Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 Fréttir DV Árni Gautpnflrason Árni er samviskusamur og áreiðanlegur og með góðan húmor. Hann er hlédrægur og mætti vera ákveðnari. „Hann er toppdreng- ur, ekki spurning. Iþróttamaður af Guðs náð og hefði náð ár- angri i hvaöa íþrótt sem hann hefði lagt fyrir sig. Hann er mikill sigur- vegari, kominn meö tlu meist- aratitla með þremur liðum. Það segir margt um hann. Árni mætti vera aðeins ákveðnari. Hann á erfitt með að gera upp hug sinn varðandi eitt og annað." Gunnlaugur Jónsson knattspyrnu- kappl. „Árni er mjög heiðar- legur og skemmtileg- ur á allan hátt. Hann hefur dulinn húmor sem er lævís og skemmtilegur. Hann er traustur vinur vina sinna og svo er hann þokkalegur I marki. Árni er kannski örlftið hlédrægur á köflum og mætti betur gera sér grein fyrir öllum þeim kostum semhannerbúinn." Borgar Þór Einarsson lögfræðingur. „Hann er drengur góður, heill, samvisku- samur og traustur. Hann hefur létta lund, meö góða kimnigáfu, vinur vina sinna og til fyrir- myndar I allri framkomu. Hann ber afsér góðan þokka og er mjög áreiðanlegur. Helsti galli Árna er hvaö hann er Ijúfur og góður. Það hefur háð honum aö ná enn lengra sem mark- vörður." Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðs- þjálfari. Árni Gautur Arason er fæddur 7. maí 1975. Hann er landsliðsmarkvörður ís- lands I knattspyrnu og um helgina varð hann Noregsmeistari með liði sínu Vðler- enga. Áöur hefur hann orðiö Noregs- meistari með Rosenborg og íslandsmeist- ari með lA. Tíu hektara undir gókart Icekart á íslandi ehf. hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fá að minnsta kosti þriggja hekt- ara lóð undir gókartstarf- semi. Helst vill fyrirtækið reyndar fá 10 hektara, að því er segir í lóðarumsókn Icekart. Ætlunin er að reka skóla fyrir fimm ára og eldri og leigu á gókartbílum auk fjölmargra annarra atriða tengdum mótorsporti. „Getur þetta verið góð kynning á sveitarfélaginu þar sem þið eruð að gera gott við akstursíþróttir," segir í lóðarumsókn Icekart. Teletot.com Selur fyrirtækjum rafræn skilrlki. uMnningur ðö handan THE^ INDEPENDENT ÁSTÞÓR MAGNÚSSON MEÐ NÝTT LOTTÓ: VINNINGSNÚMER BYGGJA Á ANDLÁTSFRÉTTUM Samkvæmt upplýsingum um lottóið sem Ástþór rekur í Bret- landi í nafni Friðar 2000 er því ætlað að safna fé handa börn- um í stríðshrjáðum löndum. Á síðunni segir að Friður 2000 hafi í fjölda ára flogið með hjálpargögn til barnanna og vilji nota allan ágóða af lottóinu til að viðhalda hefðinni. Sagt er fyrir aðeins eitt pund, eða 108 krónur, geti viðkomandi átt von á vinningi upp á um 2,7 milljónir króna. Lottóið sem Ástþór rekur í Bretlandi undir merkjum Peace- call Limited er staðsett í flottu leiguhúsnæði í Mið-London sam- kvæmt upplýsingum leigusalans. Líklegást fer salan einungis fram á heimasíðunni birthdaylottery- .org þar sem fólk getur keypt lottómiða í hverri viku fyrir eitt pund - um 108 krónur. Alls getur vinningsupphæðin numið um 2,7 milljónum króna. Indipendent af fjöllum Flóknar reglur um útdrátt í lottóinu vekja eftirtekt. Vinnings- númerið er fundið út frá minn- ingargreinasíðum The Indipendent, virts dagblaðs í Bretlandi. „Þetta er athyglisvert. Sem svar við spurningu þinni um hvort við þekkjum happa- drættið getum við sagt hreint og beint: Nei. En það lítur út j fyrir að við gæt- um grætt lif- andis ósköp af peningum," skrifar lame Fergusson, ritstj minningargreina tne Indipendent, sem svar við fyrirspurn blaða- manns DV. Fergusson segir starfsfólk rit- stjórnar blaðsins hafa glaðst mjög við fréttirnar um að það gæti haft bein áhrif á vinningsnúmer í Manchester United Astþór vinnur ekki með okkur, segir blaðafulltrúi enska fótboltafélagsins. lottói en gaf lítið fyrir trúverðug- leika þeirrar aðferðafræði. Segir lottóið ekki byrjað Þegar blaðamaður DV náði tali af Ástþóri í gær var hann staddur erlendis. Hann sagði lottóið enn ekki farið af stað. Þrátt fyrir þá fullyrð- ingu Ástþórs eru á heimasíðu happa- drættisins sagðir hafa farið fram vikulegir drættir í lottó- inu frá 8. ágúst 2005 til dagsins í gær. Ekki er greint frá vinnings- höfum eða upp- hæðum. Afneitað af Manchester United Netsíðunni teletot- .com er haldið úti til að safna fé til handa stofnunum og félagasam- tökum. Bent er á heimasíður við- skiptavina fyrirtækisins sem til dæmis eru sagðir vera fótboltafé- lögin Manchester United og Burnley. Hvorugt liðið kannaðist þó við að hafa átt viðskipti við fyr- irtækið. „Manchester United starfar ekki með þeim. Eini möguleikinn til að kaupa miða í happadrætti á vegum okkar er beint frá okkur," segir í yfirlýsingu frá Steve Whit- worth, framkvæmdastjóra þróun- ardeildar Manchester United. Hann segir einnig að hann muni hafa samband við starfsfólk síðunnar til að fá firmamerki Manchester United fjarlægt af henni þar sem það sé notað í óleyfi. Kannast ekki við bílasölu Ástþór neitaði í samtalinu allri áðild að fyrirtækinu Álftaborgum sem sagt var frá í DV í gær og tengist heimasíðunni is- landus.com - sem Ástþór segist heldur ekki tengdur á nokkurn hátt. Það er þó Ástþór sem tók myndir af viðskiptavinum fyrir- tækisins og er maðurinn á bak við síðuna. haraldur@dv.is Ástþór Magnússon Segir engin tengsl milli sln og Álftaborga. 5 V-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.