Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005
Sport DV
Alda Leif með
19 stig
Alda Leif Jóns-
dóttir, landsliðs-
kona í körfubolta,
skoraði 19 stig fyrir
hollenska meist-
araliðið Den Held-
er sem hefur unnið
þrjá fyrstu leiki
hollensku úrvals-
deildarinnar og er eitt á
toppnum. Den Helder vann
Amazone Leidsche Rijn 96-
79 á útivelli um helgina og
Alda var auk stiganna 19
með 4 fráköst, 3 stoðsend-
ingar og 3 stolna bolta á
þeim 29 mínútum sem hún
spilaði. Alda Leif nýtti 5 af
10 skotum sínum utan af
velli og öll átta vítin.
Jón Arnór
sjóðheitur
fyrir utan
Jón Arnór Stefánsson
setti niður öll fjögur
þriggja stiga skot sín í 84-
67 útisigri Carpisa Napoli
á Basket Livorno um
helgina. Jón Arnór var
með 14 stig og 4 stolna
bolta á þeim 30 mínútum
sem hann spilaði og nýtti
5 af 6 skotum sínum utan
af velli. Þetta var annar
sigur Napoli-liðsins í röð
og sá fjórði í sex leikjum
á tímabilinu og eru Jón
Arnór og félagar sem
stendur í 3. til 6. sæti
ítölsku úrvalsdeildarinn-
ar.
Jakob að fá
stærra hlutverk
Jakob Sigurð-
arson er búinn
að sanna sig fýr-
ir þjálfara Bayer
Giants Leverku-
sen og fær nú
stærra hlutverk
með hverjum
leiknum sem
hann spilar. Jak-
ob skoraði10
stig á 23 mínútum í 91-82
sigri á BG Karlsruhe um
helgina. Jakob sem lék að-
eins í 14 mínútur í fyrstu
tveimur leikjum sínum með
Leverkusen hefur skorað 7,5
stig að meðaltali á 19,8 mín-
útum í síðustu fjórum leikj-
um. Leverkusen er sem
stendur í 7. sæti með 3 sigra
og 3 töp en liðið hefur nú
unnið tvo leiki í röð.
Á eftir sjöunda meist-
aratitlinum Robert Horry sést
hér bregða á leik eftir sigur San
Antonio Spurs isumar en þetta
var i sjötta sinn sem Horry
verður meistari en hann hefur
einnig unnið titla með Houston
Rockets og Los Angeles Lakers.
NBA-deildin í körfubolta fer af staö á ný í nótt
og það er mikil spenna fyrir tímabilið enda
hafa bestu liðin verið að styrkja sig í sumar og
það lítur út fyrir að mörg lið eigi möguleika á
að slá við meisturum San Antonio Spurs.
[//, PTiPi
UÁ 'JflJjll
1 ffijfJl
J -rf-J —1
Það hafa aðeins þrír þjálfarar gert lið að NBA-meisturum undan-
farinn áratug og allir eru þeir í eldlínunni þegar deildin fer af stað
í kvöld. Þetta eru þeir Gregg Popovich (San Antonio Spurs 1999,
2003 og 2005), Larry Brown (Detroit Pistons 2004) og Phil Jackson
(Chicago Bulls 1996-98 og Los Angeles Lakers 2000-2002) og það
er óhætt að segja að þessir þrír frábæru þjálfarar steli sviðsljósinu
í upphafi tímabils enda með ólík verkefni sem NBA-aðdáendur
geta ekki beðið eftir að sjá hvernig þeim tekst til.
Á meðan Popovich hefur bætt
sterkum leikmönnum við mikla
breidd meistaraliðs Spurs fá þeir
Brown (New York Knicks) og Jackson
(Los Angeles Lakers) verðug verkefni
við að búa til lið úr rústum þessara
gömlu stórliða sem biðu afhroð á síð-
asta tímabili.
Phil Jackson er mættur á ný til
Englaborgarinnar þar sem að hann
gerði Lakers-liðið þrisvar að meistur-
um á fýrstu þremur árum nýrrar aldar
en yfirgaf jafnframt í fússi eftur óvænt
hrun stjömuprýdds liðs í úrslitunum
2004 gegn Detroit Pistons. Jackson og
Kobe Bryant virðast vera búnir að
leysa sín mál og em famir að vinna
saman á ný. f stað þess að lifa auð-
veldu lífi og á þeim níu meistaratitl-
um sem Jackson hefur þegar unnið
með Chicago og Lakers skellti karlinn
sér í mikið uppbyggingastarf hjá liði
sem vann aðeins 34 af 82 leikjum sín-
um á síðasta tímabili. Larry Brown
lætur heldur ekki veikindi draga úr sér
kjarkinn því hann er kominn heim í
Madison Square Garden í drauma-
starfið sitt. New York Knicks er sjö-
unda NBA-liðið sem Brown þjálfar en
hann þarf að vinna úr mörgum púsl-
um leikmanna sem Isiah Thomas
hefur safnað saman í New York. Það
verður ekki auðvelt fyrir Brown að ná
jákvæðu sigurhlutfalli í vemr en því
hefur hann náð allar
götur síðan 1998.
„Brown þjálfari
kemur mér eða öðr-
um ekki á óvart með '
að taka við
New York,
því hann
elskar
svona
verkefni,"
sagði
Popovich
um góð-
vin sinn
sem hann |
vann 4-3
úrslitun-
um í sum-1
ar. „Hann'
hefur yndi af'
því að byggja ]
upp, mæta á (
æfingu og
skóla menn til, meiri yndi en að
vinna leiki eða meistaratitla. Hann er
sannur körfuboltakennari."
Popovich er líka ánægður með að sjá
Jackson aftur í NBA-boltanum. „Ég
er himinlifandi með að fá Phil aftur
því ég tel að það skipti deildina
miklu máli. Ef menn velta því fyrir
sér hvað hann hefur þegar gert á sín-
um þjálfaraferli þá verður alltaf
dramatík í kringum hann og hans
lið,“ segir Popovich sem hefur fengið
gamalreynda kappa eins og Michael
Finley og Nick Van Exel til að auka
enn mikla breidd Spurs-liðsins. Það
er því ljóst að San Antonio
Spurs er af flestum spáð
meistaratithn-
um á þessu
Mennirnir í sviðljósinu Aðeins
þrirþjálfarar hafa gert lið að NBA-
meisturum undanfarinn áratug,
Gregg Popovich (San Antonio Spurs
1999,2003 og 2005), Larry Brown
(Detroit Pistons 2004) og Phil
Jackson (Chicago Bulls 1996-98 og
Los Angeles Lakers 2000-2002).
tímabili sem yrði þá fjórði titill Tims
Duncan og félaga á átta árum.
Þau lið sem voru með í baráttunni
en sáu á eftir titlinum fara til Texas
eru flest mætt aftur með enn sterkari
leikmannahópa og þrátt fyrir að ekki
hafi margar stórstjömur skipt um lið
hafa liðin verið að krækja í nothæfa
menn sem eiga eftir að gera þessi lið
enn öflugri.
Á Vesturströndinni hafa lið eins og
Phoenrx, Houston, Sacramento, Los
Angeles Clippers og Memphis öll
bætt við sig og ætla sér stóra hluti á
þessu tímabili. Á Austurströndinni
mæta Shaquille O’Neal og Dwyane
Wade með nýja menn eins og
Antoine Walker, Jason Williams,
James Posey og Gary Payton sér við
hlið. Miami Heat verður því gríðar-
lega sterkt en eins er mikils búist við
af Detroit, og Indiana verður öflugt og
þá em menn mjög spenntir fýrir
að sjá þríeykið jason Kidd, Vince
Carter og Richard Jefferson
| fullfríska saman á ný hjá
\ New Jersey Nets. Eitt lið
sem gæti einnig gert góða
** hluti er lið Cleveland
„ _ Cavaliers en forráðamenn
y Cavaliers vom duglegir að
safna liði í kringum hinn frá-
I bæra ungling LeBron James sem
| ætti að gera góða atlögu að því að
vera valinn besti leikmaður kom-
andi tímabils. Það er allavega ljóst
að með hinni nýju NBATV-stöð á
íslandi ættu NBA-aðdáendumir hér á
landi að fá frábæra innsýn í bestu
körfuboltadeild í heimi í allan vetur.
Urslitin þurrkuð
út í körfunni
Dómstóll KKÍ hefur kveð-
ið upp dóm í málum sem
forsvarsmenn
Njarðvíkur og
Keflavíkur
höfðuðu á
hendur Skalla-
grími sem not-
aði Dimitar
Karadzovski í
tveimur leikj-
um í Iceland
Express deild
karla áður en hann varð lög-
legur. Dómstóllinn dæmdi
Njarðvíkingum í vil og teljast
þeir því hafa sigrað Skalla-
grím 20-0 í leik liðanna
þann 13. október sl. Úrslit
leiksins 96-91 verða því
þurrkuð út. Kæru Keflavík-
inga var hins vegar vísað frá
dómi þar sem hún var ekki
tæk til meðferðar. Kæranda
var gefinn þriggja daga frest-
ur að skjóta málinu aftur til
dómstóisins.
Iceland Express deild kvenna
Útruleg sigurganga Resheu Bristol
í fyrsta sinn í tapliði á íslandi
Kvennalið Keflavíkur í körfu-
bolta tapaði fyrsta leik sínum á
tímabilinu á sunnudagskvöldið
eftir að hafa unnið fjóra fyrstu
leiki sína í vetur með 48,8 stigum
að meðaltali. Tapið er sögulegt
fyrir þær sakir að bandarfski bak-
vörðurinn Reshea Bristol var búin
að spila 22 leiki á íslandi án þess
að vera í tapliði. Haukastúlkur
unnu Keflavík með 18 stiga mun í
leiknum, 66-48, en fyrir hann
hafði Keflavík unnið alla leiki sína
með Bristol með 11 stigum eða
meira, þar af 16 þeirra með meira
en 20 stiga mun. Hér til hliðarmá
finna graf með sigurleikjum Kefla-
víkur með Bristol í leikstjórnenda-
hlutverkinu.
Ótrúlegur árangur
Eins og sjá má á
þessu grafi er árangur
Bristol með ólikindum