Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1940, Page 51

Símablaðið - 01.01.1940, Page 51
SÍMABLAÐIÐ 35 ingi Hagstofunnar. Þó var þeim bú- reikningi mjög stilt í hóf, svo að telja má, að hann sé frekar undir meðal- lagi en liitt. I sjálfu sér er eigi hægt að álasa Hagstofunni fyrir hennar útreikning á visitölunni, því að hún vinnur hann samviskusamlega, byggðan á þeim skakka grundvelli, að miða hann við ástandið 1914, án þess að Itaka til greina breytinguna á lifnaðarháttun- um. Það er miklu frekar liægt að á- lasa þeim forráðamönnum þjóðarinn- ar, sem á þennan, vægast sagt, frek- ar lúalega hátt, lialda brýnum launa- uppbótum fyrir neðan alla sanngirni. Síðan stríðið hófst, í septembermán- uði, hefir vísitala kauplagsnefndar, skv. útreikningi Hagstofunnar, hækk- að um 12% fyrir mánuðina nóv.—des. 1939 og 21% fyrir mánuðina nóv.— mars 1940, miðað við verðlagið janú- ar—mars 1939. Ég lield, að flestir muni vera sammála mér um það, að þess- ar tölur sýni hvergi nærri hina raun- verulegu verðlagsaukningu. Til þess að fá hugmynd um það, þyrfti sem allra fyrst, að gangast fyrir því, að safnað yrði búreikningum frá eins mörgum fjölskyldum og unt er, og láta meðaltal af þeim liggja til grundvall- ar útreikningi vísitölunnar, því að með því er hinu raunverulega ástandi gerð full skil. Sem spor í rétta átt, má geta þess, að Hagstofan segir í Hagtíðindum febr.—mars í ár, að með tilliti til búreikninga, sem verðlags- nefnd liafi safnað, hafi fatnaðarlið- urinn hækkað um 21%. Að endingu vil ég benda á þá brýnu nauðsyn þess, að stéttarfélög opin- herra starfsmanna liefjist handa og myndi með sér öflug samtök til að knýja fram endurskoðun á útreikn- ingi vísitölunnar. Ef að ríkisstjórn eða Alþingi vill eigi sinna neinum kröfum um endur- skoðun, þá verða félögin sjálf að ráða hagfræðing til slíkrar endurskoðunar, til að geta sýnt fram á, með óvéfengj- anlegum rökum, hve miklum órétti launþegarnir eru beittir. C // sjmasfjótartria Ritstj. símablaðsins hefir margsinnis beint þeim tilmælum til símastjóranna, að þeir léti blaðið liggja frammi á biðstofum, eða þar sem viðskiftamenn símans hafa aðgang að því, og geta lesið það, meðan þeir bíða eftir afgreiðslu. En það hefir komið í Ijós við athugun, að á ýmsum símastöðvum hefir ekki verið orðið við þeirri beiðni. Símablaðið vill enn einu sinni beina þeirri ósk til allra símastjóra, að þeir getri sitt til þess, að sem flestir lesi blaðið. Tilvera þess byggist á auglýsingunum. En þær fær blaðið m. a. vegna þess, hve margir eiga að hafa aðgang að því á símastöðv- unum. Það er vitað, að þangað koma þús- undir manna, og þessar þúsundir eiga að sjá blaðið. Um leið og Símablaðið sendir símastjórunum kveðju sína, á 25 ára afmæli sínu, vill það enn beina þeim tilmælum til þeirra, að þeir láti blaðið liggja frammi í biðstofunum. Póst- og símamálastjóri dvelur nú í Noregi. Var hann staddur á hóteli uppi í Dofrafjöllum, er stríðið braust út þar í landi. Eru samgönguleiðir þangað, er hann dvelur, teptar, svo að óvíst er, hve lengi hann neyðist til að dvelja þar.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.