Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1940, Page 19

Símablaðið - 01.01.1940, Page 19
S i M A R L A Ð 1 Ð 3 Stéttin Háttvirtu gestir og félagar! ÞiS megið ekki telja það stærilæti, þó ég segi, að félag símamannastéttarinnar eigi sér æSi viðburSaríka sögu, of viSburða- ríka til þess, að hún verði rakin í stuttri frásögn. Þið þurfið þá heldur ekki að kviða því, að sitja undir upptalningu ártala og af- reksverka; hér er ekki timi né tækifæri til þess. Þær fáu mínútur, sem mér eru ætlaðar, mun ég nota til að fara nokkr- um orðum um stéttina og viðhorf hennar til starfsins og stofnunarinnar. í lífi stéttarinnar hafa skipst á skyn og skúrir. Hún hefur þurft að berjast fyrir sinni tilveru, — sínum lifskjörum. Hún hefir átt við ramman reip að draga, eins og aðrar stéttir, — við fátækt þjóðfé- lagsins. En hún hefur átt miklum skilningi að fagna, einkum hjá stjórn símans, og velvild þeirra, sem hún hefur mest átt saman við að sælda. Það hefur verið henni mikil stoð og styrkur. En hún hefur einnig átt í sjálfri sér þann þrótt æskunnar og þá lífsgleði, sem er sig- urvísasta vopnið i allri lífsbaráttu einstak- linga og félaga. Þetta út af fyrir sig er ekkert undarlegt. Stéttin er ung. Starfsfólk hennar er ungt. Aðeins á örfáum einstaklingum er hárið byrjað að þynnast eða grána. En þessir fáu einstaklingar eru enn ungir i anda, af því að þeir lifa og starfa í hópi æskunnar. Menn koma og menn fara. Ungar stúlkur og ungir piltar koma eins og nýliðar, með sitt æskufjör og þrótt. — Margir þessara lcven-nýliða falla fyr en var- ir fyrir örvahríð hins beinskeytta Amors, og eru numdir á brott. Aðrar bregða fyrir sig skildi. Kjósa held- ur að starfa sem sjálfstæðir einstaklingar, en að kasta sér út í búskaparbasl og barnauppeldi. Ungu mennirnir koma með fangið fult af vonum. Ræða flutt á 25 ára afmælisfagnaði P.Í.S. að Hótel Borg 2. mars 1940. af form. félagsins, A. G. Þormar. Sumum verður að von sinni, öðrum ekki. í símastofnuninni er ekki olnbogarúm fyr- ir alla þá, sem áfram vilja, fremur en ann- arsstaoar í þjóðfélagi okkar. Þær stöður, innan simastofnunarinnar, sem telja má eft- irsóknarverðar umfram aðrar, eru fáar, og skipaðar tiltölulega ungum mönnum. Viðhorf flestra verður því það, að langt er í land að öðru marki en þvi, að verða trúr og nýtur starfsmaður. Símastofnunin er einskonar heimili, — annað heimili okkar flestra. Um tugi ára vinnum við með sama fólk- inu dag eftir dag, undir sama þaki. Óhjá- kvæmilega kynnist þetta fólk betur en við flest önnur lífsstörf, og bindst traustari vináttuböndum. Og þrátt fyrir hin mörgu stof nu n i n og misjöfnu sjónarmið, sem óhjákvæmilega hljóta að vera til staðar i svo fjölbreyttum hópi, hefur hin nána samvinna og kynning verið sú kjölfesta, sem jafnan hefur bjarg- að skútunni frá kollsiglingu. Frá kyrlátum, útsláttalausum heimilum kemur flest þetta fólk til vinnu. — Um leið er það komið inn í nýjan heim. Það er komið á vald hins vilta og taumlausa hraða, þar sem hverja taug verður að spenna til hins ítrasta, — hvert handtak verður að miðast við minsta brot úr tima, — þar sem reyna verður á þolinmæðina gagnvart mörg- um viðskiftavininum, sem virðist vera í kapphlaupi við lifið sjálft. Þetta er símamannastéttin. Og þetta er hennar annað heimili, — skemtilegt, fyrir kynni af góðu fólki, með sameiginleg áhugamál og vilja til að sam- ræma hin oft óliku sjónarmið. — En heim- ili, sem er i þjóðleið, — þjóðbraut hins nýja, eirðarlausa tíma, — þar sem gestkvæmt er, og oft örðugt að gera gestunum til hæfis. En það er líka stundum erfitt að gera okkur til hæfis.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.