Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Blaðsíða 24
?firK W8ÖT)\0 \ f flUn&QUT?.Ö?
24 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005
1
WVimioH
Heimilið DV
Mummi þjöl leysirSteina sleggju afí bili sem þúsundþjalasmiður DV
og reddar málunum fyrir lesendur. Hann tekur á móti ábendingum og
svarar spurningum lesenda í gegnum netfangið heimiii@dv.is.
Allt klárt Mummi búinn að
kveikja á diódunum. Hver
Ijóspunkturer ein díóða.
Birta á bak við sófa
„Þetta er eitthvað sem
þu myndir ekki gera
med venjulega peru því
þá myndi kvikna i sóf-
anum, 'segir Mummi.
Ertu með góða ábendingu?
Sendu okkur tölvubréfá heimili@dv.is ef
þú ert með ábendingar um skemmtilegt
viöfangsefni á heimilissíöur DV.
Svona líta þær
ut Hægt er að fa
dióóui iflestum
rafmagnsvöru
verslunum.Þær
koma ípakka
með utskýring-
um. Þessar eru
fastar saman a
einu bretti.
Lítið mál Þlúsinn feriplusinn og mínusinn i
minusinn. Annars cr best að lesa leiðbeiningarnar
sem fylgja með.,.Muna bara að nota aldrei skæri
þegar rafmagn erannars vegar," segir Mummi þjöl.
Fallegur
og öruggur
í dag ætlar Mummi að kenna okkur
að föndra skemmtilega ljósgjafa úr díóð-
um en díóður eru meðal annars hentug-
ar í jólaskraut. „Það er til mikið úrval af
fínum díóðum sem gefa frá sér það mik-
ið ljós að hreinlega er hægt
að nota þær í lampa sem
endast inun lengur, taka lít-
inn straum og hitna ekki
nema brot af því sem peran
gerir," segir Mummi og bætir
við að díóður séu alltaf að verða ódýrari.
„Þær fást í öllum rafmagnsvöruverslun-
um og þó þær séu dýrari en perurnar
duga þær lengur svo nú getur maður
leyft sér að föndra með þær. Hægt er að
fá tengi sem passar við þá spennubreyta sem eiga við svo fólk þurfi
ekki að standa í einhverju veseni," segir Mummi og bætir við að
dfóðurnar komi í mörgum litum og að þær eyði afar litlu rafmagni.
Kósí heimlli að hausti
Haustinu fylgir óneitanlega
rómantík. Hægt er að skapa enn
meiri rómantík með því að fegra
heimilið með fallegum hlutum.
Við Laugaveginn eru margar
skemmtilegar búðir sem selja
ýmiss konar fallega hluti. 1928
hefur fyrir löngu skapað sér sess
með skemmtilega róm-
antískum hlutum. Kisan
er hins vegar glænýr val-
kostur. I Kisunni er að
finna fallega hluti frá París og ’
er úrvalið ótrúlega glæsilegt en
það er hægt að skoða á heima-
síðunni tse-tse.com.
Utvarpið goða Eidgam
alt útvarp sem er i miklu
uppáhaldi hjá Mariu.
Maríu Reyndal, sem skrifar og leikur í grínþáttunum
Stelpurnar, líður best í eldhúsinu heima hjá sér. María
býr í miðbæ Reykjavíkur þar sem hún hefur gott útsýni
yfir borgina. DV fékk að kíkja í heimsókn.
„Eldhúsið er minn uppáhalds-
staður enda sit ég þar við tölvuna
og bý til grín," segir María Reyn-
dal sem skrifar og leikur í grín-
þáttunum Stelpurnar. María segir
að hún myndi svo sem ekkert hafa
á móti því að hafa skrifstofu en
þar sem það sé ekki á boðstólnum
láti hún eldhúsið nægja. „Eldhús-
ið er líka flennistórt og hér er bjart
oggott," segir hún.
Spegill með tilfinningalegt
gildi
Þegar María er beðin um að
velja þrjá hluti sem hún hafi í
uppáhaldi nefnir hún fyrst falleg-
an mósaíkspegil. „Við bjuggum í
London í mörg ár og þessi spegill,
ásamt öllum myndunum okkar,
týndist í fluginu heim en skilaði
sér fyrir stuttu. Spegillinn var
fyrsta gjöfin frá manninum mín-
um svo fögnuðurinn var mikill
þegar ég fékk hann aftur enda sér-
stakur spegill sem hefur tilfinn-
ingalegt gildi."
Ekki mikið fyrir nýjustu
tækni
María segist ekki fylgjast mikið
með nýjustu tækni í heimilistækj-
um. Einn af hennar uppáhalds-
hlutum er þó eldgamalt útvarp
sem hún veit ekki hvernig rataði
inn á heimilið. „Við eigum lítið af
græjum enda lítið fyrir tækninýj-
ungar. Auk geislaspilara eigum
við þetta útvarp og þó sándið sé
ekki upp á marga fiska er lúkkið
afár sérstakt og ekki hægt að fá
eins í verslunum í dag." Þriðji og
síðasti hluturinn sem María nefn-
ir er mynd af kívífuglum en hana
keypti hún af maóríum á markaði
á Nýja-Sjálandi. „Við fórum til
Nýja-Sjálands í janúar og komum
ekki heim fyrr en í sumar. Flestu
af smádótinu okkar var því pakk-
að ofan í kassa þar sem það er enn
enda sakna ég þess ekkert."
Mikill kontrast í hverfinu
íbúð Maríu er f miðbæ Reykja-
víkur en þar hefur fjölskyldan
búið síðustu árin. „Mér líkar mjög
vel hérna í miðbænum og við
erum með fi'nt útsýni yfir nýju
blokkimar. Bakhúsið er að vfsu
hryllilegur hjallur en aftan við það
sjást blokkimar. Þetta er ákveðinn
kontrast sem ég hef mjög gaman
af enda lýsandi fyrir þetta hverfi.
Uppbyggingin er mikil en það
mætti klára ýmsa hluti, líkt og að
rífa þennan ljóta skúr," segir Mar-
ía að lokum.
indiana@dv.is
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöfiur
s- oq söluaðili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Margir ofmetnast þegar kemur að því sem
gera þarf á heimilinu. Hugsaðu aðeins málið
áður en þú ræðst í að endumýja rafmagnið.
Ættirðu að gera það sjálfur? Verður það ódýrara
þegar uppi er staðið? Svarið liggur í því sem
þarf að gera, þinni reynslu, hvaða verkfæri þú
átt, frítíma og dugnaði. Fáðu ffekar fagmann í
verkefnið ef það er hættulegt, erfitt eða ef mis-
tök við framkvæmdina geta verið dýrkeypt.
Sum verk em einfaldlega ekki áhættunnar virði.
Ættirðu að qera