
ins er kominn
mikill fjöldi
leikara og t
annars fag-
fólks frá Dan-
mörku.
Þar sem
Jakob er bæði
handlaginn og
hörkuduglegur
er honum
einnig falið að
hjálpa til í leik-
munadeildinni
og fer með kvik-
myndaliðinu út á land þar sem
hann kemst í náin kynni við eina
aðalleikkonuna, íðilfagra dekur-
dúkku sem hefur Jakob að fífli áður
en yfir lýkur.
Muggur
Guðmundur Thorsteinsson, list-
málarinn Muggur, leikur stórt hlut-
verk í myndinni og þeir Jakob verða
miklir mátar. Muggur hefur miklar
áhyggjur af unga manninum því
hann tekur eftir því að Jakob gengst
helst til mikið upp við kynni sfn af
fræga fólkinu, varar hann marg-
sinnis við og segir: „Farðu aldrei út
í listir, ungi maður, ég þykist sjá að
þér þyki sú veröld heillandi. Það er
forresten óbærilegt líf." (39) Jakob
lofar vini sínum öllu fögru en gætir
ekki að sér og listagyðjan hremmir
hann með voveiflegum afleiðing-
um, bæði fyrir hann og hans nán-
ustu.
J i v Ull^UIU X.l/1/^
Verð: 4.680 kr.
★★★.ý'if
Bókmenntir
Framtíð björt og fögur
í seinni hluta sögunnar er verð-
andi kona Jakobs kynnt til sögunn-
ar. Sú heitir Ásthildur og er dóttir
ríks kaupmanns að vestan. Hún
kemur til Reykjavíkur að læra guli-
smíðar og þar tvinnast örlög Jakobs
og hennar saman. Hann þykir ekki
par fínn fyrir stúlkuna en hún er
ákveðin og fylgin sér og svo fer að
þau giftast. Fyrir tilstuðlan Thors
Jensens, sem Jakob vinnur hjá um
tíma, fá ungu hjúin hús á leigu sem
Jakob gerir upp og við blasir ffam-
tíðin björt og fögur.
En ekki fer allt eins og á verður
kosið því Ásthildur fer að finna fyrir
torkennflegum kvilla sem hún
reynir þó að leyna fyrir bónda
sínum í lengstu lög en sjálfur er Jak-
ob heiflum horfinn. Hann er grip-
inn stórum draumum um að semja
sjónleiki og sögur og e.t.v. að stofna
félag sem framleiðir kvikmyndir.
Kona hans styður hann heflshugar
enda finnst henni ævi hans og örlög
minna um margt á ævi uppáhalds-
rithöfundar hennar, Knuts Hams-
un og úr því að Hamsun fékk sögur
sínar útgefnar, hvi skyldi Jakob ekki
takast það einnig?
Kvikmyndaskáld
Jakob skrifar kvikmyndahandrit
byggt á Egfls sögu þar sem útgangs-
punkturinn er samskiptí Egils við
Eirík blóðöx og GunnMdi og hið
ffæga kvæði Egfls, Höfuðlausn.
Handritið sendir hann tfl Dan-
merkur en ekki fær það hljómgrunn
þar frekar en heima á Islandi. Þá
sest hann niður og skrifar gríðar-
mikla sögu upp á 400 síður sem
hann gengur með á milli bókaút-
gefanda en er alls staðar hafriað.
Hvorugt skflja þau hjónin af hverju
enginn sér „snilldina" í textunum
nema þau og Jakob fer á endanum
að upplifa sig sem misskilinn lista-
mann og hegðar sér sem slíkur.
Að þekkja sín mörk
Höfuðlausn Ólafs Gunnarssonar
er saga af manni sem þekkir ekki
takmörk sín og gerir sér ekki.grein
fyrir að draumar og veruleiki fara
sjaldnast saman. Þessum unga
manni er ekki gefin sú gáfa að geta
leyst höfuð sitt með skáldskapnum
og segja má að hann reisi sjálfum
sér og fjölskyldu mðstöng með grill-
um síríum. Hann Jflustar ekki á orð
sér viturri manna, verður ofrnetn-
aði og drambi að bráð og leggur
bæði sitt líf og annarra í rúst.
En þó lesandi átti sig fyllflega á
dæmisögu þessari þá er persóna
Jakobs nokkuð gloppótt á köflum
og því tæpast útskýrð með öðm en
orðum leikkonunnar frægu frá
Danmörku: „Ih hvor er Jakob naiv."
Barnaskapur hans er þó svo yfir-
gengilegur að nálgast ótrúverðug-
leika og það þótt höfundur reyni að
gæða persónu hans hégómleika allt
frá upphafi, Lfldegast í þeim tflgangi
að skýra „fall" hans síðar. Hér er
ákveðin missmíði í gangi sem tölu-
vert truflar annars ágæta sögu sem
framsett er af löngu þekktum
sagnagaldri Ólafs Gunnarssonar.
SigríöurAlbertsdótúr
mmmmsmmmrn
tí:isie,u,i^4tgeW'J,s
I
Menning DV
FIMMTUDAGUR20. OKTÓBER 2005 33
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR
1. Við enda hringsins -
2. Skuggi vindsins -
3. Veroníka ákveður að deyja -
4. Næturvaktin -
5. Lífið er annars staðar -
6. Óvanaleg grimmd -
7. Blekkingarleikur -
8. Dexter í dimmum draumi -
9. Moby Dick -
10. Svik -
Tom Egeland
Carlos Ruiz Zafon
Paolo Coelho
Natsuo Kirino
Milan Kundera
Jack Higgins
Dan Brown
Jeff Lindsey
Hermann Melville
Karin Avltegen
Ráðherra i þungum
þönkum ,.Eg erað
skoða hvort láta eigi
samninginn ná til
fleiri þátta i Ijósi
þeirrar þróunar sem
átt hefur sér stað i
kvikmyndamálum."
SKALDVERK - KIUUR
1. Forðist okkur -
Hugleikur Dagsson
Liza Marklund
Allison Pearson
Liza Marklund
Dan Brown
Kari Hotakainen
Alexander McCall Smith
Paulo Coelho
Arnaldur Indriðason
Arnaldur indriöason
2. Studio sex -
3. Móðir í hjáverkum -
4. Hulduslóð -
5. Englar og djöflar -
6. Skotgrafarvegur -
7. Kvenspæjarastofa 1 -
8. Alkemistinn -
9. Grafarþögn -
10. Kleifarvatn -
HANDBÆKUR - FRÆÐIBÆKUR - ÆVIS0GUR
1. Myndin af pabba - Saga Thelmu -
Geröur Kristny
2.109 japanskar Sudoku - bok l -
3. Su Doku -
4.109 japanskar Sudoku - bók 2 -
5. Þú ert þaö sem þú borðar -
6. Matreiöslubók Nönnu -
7. Kjarval -
8. Hin mörgu andlit trúarbragðanna
9. Lopi bók 25 -
10. Sögur Tómasar frænda -
Gideon Greenspan
Wayne Gould
Gideon Greenspan
Gillian Keith
Nanna Rögnvaldardóttir
Ýmsir höfundar
Þórhallur Heimisson
Istex
Tómas M. Tómasson
BARNABÆKUR
1. Völuspá
Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Þórarinn Eldjárn
Nýlega var vakin athygli á því á
vefsíðu kvikmyndaiðnaðarins,
Landi og sonum, að samkvæmt
ffamlögðu fjárlagafrumvarpi lækka
framlög til Kvikmyndamiðstöðvar
um 0.8% milli ára. Framlög til Kvik-
myndamiðstöðvar sem veitir styrki
til kvikmyndagerðar í landinu ráða
miklu um hvað hér gerist í þessum
unga iðnaði. Menntamálaráðherra
lýsti því yfir við komu frá kvik-
myndahátíðinni í Toronto fyrir
skömmu að nýr samningur væri í
undirbúningi í ráðuneyti sínu, en
upphaflegi samningurinn rann út
um áramótin síðustu, en ráðuneyt-
ið hefur haldið áfram samnings-
bundnum greiðslum.
Leitað til ráðherra
Fátt hefur heyrst opinberlega
frá samtökum kvikmyndagerðar-
manna sem voru aðilar að samn-
ingsgerðinni í upphafi. Því leitaði
DV tfl ráðherra og óskaði eftir upp-
lýsingum um stöðu mála. Svör ráð-
herra bárust að bragði og ber að
þakka svo skjót viðbrögð sem eru
tfl fýrirmyndar. Þorgerður Katrín
segir í svörum sínum: „Það er rétt
að samningurinn er í endurskoðun
og vona ég að brátt náist niður-
staða í þeim efrium. Að mínu mati
er mikflvægt að ná samkomulagi
um endurnýjun samningsins enda
hefur hann verið ein helsta for-
senda aukinnar grósku í kvik-
myndamálum.
Forsendur í endurskoðun
„Ástæðumar em nokkrar en ein
þeirra sem nefria má er að ég er að
skoða hvort láta eigi samninginn ná
til fleiri þátta í ljósi þeirrar þróunar
sem átt hefur sér stað í kvikmynda-
málum, ekki einungis hér á landi
heldur alls staðar í kringum okkur,"
segir Þorgerður. „Hvað á ég við með
því-jú, ég tel til dæmis nauðsynlegt
að við veltum því alvarlega fyrir
okkur hvort ekki eigi að opna frekar
fýrir svokallaða samffamleiðslu hér
heima. Það er erfitt og oft nær úti-
lokað samkvæmt núverandi fyrir-
komulagi en gemr reynst nauðsyn-
legt ef við ætlum t.d. að ná hingað
inn stórum og spennandi kvik-
myndaverkefnum er tengjast ís-
landi þó svo að myndin sé að öðm
leyti framleidd og leikstýrt af út-
lendingum. Ég hef verið að kynna
mér fyrirkomulag þessara mála
annars staðar, m.a. í Kanada, og tel
mikfl tækifæri vera tfl staðar."
Klárir Kanadamenn
Kanada hefur verið mjög fram-
arlega í samstarfi um aðflutt verk-
efni, bæði fyrir franskan, breskan
og ekki síst bandarískan iðnað,
bæði kvikmýndaframleiðslu í fullri
lengd og ekki síður sjónvarpsþætti.
Ræður þar bæði staða kanadadals
gegn bandarískum dal, aðstaða
sem stjórnvöld fylkja og rfkis hafa
mótað, og menntað og þjálfað
vinnuafl sem lýtur ekki þeim
ströngu og háþróuðu vinnusamn-
ingum sem hafa mótast í
Hollywood á löngum tíma. Síðast
en ekki síst er það landið sem býð-
ur upp á fjölbreytilegt náttúrufar.
Sjónvarpssjóðurinn
Þorgerður heldur áfram: „Önn-
ur áhersla af minni hálfu hefur ver-
ið, einnig eins og ég hef áður sagt,
á að efla svokallaðan sjónvarpssjóð
til að styrkja innlenda dagskrár-
gerð."
Hér vísar ráðherrann til þess að
þriðja deildin fyrir utan leiknar
myndir og heimilda- og stutt-
myndir, var ekki fjármögnuð nema
að litlu leyti á sínum tíma. Inn til
Kvikmyndamiðstöðvar runnu eft-
irhreytur úr Menningarsjóði út-
varpsstöðva og hafa sjálfstæðir
framleiðendur lagt mikla áherslu á
það á síðustu árum að sjónvarps-
sjóður fyrir leikið efni yrði styktur
sérstaklega. Vflji ráðherrans er ljós
í þessu efni.
JHvenær verður nýr samn-
ingur frágenginn?
„Ég geri mér vonir um að þetta
verði ljóst innan ekki langs tíma -
legg í raun ríka áherslu á að svo
verði þótt ég þurfi eins og aðrir
ráðherrar að gæta aðhalds í efna-
hags- og fjármálum hins opinbera
enda snýst þetta í megindráttum
um það hversu langt hægt er að
teygja sig til viðbótar við núverandi
samning," segir ráðherrann.
Tvö önnur ráðuneyti komu að
gerð samningsins á sínum tíma:
fjármálaráðuneyti og viðskipta- og
iðnaðarráðuneyti. Nú er bara að
vona að kallfæri verði milli þeirra
Árna Mathiesen, Valgerðar Sverris-
dóttur og Þorgerðar Katrínar og
hennar manna. Væri gaman ef ráð-
herramir sæu sér fært að færa kvik-
myndagerðarmönnum og þjóð-
inni nýjan samning á Eddunni
þann 13. nóvember.
jakob@dv.is/pbb@dv.is
2. Mamma Mö rólar -
3. Mamma Mö rennir sér -
Jujja Wieskander
Jujja Wleskander
4. Eragon - Cristopher Paloni
5. Kalli og sælgætisgerðin - Roald Dahl
6. Leitln að Vermeer - Blue Balliett og Brett Helquist
7. Ungirín kvakar - Setberg
8. Helena Ballerína - Setberg
9. Bóbó bangsi: hér á ég heima - Setberg
10. Gosi: saga og púsluspil - Setberg
ERLENDAR BÆKUR - ALLIR FL0KKAR
1. The Broker - John Grisham J0HM
2. Going Postal - Terry Pratchett
3. The Mammoth Book of Sudoku
4. Northern Lights - Nora Roberts
5. State of Fear - Michael Crichton
6. Wolves eats dogs - Martin Cruz Smith
7. Sudoku - Tammy Seto '
8. Harry Potter and the Half-blood Prince - J.K. Rowling
9. The Closers - Michael Connelly
10. Brooklyn Follies - Paul Auster
ERLENDAR VASABROTSBÆKUR
1. The Broker - John Grisham J'jHU
2. Going Postal - Terry Pratchett
3. The Song of Susanna - Stephen King
4. State of Fear - Michael Crichton tÆ
5. Northern Lights - Nora Roberts
6. Black Wind - Clive Cussler
7. Alone - Lisa Gardner
8. Life Expectancy - Dean Koontz
9. Closers - Michael Connelly
10. Plot Against America - Philip Roth
Vasabókalistinn byggir á sölu í ofannefndum verslunum auk dreifingar í
aörar bókabúöir og stórmarkaöi á vegum Pennans/Blaöadreifmgar.
Endumýjun kvikmyndasamnings er í undirbúningi 1
menntamálaráðuneyti en hann var gerður til skamms tíma
fjnrir fáeinum árum og er samningstiminn liðinn. Samning-
urinn er grundvöllur í rekstri íjölda fyrirtækja í kvikmynda-
iðnaði sem telur hundruð starfa og skilar okkur alls kyns
myndefni: frá auglýsingum til leikinna mynda í fullri lengd.
Bóksölulistar
Listinn er gerður út frá
sölu dagana 11. október
til 17. október
í Bókabúðum Máls og
menningar, Eymunds-
son og Pennanum.
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
1. Myndin af pabba - saga Thelmu -
Gerður Kristný
2.109 japanskar Suduko - bók 1 -
3. Su Doku -
4.109 japanskar Suduko - bók 2 -
5. Við enda hringsins -
6. Þú ert það sem þú borðar -
7. Forðist okkur -
8. Matreiðslubók Nönnu -
9. Kjarval -
10. Hin mörgu andlit trúarbragðanna -
Gideon Greenspan
Wayne Gould
Gideon Greenspan
Tom Egeland
Gillian Keith
Hugleikur Dagsson
Nanna Rögnvaldardóttir
Ýmsir höfundar
Þórhallur Heimisson