Símablaðið - 01.11.1938, Blaðsíða 48
78
S í M A H L ,1 Ð l L
3. nóv. s.l. voru liðin 25 ár frá stofnsetn-
ingu hins danska póstsafns. f því tilefni var
gefið út vandað minningarrit. f Dansk Post
og Telegraftidende er þess getið, að byrjað
hafi verið í fyrstu að safna munum af ein-
stakling innan stofnunarinnar, og hafi hann
bjargað mörgum minjum frá eyðileggingu.
Nú sé óbætanlegt það tjón, sem hlotist hafi
af því, hve stjórn póstmálanna lét sig þétta
mál litlu skifta lengi vel. Nú er henni leg-
ið á hálsi fyrir það.
Hvenær verður hafist handa hér?
*
A undan samtíðinni.
Fyrir nákvæmlega 61 ári síðan stóð eftir-
farandi frásögn í dagblaði einu útgefnu í
Boston i Ameríku:
Maður að nafni Joshua Coppersmith, 46
ára að aldri, hefir verið tekinn fastur í New
York. Var hann sakaður um að hafa gjört
tilraunir til þess að hafa peninga út úr auð-
trúa fólki, sem hann sagðist ætla að nota
til þess að koma upp tæki, er gerði mönn-
um mögulegt að tala í mikilli fjarlægð, eftir
málmþræði, þannig að greinilega heyrðist.
Maðurinn kallar áhaldið „talsíma“, auðvitað
til þess að stæla nafnið ritsími. Sérfróðir
menn í þessum efnum vita vel, að ómögu-
legt er að láta mannsröddina berast með
málmþræði, — og þó það væri mögulegt,
myndi það á engan hátt hafa neina „prakt-
iska“ þýðingu. Maður samgleðst yfirvöldun-
um með handtöku þessa svikara, og vonar að
hann fái eftirminnilega hegningu til aðvör-
unar öllum, sem gera tilraun til að auðgast
á kostnað meðbræðra sinna.“
*
Frá starfsbræðrum okkar í Englandi.
Eftir langvarandi baráttu enskra símritara
fyrir hættum kjörum, hefir nú verið skip-
aður gerðardómur, þar sem rædd eru launa-
kjör þeirra og vinnutími. Hafa þeir verið
all-illa settir, langur vinnutími og lítil frí,
enda hafa afleiðingarnar ekki leyní sér.
Vinnutími þeirra hefir verið yfir 50 tím-
ar vikulega og sumarfrí lengst 14 dagar, og
niður í 8 daga. Aðaláherslu leggja þeir á
stytting vinnutímans í 40 tíma vinnuviku
sem hámark og 3 vikna sumarfrí handa
öllum.
Af þessum langa vinnutíma og litlu frium
leiddi mikil veikindi og veikan starfsþrólt,
Rikisstjórnin skipaði nefnd til að rannsaka
þetta, og liggja nú fyrir tillögur nefndar-
innar.
Nefndin leggur til, að á ýmsum stöðum á
Englandi verði reist Hressingarhæli handa
símriturunum, ekki til að vera þar í sum-
arfrium, heldur fyrir þá, sem haldnir eru
ofþreytu, og geta notið þar fullkominnar
hvíldar og hressingar alt að (i vikum eða
lengur, þar til þeir eru búnir að ná full-
um starfsþrótti. Hressingarhæli þessi eiga að
vera eftir nýjustu tísku, með sundlaugum,
cricket- og knattspyrnuvöllum o. s. frv. ÖIl
dvöl á hressingarhælum þessuin verður sím-
riturunum að kostnaðarlausu.
Af framangreindu sést ótvírætt hvers virði
þau hlunnindi eru, sem félagar F.Í.S. fengu
með starfsmannareglunum í auknum fríum
vetur og sumar, og myndi okkur finnast
þessi úrræði vera að byrja á öfugum enda.
SlœvQMdm S- Ste.(.áKsjo.nah
Laugavegi 22 A. — Reykjavík. — Sími: 3-6-2-8.
Hefiv altaf fyrirliggjandi fallegan, góðan og ódýran Skófatnað.
Póstkröfur sendar um alt land.— Biðjið kunningja yðar í höf-
uðstaðnum að velja þá, og þeir koma með næstu ferð.