Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Page 16
76 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 Fréttir DV Kókaínbarón tekinn John Eidelber Cano, foringi hins ofbeldisfulla Nortre del Valle-glæpa- hrings, var handtekinn eftir skotbardaga við kólumb- ísku lögregluna um helg- ina. Hringurinn, sem er sá stærsti í Kólumbíu, er grun- aður um að hafa smyglað þúsundum kílóa af kókaíni til Bandaríkjanna og víðar, auk þess að þvætta millj- arða dollara. Jafnvirði 300 milljóna króna voru settar til höfuðs Cano og var hann handtekinn í kjölfar ábend- ingar frá einstaklingi sem vildi leysa út milljónirnar. Google gerir það gott Þeir sem standa að leit- arvélinni Google standa sveittir með skóflurnar að moka peningum inn. í síð- ustu viku greindi fyrirtækið frá hagnaði á þriðja ársfjórð ungi sem nam 23,5 millj- örðum íslenskra króna, sjö- falt meira en á sama tíma á síðasta ári. Veltan á sama tíma nam um 98 milljörð- um króna. Google hafði áður gert ráð fyrir 65 millj- örðum í veltu en bætti um betur. Google kom á mark- að í Bandaríkjunum í ágúst síðastliðnum. Myrtvegna goðvildar Samkvæmt CNN hefur lögreglan í Texas handtekið ungt par ásamt eldri manni grunuð um að hafa kyrkt Betty Blair. Betty hafði kynnst fólkinu við inessu í kirkju sinni og vingast við það. Fólkið hafði flúið heimili sín þegar fellibylur- inn Rita gekk yfir en Betty bauð þeim íhlaupavinnu við heimili hennar. Fólkið var handtekið í bíl Bettyar sem var útbúinn sérstökum gervihnattabúnaði sem auðveldaði leit að honum. Fólkið var handtekið án mótþróa. Beckham á skólabekk David Beck- ham er á leiðinni aftur á skólabekk. Hann þarf að fara á námskeið til að kynna sér öryggis- atriði varðandi fótboltaþjálfun fyrir börn. Beck- ham sem er fyrir- L—— liði enska landsliðsins og þriggja bama faðir er skráð- ur á námskeiðið til að sýna ffumkvæði fyrir aðra þjálf- ara þvers og kruss um Eng- land sem ættu helst að fara á námskeiðið. Scott Dyleski var handtekinn 19. október vegna gruns um að hafa myrt hina 52 ára gömlu Pamelu Vitale. Hann er talinn eiga von á lífstíðardómi verði hann fundinn sekur um glæpinn. Dyleski er einungis sextán ára gamall - of ungur til að fá dauðarefsingu. Unglingur grunnður um hrnttalegt mnrð Dyleski sagði ekki neitt þegar hann kom í fyrsta sinn fyrir rétt í San Francisco síðastliðinn fimmtudag. Hann bar hvorki við sak- leysi né sekt. Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum fyrir þær sakir að Pamela var eiginkona Daniels Horowitz, sem var vinsæll sem ráðgjafi fjölmiðla í máli rithöfundarins Scotts Pet- erson sem var nýlega fundinn sekur um að myrða eiginkonu sína. Horowitz kom að líki konu sinn- ar í hjólhýsi á byggingarlóð þar sem þau höfðu ætlað að reisa sér hús. Hann hringdi strax í neyðarlínu lögreglunnar. Pamela hafði verið barin og stungin til bana. „Hún varðist hetjulega," segir Horowitz og bendir á að verksummerkin hafi bent til slagsmála. Dyleski var handtekinn fjórum dögum síðar eftir ábendingu frá nágranna hans sem sagði kreditkorti sínu hafa verið stolið. Sú ábending kom lög- reglumönnum á slóð Dyleskis. Daginn eftir morðið voru áverkar á andliti Scotts, samkvæmt upplýs- ingum lögreglu. Hrottaleg aðkoma Samkvæmt heimildum San Francisco Chronicle var aðkoman að líki Pamelu hræðileg þar sem líkið lá í blóðpolli með fjölda stungusára og ummerki barsmíða. Líkur benda til að Dyleski hafi ver- ið að leita í hjólhýsinu að sendingu Daniel Horowitz lögfræðingur Eigin- maður Pamelu kom að henni látinni. sem hann hafði pantað og látið senda til þeirra Horowitz-hjóna, enda notað til þess stolið kredit- kort. Sendingin innihélt vörur sem oft eru notaðar við ræktun marí- júana. Seljandi vörunnar hafði þó ekki sent hana af stað vegna gruns um að kaupin væru ekki byggð á réttum forsendum. Sönnunargögnum safnað Lögreglan í San Francisco rann- sakar nú innihald poka sem fannst í bíl við heimili Dyleskis, þar á meðal föt og hanska með blóðslett- um á. „Það lítur út fýrir að eitthvað vanti af fötum auk þess sem við höfum ekki fundið stunguvopnið sem var líklega notað við morðið," segir Cary Goldberg rannsóknar- lögreglumaður. Rólegur karakter Scott Dyleski er lýst sem rólynd- um ungum manni sem hélt sig út af fyrir sig. Hann klæddist oft síðuin frakka, einkennandi fyrir fylkingu ungs fólks sem hefur tileinkað sér svokallaðan goth-lífsstíl. Hann bjó með móður sinni rétt hjá vettvangi glæpsins. Skólafélagi hans sagði frétta- mönnum að Scott hefði sagt fólki að bók sem hann hafði til lestrar væri bók Satans sjálfs. Árbækur skólans sem Scott sótti sýna um- Scott Dyleski 16 ára, grunaður um hrotta- legt morð. breytingu frá venjulegum unglingi með bólur til manns með dökk augu og sítt hár. „Ekki Scott, alls ekki," segir Glenn Hirschberger, stjúpfaðir Scotts, en hann og móðir Scotts voru gift í fjögur ár. „Scott er ekki slagsmálahundur. Hann hefði aldrei getað gert neitt þessu líkt.“ haraldur@dv.is Stórhættulegur barnamoröingi í Bretlandi Ráðgerði að flýja Ian Huntley, sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi í Bretlandi árið 2003 fyrir morðin á vinkonunum Holly Wells og Jessicu Chapman, er nú undir ströngu eftirliti fanga- varða. Eftirlitið var hert til muna eftir að upp komst um samskipti hans við ræningjann Philip Riley. Talið er að Huntley hafi ætlað að skipuleggja flótta með aðstoð Rileys sem sitúr inni fyrir banka- rán. Riley er oft kallaður Houdini fyrir fjölda vel heppnaðra flóttatil- rauna. Allir lásar og boltar verða hér eftir athugaðir daglega á klefa Huntleys auk þess sem leitað verður á honum sjálfum á klukku- stundarfresti. „Það verður að hafa hugfast að öryggi almennings er fyrir öllu. Mögulegur flótti Huntleys gæti lan Huntley Reyndi að fá ráðleggingar frá reyndum flótta- manni. komið af stað mótmælum meðal almenn- ings með hrika- legum afleið- ingum," segir í bréfi fangelsismálastjóra til yfir- manns fangelsisins. Ökukennari káfar á nemendum Ósæmileg hegðun ökukennara Enski ökukennarinn Peter Knowles hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að káfa á níu kvenkyns nemendum sínum. Fyrsta brotið átti sér stað árið 1977 og það síðasta árið 2004. Knowles, sem er 67 ára gamall, var fundin sekur um sjö ákæruatriði um ósæmilega hegð- un og tvö ákæruatriði um kynferðis- lega árás. Knowles neitaði öllum sökum. Fórnarlömb Knowles vom ýmist sautján eða átján ára þegar brotin áttu sér stað. Allar sögðu Knowles hafa snert þær á ósæmilegan hátt þegar hann aðstoðaði þær nteð kúp- linguna. Rannsóknarlögreglumaðurinn Richard Beckwith sem sá um rann- sókn málsins sagði fyrir dómi að Peter Knowles Káfaði á nemendum sínum meðan hann kenndi á kúplinguna. ■ stúlkumar hefðu allar verið ungar og stressaðar yfir að fara að læra á bíl. „Hann notfærði sér þennan veik- leika þeirra og reyndi að afsaka við- urstyggilegar aðgerðir sínar með því að segja stúlkunum að þetta væri fullkomlega eðlilegt," sagði Beck- with og lýsti um leið yfir ánægju með að Knowles væri ekki lengur úti í umferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.