Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Síða 23
Fjölskyldan 0V ÞRIÐJUDAGUR 1. NÚVEMBER 2005 23 Pissar barnið undir? Ef barnið þitt er orðið eldra en fimm ára en vætir reglulega rúmið á nætum- ar er rétt að þú spyrjir þig nokkurra spuminga. Var barnið þitt vanið á kopp- inn mjög ungt? Áttir þú eða hitt foreldri bamsins við sama vandamál að stríða? Er barnið að ganga í gegnum erfitt tímabil (skilnað foreldra, andlát í fjölskyldunni, nýjan skóla, fæðingu systkinis)? Ef þú svarar einhverri af þessum spumingum játandi skaltu taia við barnalækninn ykkar. Ráð fyrír foreldra barna sem pissa undir Útskýrðu fyrir barninu hvað sé í gangi. Mörg börn halda að þau séu alvarlega veik ef þau pissa undir. Settu hlíföarlak a' dýnuna. Settu önnur náttföt við hlið rúms- ins til vara ef barnið þarnast þeirra um nóttina. Ekki láta barnið ganga með bleiu á næturnar ef það hefur náð fjögurra ára aldri. Slíkt kemur í veg fyrir ár- angur. Ekki leyfa baininu aðþamba vökva áður en það fer í rúmið. Ekkileyfa barninu að drekka drykki sem innihalda koffein. Sjáðu til þess að barnið fari á kló- settið áður en það fer í rúmið. Verölaunaðu barnið fyrir hverja nótt sem þaö pissar ekki undir. Ræddu við lækni. Barnið gæti átt við alvarlegra vandamál að stríða. Eí' barniö á við hægðartregðu að stríða skaltu einbeita þér aö henni fyrst. Þaögæti veriö lausnin. Sýndu barninu stuðning. Barninu þínu líður ekki vel með að pissa undir og þarf á stuðningi að halda. Segöu barninu efþú áttir við sama vandamál að stríða þegar þú varst yngri. Það virkar hughreystandi að vera ekki öðruvísi. Ekki refsa barninu fyrir að pissa undir. Mikil umræða hefur verið um úrræðaleysi geðfatlaðra upp á síðkastið. Á morgun miðvikudag getur fólk lagt málefninu lið um leið og það nælir sér í fallega hluti. Hægt er að nálgast fallegar, handunnar gjafa- vörur eftir skjólstæðinga iðjuþjálfunar á Kleppi á góðu verði á basar sem haldinn verður á morgun. Leggðu geðfötluðum lið og gerðu Kostakaup í ieiðinni Iðjuþjálfun er liður í endur- hæfingu Fanney segir iðjuþjálfunina lið í endurhæfingu geðfatlaðra þar sem þeir endurhæfa sig til að geta tekið þátt í lífinu utan stofnunarinnar og auka færni sína í einbeitingu og út- haldi. „Þetta er tæki sem notað er til að komast út í lífið á ný," segir Fanney. Hún segir mikla vinnu lagða í basarinn og skjólstæðing- arnir hafa gaman af þeirri vinnu. Á basarnum kennir ýmissa grasa en boðið er meðal annars upp á leir- vörur, trévörur, hluti úr þæfðri ull, bútasaum og margt fleira. Basarinn er haldinn í húsnæði Iðjuþjálfunar á Kleppi og hefst klukkan 12. mgga@dv.is „Við höldum basar tvisvar á ári og þannig hefur það verið í nokkuð mörg ár,“ segir Fanney Karlsdóttir, yfir-iðjuþjálfi á Kleppi. „Sá síðasti var í maí og síðan þá hafa 30-40 manns komið að vinnu fyrir næsta basar," segir Fanney en ágóðinn rennur til iðjuþjálfunarinn- ar og er notaður til að styrkja starfsemina, farið verður út að borða með skjólstæð- ingum, í ferðalög og haldnar árshá- tíðir. Vertu góð fyrirmynd Gerirðu of miklar kröfur til barnsins þíns? Sýndu gott for- dæmi og elskaðu líkama þinn. Reyndu að leiða barnið frá villuvegu áströskunar. 1» Fræddu bamið þitt um hve mis- munandi við erum, að líkamar koma í öllum stærðum og gerðum. Fræddu það um fordóma og afleiðingar þeirra. Vertu jákvæð(ur) í tali og hegðun er málin em rædd og pass- aðu það sem þú segir dags daglega um þinn eigin líkama. 2. Farðu vel yfir drauma þína og maka þíns varðandi framtíð bams- ins. Gerið þið of miklar kröfur? Aldrei segja baminu að það sé oft þungt, að það eigi ekki að borða svona mikið, að það eigi að h'ta út eins og fyrirsæt- urnar í blöðunum, að það þurfi svo stór föt og fleira í þeim dúr. 3. Ákveddu hvað þú getur gert svo stríðnin, gagnrýnin og ásökunin hætti að ýta undir þá skoðun að búttaðir krakkar séu „verri" og þeir grönnu séu „betri“. 4. Lestu þér til um og ræddu svo við bamið þitt um hættuna sem felst f því að ætla að breyta líkamanum með mataræði. Reyndu að vekja áhuga bamins á íþróttum og hollum mat en passaðu þig á öfgunum. Ekki flokka mat sem „slæman" eða „góð- an“. Vertu góð fyrirmynd varðandi mataræði, hreyfingu og sjálfsvirð- ingu. 5. Ekki forðast allt sem kallar á nekt svo sem sund- og strandaferðir. Finndu þér þægileg föt við hæfi og drífðu þig af stað þótt þú sért ekki í toppformi. (i, Ákveddu að stunda hreyfingu gleðinnar vegna en ekki til að berj- ast við hliðarspikið. Taktu mark á fólki vegna þess sem það segir, ekki vegna þess hvemig það lítur út. 7. Hjálpaðu barninu að meta eigin líkama og kenndu því að sjá í gegn- um gerviútlit ofurfyrirsætnanna í blöðunum og söngkvennanna í sjón- varpinu. 8. Fræddu barnið um hin ýmsu form fordóma og komdu því í skilning um afleiðingar eineltis. 9. Hvettu bamið til að reyna á sig og njóta þess líkama sem það hefur. Ekki takmarka kalóríumar nema að læknisráði. 10. Reyndu allt sem þú getur til að móta heilbrigða sjálfsvirðingu hjá barninu. Gefðu dóttur þinni sömu tækifæri og hvatningu og syni þín- Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is BETUSAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.