Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005
DV Fréttir
viinjaimur siyour nunaanaia Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi
mætti nýlega á stjórnarfund hjá Hundaræktarfélagi íslands, að eigin ósk, og ræddi um
hundahald í Reykjavík. Vilhjálmur telur að framfarir í þágu hundaeigenda hafi
í'; orðið miklar á undanförnum árum. Ekki síst væri það öfl-
ugri starfsemi Hundaræktarfélags íslands að þakka.
Meðal annars sagðist hann skilja vel þá ósk hundaeigenda
"'W&fw* bann v'ð hundahaldi yrði afnumið þar sem í raun gætu
sgmyallir sem uppfylltu skilyrði fengið leyfi til að hafa hund. Vil-
I ^v----------fi-\&.'j? ý® hjálmur sagðist því vel geta stutt það að hundahald væri
yBsfnfijk* ,evft ' Reykjavík með sömu eða svipuðum skilyrðum og
; yjffiy-.’sjiir' {• gilda um hundahald í dag og að samþykkt um hundahald
i tæki mið að því. Réttarstaða
1 ' yjF W Þeirra sem vilja halda hund
A » MUgmÍMFVW og þeirra sem ekki eru hlynnt-
f» ir hundahaldi myndi því ekki Nt
breytast.
Bergljót Daviðsdóttir
skrifar um dýrin
sín og annarra á
þriðjudögum í DV.
bergljot@dv.is
Týnd kisa Þessi litla kisa sem heitir Lóra, hefur ekki komið heim í
rétta viku. Eigandi hennar, Inga Sæmundsdóttir, er farin að óttast mjög um
hana en vonar að hún hafi aðeins ratað of langt frá heimili sínu við Miðvang
93 í Hafnarfirði og einhver hafi séð hana eða jafnvel tekið hana inn. Hún er
með rauða hálsól og síðast þegar hún vissi var spjald með nafni hennar og
heimilisfangi viðfest á ólinni. Lóra er aðeins sex mánaða og biður Inga alla
þá sem hugsanlega hafa séð til hennar að láta vita í síma 551 6396. Lóra er
þrílit; svört, gul og hvít.
Hundabúr - Hundabæli
Full búö af nýjum vörum.
30% afsláttur af öllu.
Tokyo gæludýravörur
Hjallahrauni 4 Opið: mán. til fös. 10-18
Hafnarfirði Lau. 10-16
s. 565-8444 Sun. 12-16
Blendingareða
hreinræktaðir
Ótrúlegt er að fylgjast með aug-
lýsingum um hunda til sölu eða
gefins í blöðum og á netinu. Kíkti
inn í gær og las nokkrar auglýsing-
ar sem voru eins misjafnar og þær
voru margar. Þar voru auglýstir
gefins blendingar undan Husky og
Border Collie - Labrador sem ég
vona að hafi verið slysagot en ekki
ráðgert.
Þeir
\y' hvolpar '
fást gefins, þó
mér finnist að í lagi sé að selja fyr-
ir kostnaði og hafa þá bólusetta og
örmerkta, fyrir utan það að velja
þeim ekki lakari heimili en hrein-
ræktuðum hundum. önnur aug-
lýsing var ffá einum af mörgum
Chihuahua-ffamleiðslunum sem
ekkert eiga skylt við ræktun. Sú
auglýsti hvolpa úr væntanlegu goti
um 10. nóvember. Þeir voru óætt-
bókarfærðir en eigandi þeirra vildi
Skoðun Beggu
fá 100 þúsund krónur fyrir stykkið!
Og það sem verra er, að minnsta
kosti tveir voru búnir að spyrjast
fyrir og vildu kaupa með rað-
greiðslum. Væntanlega fólk sem
hefur ekki hugmynd um hvað það
er að gera. Eitthvað svipað og sá
sem keypti sér hund sem honum
var sagt að færi með ættbók frá
Hundaræktarfélagi Vestmanna-
eyja??
Það er sorglegt að verða vitni
að slíkri vanþekkingu en ætla má
að ef fólk veit svona fáránlega lítið
um hunda muni það varla annast
þá mikið betur. Það er aldrei of
mikið talað um þessa hluti. Að fólk
vandi valið þegar það kaupir sér
hvolp og viti hvað það er að gera
áður en það tekur ákvörðun um
kaupin. Það minnsta sem maður
fer fram á er að fólk geri sér grein
fyrir muninum á hreinræktuðum
hundum og blendingum og greiði
ekki okurverð fyrir blendinga. Það
er ekki sanngjarnt gagnvart nein-
um sem á í hlut, allra síst hvolpun-
um. Þannig er það nefnilega að
eftir því sem fóÚc er fúsara til að
greiða fyrir hvolpa frá einhverjum
sem ekki veit hvað hann er að
gera, því stærri er markaðurinn
fyrir þá. Hafið það hugfast.
Amerískur Cocker Spaniel nam hér land fyrir um það bil tíu árum. Vinsældir
hans hafa aukist jafnt og þétt enda skemmtilegur hundur, mátulega stór og það
sem meira er, hann fer lítið sem ekkert úr hárum.
Kátur, Ijörugur og fer ekki ór hárum
Ameríski Cocker Spanielinn er í
raun upprunninn á Spáni en þar var
hann ræktaður til veiða á til dæmis
skógarsnípu sem nefnist á ensku
woodcock og kemur nafnið þaðan. í
Bandaríkjunum var Ameríski Cock-
erinn svo ræktaður eins og hann er í
dag og er hann þess vegna kallaður
Amerískur Cocker Spaniel en teg-
undin var skráð sem sértegund 1946.
Bryndís Pétursdóttir hefúr átt
Cocker í fimm ár, er í stjóm Spaniel-
deildarinnar og þekkir vel til tegund-
arinnar. Hún segir Cockerinn vera af-
skaplega skemmtilegan og fjöl-
skylduvænan hund sem fari vel á
heimili. „Cockerinn er með mikið
jafnaðargeð, er glaðlyndur og ófeim-
inn. Hann þarf ekki meiri hreyfingu
en til dæmis Cavalier King Charles og
aðrir hundar af smáhundakyni.
Raunar er hann af veiðihundakyni og
það er vel hægt að nota hann til veiða
en það hefur bara ekki verið reynt hér
á landi," segir Bryndís og bætir við að
veiðikörlunum sem séu með stóra
veiðihunda finnist ekki mikið til hans
koma. „Við emm að velta fyrir okkur
að gera eitthvað í þeim málum en
honum er eðlislægt að veiða og fæla
fugla úr fylgsni auk þess að sækja
bráðina. Eg efast ekki um að hann
myndi standa sig vel í veiði væri hann
þjálfaður til þess," segir Bryndís.
Cockerinn er einnig vinsæll sýn-
ingarhundur, fyrir sinn síða og mikla
feld, en það kostar einnig mikla hirðu
á honum. Bryndís segir að oftast
haldi þeir feldinum ekki nema á
meðan þeir séu sýndir en þegar þeir
eldist sé engin ástæða til að vera með
hann í miklum feld og þá sé hann oft-
ast klipptur stuttur. „Því er hins vegar
ekki að neita að hann er stórglæsileg-
ur á sýningum þegar hann svífur um
gólfið og feldur hans er eins og ball-
ettkjóll," bætir Bryndís við.
Ameríski Cockerinn er almennt
mjög heilsuhraustur og engir alvar-
legir sjúkdómar sem hrjá stofninn
fyrir utan flogaveiki sem er þó mjög á
undanhaldi þar sem markvisst hefur
verið reynt að rækta sjúkdóminn úr
tegundinni. Bryndís segir að talsverð
eftirspum sé eftir Amerískum
Cocker. „í heildina er um skemmti-
legan hund að ræða sem hefur gam-
an af að leika sér,
er alltaf kátur og
fjörugur og afskap
lega húsbónda-
hollur," segir hún.
bergljot@dv.is
Svífur glæsilega um Og
feldurinn eins og ballettkjóll.
Hún heitir Gull-Gæfu Wet N
Wild.þessi glæsilega tík.
m.
Bryndís Petursdóttir er ánægð með sína
hunda Her er hún með Hnetu en hún hefur ver-
ið synd talsvert og unnið til verðlauna á sýning-
um. Feldurmn skiptir miklu máli en það er mikil
vinna að halda honum fallegum.
Isfirðingar ánægðir
Loksins alvöru gæludýraverslun
„Verslunin hér gengur bara
ljómandi vel en það eru rúmar þrjár
vikur síðan við opnuðum," segir
Harpa Þorbjömsdóttir Stangeland
sem ásamt stjúpföður sínum, Jóni
Stangeland, opnaði gæludýraversl-
unina Furðufiska og fylgifiska á Isa-
firði í byrjun mánaðarins.
Það eru ár og dagar síðan
gæludýr voru síðast til sölu á ísa-
firði en þá gátu bæjarbúar keypt
sitt lítið af hverju í blómaverslun
bæjarins. En verslun þeirra Jóns
og Hörpu er sú fyrsta í bænum
sem sérhæfir sig í sölu á gælu-
dýrum og öllu þeim tengdu.
Harpa segir að Vestfirðingar hafi
verið duglegir að koma og margir
hafi lýst yfir ánægju sinni með
verslunina. „Hér er auk fugla, fiska
og annarra smádýra til allt sem
hunda- og kattaeigendur þarfnast,
eins og hágæðafóður, leikföng, sér-
stök áhöld til feldsnyrtingar, fatn-
aður fyrir hunda og körfur og bæli,
svo fátt eitt sé nefnt," segir Harpa
sem er mjög ánægð á ísafirði en
hún hafði ekki áður búið fyrir vest-
an en stjúpfaðir hennar sem rekur
búðina með henni er Súgfirðingur
og þekkir vel til á Vestfjörðum.
Harpa Stangeland með eigin dýr
Þau eru hjá henni i búðinni og eru ekki til
sölu en Chihuahua-tíkin Mia er rúmlega
ársgömul og óvenju litil en gaukurinn er
af tegundinni Afrikan Greyen þannig
fuglareru til sölu i búðinni hiri henni