Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1940, Page 47

Símablaðið - 01.01.1940, Page 47
SÍMABLAÐIÐ 31 Án efa eiga talsímarnir íslensku engu öðru meira að þakka framgang sinn en þessum ritsímasamningum, sem ábyggilega hafa liraðað talsíma- málunum hér um mörg ár. II. Eftir að skipst hafði á logn og stormar í símamálinu í 15 ár, heimtu íslendingar 1906 hinn þrítuga talsíma og hinn áttræða, ritsíma samtímis. Það var eldri bróðirinn, sem dró þann yngri að landi, en reyfarstranginn, loftskeytatæknin, var gerð afturreka um stundarsakir. Nú nutu þess þrír landsfjórðungar, að Reykjavík lá ekki þar, sem Ingólfur liafði sína fyrstu vetrarsetu á þessu landi. Byrjunin að talsímakerfi íslands — yfir 600 km. á einu sumri, — var myndarleg. Og allir virtust sammála um að lialda símalögnunum áfram. Strax á næsta ári voru staurarnir keyptir í Vestfjarðalínuna. Þróunin var næstiim jafn eðlileg og hávaðalaus eins og vöxtur skógartrés, og' áður en varði, var Landssíminn orðinn „feikna stórt tré“, með stofnlínum milli fjórð- unganna og fjölda greina til kauptúna, verstöðva og' í sveitir. Fyrstu símarnir i sveit voru inn- skotsstöðvar á stofnlínunum milli kaupstaða og kauptúna. Flestar höfðu þessar stöðvar tvíþætt hlutverk. Annars vegar voru þær nauðsynlegar vegna sírnans sjálfs, til eftirlits og línu- prófana, á hinn bóginn mynduðu þær fyrstu samhandsleiðirnar milli sveita og bæja og milli sveitanna innbyrðis. Stöðvar þessar hafa verið mjög eftir- sótt þægindi í hinum símlausu sveitum, og stjórn Landssímans hefir altaf geng- ið á fremstu nöf með fjölda þeirra á langlínunum. Af innskotsstöðvum á langlínum er of jafnvont og van, þar sem mjög er .hætt við að talgæði og notagildi langlínanna bíði hnekki, ef stöðvafjöldinn er nokkur að ráði. Þegar kauptúnin og útvegsplássin voru öll komin á símans greinar, kom röðin að ýmsum sveitum, sem fengu landssímaálmur og aukalínur. Á seinni árum hafa einnig í allmörgum sveitum verið lagðar einkalínur með ríkisstyrk samkv. sérstökum lögum (Nr. 11, 14. júní 1929). Þótt allmikið liafi verið gert í síma- málum fyrir sveitir landsins og' einna mest á síðustu árum, er lítið meir en byrjunin búin. Sumum mun ef til vill finnast, að ckki þurfi annað en að halda áfram sömu braut með þolinmæði. Öðrum finst, að breyta eigi um að- ferðir. lútbreiðsla símans með landssímalin- um var ágæt aðferð til að ldjúfa sím- anuin braut inn á nýjar slóðir, en að koma símanum á hvern bæ er aldrei bægt með landssímalíiium. Þvert á móti geta landssímastöðvar jafnvel tafið það, að sími komist á alla bæi sveitarinnar. í fljótu bragði virðast einkasímalög- in frá 1929 vera ákjósanlegur grundvöll- ur fyrir simbyggingu sveitanna, en í reyndinni liafa komið í ljós nokkrir all- verulegir gallar á þeirri gjöf Njarðar. Það er gert ráð fyrir, að hlutaðeigendur annist viðhald einkalínanna og stofn- framlagið sé altaf fast brot af bygging- arkostnaði. Þetta er hvorutveggja ó- heppilegt, sérstaldega, ef síminn á að geta komist inn á alla bæi. Þá er og málsgangurinn, að stofnun einkasíma- félaganna er gerður altof flókinn og þröngur í lögunum. — Ef teknir væru kostir landssímalína og einkasímanna en ókostunum slept, væri útkoman á- gæt, og það er skoðun mín, að það sé í

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.