Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGllR 20. OKTÓBER 2005
Síðasten ekkhsht JV
€
V,
Rétta myndin
Gangið ekki á grasinu. DV-mynd Stefán.
Skítafnykur á Héraði
Mikil skítalykt hefur leg-
ið yfir Egilsstöðum undan-
farna daga. Veður hefur ver-
ið stillt, rakt og fremur hlýtt
og nýta bændur í nágrenni
Egilsstaði sér þetta góða
veður til skítdreifingar.
Fnykurinn hefur fundist um
allan bæ og meðal annars
hafa krakkar í menntaskól-
anum kvartað yfir því að
i gmi fnykurinn trufli
Ll V. TH námið. Sömuleiðis
hafa farþegar sem hafa lent
á flugvellinum eystra haft
það á orði að Egilsstaðir séu
skítapleis. Þó að gera megi
ráð fyrir að því hafi frekar
verið hent fram í meira
gamni en alvöru. Samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofu
lítur allt út fyrir að íbúar Eg-
ilsstaða verði að búa við
skítafýluna, og háðsglósurn-
ar sem henni fylgir, eitthvað
áfram því spáð er fremur
hlýju og stilltu veðri næstu
daga. Heyrst hafa raddir þess
efnis að bæjaryfirvöld ættu
að blanda sér í málið og forða
þar með sínum ástkæru Eg-
ilsstöðum frá því að nafnbót-
in „Mesta skítapleis fslands"
festist á bænum.
Hvaðveist þú um
lceland
Airwaves
1. Hvar og hvenær var
fyrsta Airwaves-hátíðin
haldin?
2. Hvaða fyrirtæki stendur
á bak við hátíðina?
3- Hvað spila margar
hljómsveitir á hátíðinni í
ár?
4. Hver er aðaltónleika-
staður Airwaves?
5. Hvaða hljómsveit var
fyrst á svið hátíðarinnar í
ár?
Svör neðst á síðunni
Hvað segir
mamma?
fór nú reyndar ekki aö syngja fyrr en um
sextán ára aldur, þá meö Ný Danskri en ég
hefverið einlægur aðdáandi hans síðan
og fylgst meðþvlsem hann hefur verið að
gera,"segir Guðný Daníelsdóttir, móðir
Daníels Ágústs Haraldssonar tónlistar-
manns.„Ég er búin að fylgjast með fæð-
ingu plötunnar slðastliðin fimm ár og var
nú siðast I London að sjá hann spila. Ein-
lægni hefur alltaf verið kjarninn I okkar
samskiptum og við höfum ávallt verið
samstíga nema að ég var ekki hlynnt þvl
þegar hann fór I Eurovision, þá leist mér
ekki á kompaníið semhannvar með. "
Daniel Ágúst Haraldsson söng sig inn i
hjörtu okkar með Ný Danskri fyrir
mörgum árum. Hann starfaði svo með
hljómsveitinni GusGus um alllangt
skeið og kemur nú fram á sjónarsviðið
með fyrstu sólóplötu sína sem hefur
fengið prýðilegar viðtökur til þessa.
„Ég hef gríðarlegan áhuga á skák
þó að ég kunni varla sjálfur að tefla
og lék af mér drottningunni á móti
Hrafni Jökulssyni síðustu helgi,"
segir séra Gunnþór Ingason, sókn-
arprestur í Hafnarfjarðarkirkju.
Gunnþór ber veg og vanda af skák-
hátíð í kirkjunni sem hefst á laugar-
daginn með Strandbergsmótinu.
Þar munu krakkar 15 ára og yngri
tefla við skákmenn eldri en 60 ára.
Öflugt skákstarf er í Hafnarfjarðar-
kirkju þar sem bópur eldri borgara
hittist einu sinni í viku og teflir.
„Þetta er stór hópur, hátt í 20
manns, sem kemur saman einu
sinni í viku í safnaðarheimilinu
Strandbergi. Þeir kalla sig Riddarana
og eru tii fyrirmyndar í sóknarstarf-
inu," segir Gunnþór. „Sjálfur varð ég
heillaður af skákinni þegar ég sá
hvað Hrókurinn hefur gert hér á
landi og víðar. Þó að maður tefli ekki
sjálfur _er svo sannarlega hægt að
nýta skákina til góðs."
Mótið á laugardaginn er sam-
starfsverkefni kirkjunnar, Hróks-
ins, Riddaranna og hafnfirsku
skákfélaganna Kátu biskupanna
og skákdeildar Hauka. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra mun leika fyrsta
leiknum á mótinu og er þátttaka
ókeypis þó að glæsilegir vinning-
ar séu í boði, ferðir til Færeyja og
fallegar bækur.
Séra Gunnþór segir svo að skák-
hátíðinni muni ljúka á sunnudaginn
þegar boðað verður til skákmessu
klukkan elllefu þar sem Guðmundur
G. Þórarinsson prédikar. „Svo verð-
ur keppendum á mótinu boðið til
hádegisverðar og verðlaunaafhend-
ingar þar sem Friðrik Ólafsson stór-
meistari mun tefla fjöltefli við sigur-
vegarana og aðra gesti."
Raisa sló í gegn í Reykjavík
Gamla myndin
Bílalestin á Ægisgarði var til-
komumikil. Stefnan tekin á Höfða
þar sem forseti Bandarikjanna beið.
Mikhail Gorbachev, þáverandi leið-
togi Sovétríkjanna, bjó í stórri
snekkju sem lá við festar í Reykjavík-
urhöfh meðan á leiðtogafundinum
fræga stóð í Reykjavík á haustdögum
1986. Ronald Reagan gegn Gor-
bachev. Það andaði köldu til að byrja
með.
Snekkju Sovétíeiðtogans var siglt
gagngert til landsins vegna fundarins
en Reagan bjó í bandaríska sendiráð-
inu við Laufásveg. Heilu hverfunum
var lokað og þá sérstaklega í
námunda við Gorbachev. Likt og
hann væri vanari slíkum traktering-
um.
Bflalestin sem sést á myndinni og
ekur hægt fram hjá þar sem
Hamborgarabúlla
Tómasar stendur nú
samanstendur af rúss-
neskum eðalvögn-
um; líklega Volgum
sem þóttu góðar á
sinni tíð þó eilítið
hastar væru. í aftur-
sætinu sitja Gorbachev
og Raisa eiginkona hans,
sem vakti mikla athygli í Reykjavík
þessa daga og þá ekki síst fyrir klæða-
burð sinn en Raisa var í fallegri og
dýrari pelsum en áður höfðu sést í
höfuðstað íslendinga.
Raisa varð á sinn sérstaka hátt
stjama leiðtogafundarins; sú sem
fféttamenn litu til þegar vantaði gott
efni til að senda heim í heimspress-
Rússnesk bílalest við
Reykjavíkurhöfn laftursæt-
unum sitja Gorbachev, þáver-
andi leiðtogi Sovétríkjanna,
una. Og hún sveik þá ekki.
Flestum var þó ljóst að ekki var
samkomulagið upp á það besta hjá
þeim hjónakomum, Mikhail og
Raisu. En Raisa var flott í Reykjavík
1986. Það mátti hún eiga.
GOTT hjá Siv Friðleifsdóttur að ná
sér eftir krossbandsaðgerð á vinstra
hné á aðeins sex mánuðum.
Svör viö spurningum:
1. f Flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli árið 1999.2. Hr. Ör-
lygur, einnig kallað Mr. Destiny. 3.132 hljómsveitir, auk
plötusnúða og annarra. 4. Listasafn Reykjavíkur í Hafn-
arhúsinu. 5. Cynic Guru. Hún steig á svið Nasa klukkan
19.30 (gærkvöldi.
Krossgátan
Lárétt: 1 gripahús,4
hitta, 7 geil, 8 æviskeið,
10 ró, 12 stúlka, 13 lög-
un, 14 matur, 15 eyði, 16
hár, 18 nöldur,21 úrillu,
22 hjálp, 23 muldra.
Lóðrétt: 1 frag,2 beiðni,
3 glámskyggn,4far, 5
fas, 6 tóm, 9 rófa, 11 úr-
ræðagóð, 16 andi, 17
vot, 19 viðkvæm,20
mánuður.
Lausn á krossgátu ,
eo6 07 tune 6 L >|QJ z t j?s
91 '6npej 11 'uo>|s 6 'pne 9 'jpæ g 'n6uyAajq y 'uuAsumje>|s £ '>jS9 z 'æJJ L :MpJC91
e|ujn £Z'u>|!| ZZ'n6nuo \z '66eu 81 'Aps
9 L '|os s t 'ipæj y 1 ujjoj £ 1 'Asui z l 'pj|3 0 L 'e>|sse 8 'pje>|s / 'ejæq y 'sofj t uiajeg
MARKAÐURINN
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA
Mest lesna
viðskiptablaðið
«0
E
|
Q.
m
í-
. c
i
o
LD
MAW<AÐLIRINN.^*
m.
AUGLÝSINGASIMI
550 5000