Símablaðið - 01.01.1940, Qupperneq 39
SÍMABLAÐIÐ
23
Hátíðahöldin
í tilefni af 25 ára afmæli F. í. S.
Félagið mintist þessa afmælis síns, syo sem hæfði, og með almennari þátttöku félag-
anna en nokkru sinni áður. — Hér fer á eftir stutt lýsing á hátiðahöldunum.
Afmælisfundurinn 27. febr. 1940.
Á afmælisdaginn, 27. febrúar, var haldinn
fundur í félaginu. Var það framhaldsaðal-
fundur. Þangað var boðinn fyrsti formaður
félagsins, Otto B. Arnar, og stjórnaði hann
honum, meðan minst var 25 ára afmælisins.
En það var gert með því, að fundarmenn
sungu „Hvað er svo glatt“, og síðan sagði
formaður félagsins, Andrés G. Þormar, sögu
þess í stórum dráttum. Á fundinn barst
fjöldi heillaskeyta, og falleg blómakarfa frá
dætrum Gísla sál. Ólafsonar.
Á fundinum mættu um 90 félagar, og er
það lang fjölmennasti fundur, sem haldinn
hefur verið í félaginu. Var hann haldinn í
Iðnó.
Aðalhátíðahöldin fóru fram laugardaginn 2.
mars. í Reykjavík var samsæli að Hótel Borg
og voru þátttakendur um 300, þar af um 100
af starfsfólki símans. Ræður fluttu þar, og
í þessari röð: Andrés G. Þormar: Stéttin og
stofnunin. — Guðm. Jóhannesson: Minni ís-
lands, og voru það dagskrárræður. Auk
þeirra töluðu Guðm. Sigmundsson, Theodór
Lilliendahl, Póst- og símamálasjóri Guðm.
Hlíðdal, Garðar Gíslason stórkaupmaður,
Valtýr Stefánsson ritstjóri, Ottó B. Arnar og
Kristján Guðlaugsson ritstjóri. Fleiri komust
ekki að. Kvartett söng, Brynjólfur Jóhannes-
son leikari skemti í gerfi gamals símastjóra,
og frk. Hallbjörg Bjarnadóttir söng. Borð-
haldið stóð til kl. að ganga 1, og dansinn
til kl. 5 um morguninn.
Gestir félagsins voru: Póst- og símamála-
stjóri, útvarpsstjóri, ritstjórar dagblaðanna,
Garðar Gíslason stórkaupm., frú Jenny For-
berg, C. Björnæs, Ottó B. Arnar, formenn
Póstmannafélagsins, Starfsmannafélags Rík-
isútvarpsins og Fél. ísl. línumanna. Borð-