Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1938, Page 38

Símablaðið - 01.11.1938, Page 38
68 S 1 M A B L A Ð I Ð yfirmaður teldi sér það vansæmd, ef hann eða félagar hans sniðgengju eða brytu á einn eða annan hátt lög og' reglur félagsins, þá fvrst skipar F.Í.S. það öndvegi, sem því ber; þá nýtur það þeirrar virðingar, sem það á skil- ið, þá fyrst er það simastofnuninni sem starfsmönnum símans til heilla og velfarnaðar. Félagið hefir altaf liaft þá gæfu til að bera, að eiga ötula og góða menn, sem hafa gert sitt ítr- asta til að vekja og glæða starfshug- ann í félagsskapnum, sem stöðugt liafa haldið merki F.I.S. á lofti, enda er það svo, að það, sem áunnist hefir, er fvrir þrautseigju og starfshæfileika þessara manna, en sem varla hefir ver- ið þakkað með öðru en efasemdum og áhugaleysi á því, sem þeir liafa verið að vekja máls á og vinna að. Þótt saga þessara manna viðvíkjandi félagsmálunum sé ekki tekin til með- ferðar nú, þá mun það án efa verða gert síðar. Síðastliðið sumar skeði sá stórviðburður í sögu félagsins, að landsfundur var haldinn i Reykjavík, sá fyrsti frá stofnun félagsins, sem á eftir, án efa, að marka djúp spor í sögu þess, og eftir þeim velvilja að dæma, sem kom fram frá símastjórn- arinnar hálfu, að greiða sem best fyr- ir að fundurinn gæti orðið, þá má mik- ils vænta að hún snúist vel við þeim málaleitunum, sem á fundinum voru samþyktar. Nú hefir stjórnin eða nefndirnar haft þau mál til meðferð- ar alt frá því fundurinn var haldinn í júní í sumar og mætti nú fara að húast við að árangurinn færi að sjást. Væri ekkerl úr vegi, að hlaðið flytti fregnir í hvert sinn, sem það kemur út, um gang málanna og viðhorf þeirra. Nú er þetta ár hrátt á enda runnið, með alt það, sem það hafði upp á að bjóða, sínar sorgir, gleði, þrengingar og erfiðleika. Enn á ný stöndum við á tímamótum með giiægð vona og' óska um að hið komandi ár verði ríkt af gæfu og gengi, að það heri í skauti sér hetri möguleika fyr- ir land og þjóð, hetri afkomu, meira sólskin og sumar, meiri yl og hræðra- Jag. Ein af mínum óskum er að F.Í.S. leysi svo vel úr vandamálum sínum, að allir ineg'i vel við una, að allir með- limirnir horfi til heildarinnar með þakklæti og trausti og' vilji af g'óðum liug vera eitt af máttarstoðum þess, símanum sem einstaklingnum til gagns og framfara. Með hestu óskum og vonum til starfsbræðranna fjær og nær. 01. Arnason. Prjónavörur Fjölbreytt úrval. íslenskt efni. - íslensk vinna. ULLARVERKSMIÐJAN FRAMTlÐIN Sími: 3061. Frakkastíg' 8.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.