Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Blaðsíða 21
jyv Sport FÖSTUDAGUR21. OKTÓBER 2005 21 Pálmi og Þórð- urtil FH? Samkvæmt heim- ildum DVmunu knattspymumenn- imir Pálmi Rafn Pálmason og Þórður Guðjónsson báðir vera á leiðinni til FH. Pálmi Rafn er U-21 árs landsliðs- maður sem hefur undanfar- ið leikið með KA en hann er upprunalega Húsvíkingur. Þórður hefur hug á að snúa aftur heim eftir áralanga dvöl í atvinnumennsku en hann liefur lítið fengið að spila með sínum liðum, svo sem Stoke, Las Paimas og Bochum, undanfarin ár. 43 sf ig á 37 mínútum 17 ára miðherji Keflavíkur, María Ben Erlingsdóttir, hefur varla brennt af skoti í fyrstu tveimur leikjum Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna. María Ben skoraði 28 stig á 19 mínútum í 94 stiga sigri á KR á miðvikudaginn og hef- ur skorað 43 stig á þeim 37 mínútum sem hún hefur spilað það sem af er deild- inni. María Ben hefur nýtt 19 af 22 skotum sínum (86%) utan af vefli í þessum sigrum á ÍS og KR og öU fimm víti hennar hafa farið rétta leíð. María er með 21,5 stig að meðaltaU í þessum tveimur leikjum og er stiga- hæsd leikmaður Keflavíkur- Uðsins til þessa. Jordan viður- kennirveð- málavandann Einn besti ef ekki aUra besti körfuboltamaður sögunnar, Michael Jor- dan, hefur viðurkennt að hann hafi verið vit- laus þegar kom að veð- málavanda sínum. Jor- dan segir þó jafriframt að hann hafi aldrei sett fjölskylduna eða lífs- gæði sfn í hættu þegar kom að þessum veðmálum sín- um. Jordan kemur fram í viðtaU í fréttaþættinum 60 mínútum sem sýndur verður á CBS á sunnudaginn. Jord- an vann sex NBA-titía á sín- um tíma og sótti einnig í veðmálin tfl að svala keppn- isþorsta sínum. Jordan er þessa dagana að kynna nýja bók sem heitir „Driven from Within" sem þýða má „Beint ffá hjartanu". Allan Borgvardt gekk til liðs við Viking í Stafangri í Noregi frá íslandsmeisturum FH skömmu áður en tímabilinu lauk hér heima. Hann hefur þó lítið fengið að spreyta sig á sínum tíma og hefur aldrei verið í byrjunarliði liðsins. Hann getur þó huggað sig við að hafa verið valinn leikmaður ársins hér heima og segir hann í samtali við DV Sport að það hafi komið honum þægilega á óvart. Allan Borgvardt hélt til Noregs seinni part ágúst, þegar FH-ingar voru búnir að tryggja sér íslandsmeistara- titilinn. Hann hafði þá skorað þrettán mörk á ís- landsmótinu og gerði það í fimmtán leikjum. Hann var næstmarkahæsti maður mótsins og var valinn sá besti af DV Sport sem og leikmönnum Landsbankadeildarinnar. Dvölin í Noregi hefur þó valdið nokkrum vonbrigðum. „Ég hef ekki fengið að spila mikið," sagði Allan við DV Sport. „Ég hef einungis setið á bekknum í þessum fimm leikjum sem ég hef teldð þátt í og fengið aðeins nokkr- ar mínútur inni á vellinum. Þær eru eklci neitt sérstaklega mikils virði." Allan samdi við Norðmennina til þriggja mánaða í sumar, eða til loka tímabilsins sem verða um þarnæstu helgi. „Ég veit ekki hvað gerist þegar tímabilið er búið. Samningurinn rennur út 1. nóv- ember þannig að þetta kemur allt í Ijós. Það gæti svo sem vel komið til greina af minni hálfu að vera hérna f eitt ár til viðbótar, en ég verð að bíða og sjá hvað þeir eru tilbúnir að bjóða mér." Allan hefur leikið á íslandi und- anfarin þrjú ár og verið valinn maður ís- landsmóts-. ins í tvö skipti, árin 2003 og 2005. Hann átti við meiðsli að stríða stóran hluta tímabilsins árið 2004 og gat því ekki beitt sér að fullu þá. En það hefur farið fram hjá fáum hér á landi hveru góður leikmaður Allan Borgvardt er og í raun ótrúlegt að 25 ára er- lendur leik- maður með hæfileika spili jafn lengi og íslandi og raun hefur borið vitni. Hann segir þó vonlítið að hann komi til íslands aftur næsta sumar. „Það er frekar lítill möguleiki á því en maður á svo sem aldrei að segja aldrei. Ég hef áður sagt að ég komi ekki en það rættist ekki og því borgar það sig ekki að útiloka neitt. En ég hef áður sagt að ég muni koma einhvern tímann aftur þar sem ég naut mín virkilega vel að spila þar." Allan segir að sér hafi komið það þægilega á óvart að hafa verið valinn leikmaður ársins á loka- hófi KSÍ. „Ég bjóst ekki við því að vinna í ár en Éetta gladdi mig auðvitað mik- g held að síðasta tímabil hafi verið eitt af mínu bestu, enda var liðið gott og vann næstum alla leiki sumarsins í deildinni. Einu vonbrigðin voru að detta úr bikar- keppninni fyrir Fram og komast ekki lengra í forkeppni Meistara- deildarinnar. En að öllu öðru leyti var tímabilið frábært." Spurður um hvort hann sé með „heimþrá" hlær Allan og minnir blaðamann á að hann sé jú fiú Danmörku. „En þetta er nokkuð skondið. Ég og kærastan mín vor- um að tala um það um daginn að við hefðum meira að sækja á ís- landi nú en til dæmis í Danmörku eða Svíþjóð. Þetta var mjög sér- stakur tími fyrir okkur bæði enda líkaði okkur vistin vel.“ eirikurst&dv.is FÆR FÁTÆKIFÆRI Allan Borgvardt hefur fengið fá tækifæri með Viking í norsku úrvalsdeildinni og aðeins verið inni á (53 mínútur fyrstu sex vikur sínar í Stafangri. Allan á þannig enn eftir að ná þeim mínútufjölda sem leið á milli þess að hann bjó til mark fyrir FH í Landsbankadeildinni í sumar. Fyrstu fimm leikir Allans með Viking í Noregi: 10.9 Viking-Rosenborg 3-2 inn á 77. mínútu 18.9 Odd Grenland-Viking 1-0 inn á 85. mínútu 25.9 Viking-Ham-Kam 1-3 inn á 76. mínútu 03.10 Brann-Viking 2-1 inn á 86. mínútu 16.10 Viking-Válerenga 0-0 inn á 78. mínútu Samantekt: Leikir 5 Mínútur spilaðar 53 Mörk skoruð 0 Stoðsendingar 0 Árangur Allan Borgvardt með FH 2005: Leikir: 15 Mínúturspilaðar 1 323 Möi 1 13 | Mínúturmilli marka: 88,2 Stoðsendingar: 6 Fiskuð vlti: Mínútur milli skapaðra marka: 3»' HH EnSHÍ% BOL Tl N Splunkunýr spurningaþáttur um fótbolta, fótbolta og meiri fótbolta. SPARK er óhefðbundin spurningaþáttur um fótbolta sem stjórnað er af Stefáni Pálssyni sem jafnframt er höfundur spurninga. Honum til aðstoðar er stuðboltinn Þórhallur Dan, knattspyrnukappi með meiru. Frumsýndur á SKJÁEINUM og Enska Boltanum 21. október, ki. 20.00. © SKJÁRE/NN Laugardaga kl. 22.30 • Sunnudaga kl. 22.30 • Föstudaga kl. 19.30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.