Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2005, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005
Lífið DV
Hrafn Jökulsson er fertugur í dag. Frá því hann stökk fyrst fram
á sjónarsviðið sem blaðamaður, skáld og bóhem hefur Hrafn
verið á milli tannanna á fólki. í dag er hann breyttur maður. Seg-
ist sjá eftir mörgu úr fortíðinni en horfir björtum augum fram á
veg. „40 ára?“ segir Hrafn. ,Ætli maður verði ekki að gangast við
þessu. Nothing to be done - eins og góðvinur minn Ivan Sokolov
sagði."
aramótinu var hugmyndin bara að
vinna. Eftir að hafa svo unnið aila titla
sem hægt var að vinna og orðið ís-
landsmeistarar þrjú ár í röð ákváðum
við að hætta keppni og breyta hlutverki
Hróksins. Fórum að útbreiða skáklist-
ina til bama í Grænlandi og Afríku, gefa
skákbækur í alla íslenska grunnskóla.
Slíkt starf er þýðingarmeira en medalí-
ur sem safria ryki í glerskápum."
15 ára blaðamaður
Það er erfitt að stoppa Hrafn af
þegar skákin er annars vegar. Ég færi
talið að árum Hrafns í blaðamennsk-
unni. Þegar hann var einn yngsti rit-
stjóri landsins, harðsnúinn rannsókn-
arblaðamaður og umdeildur þjóðfé-
lagsrýnir.
„Mér finnst ósköp gaman að blaða-
mennskunni. Held því ffam að ég eigi
25 ára aftnæli sem blaðamaður," segir
Hrafn sem er bróðir Iiluga Jökulsson-
ar. „Ég byijaði einmitt 15 ára sem um-
sjónarmaður bamasíðu Tímans sem
þá var í ritstjóm Illuga og Egils Helga-
sonar. Mér þykir vænt um að hafa
skrifað í það merkilega rit. Síðan fór ég
á Þjóðviljann. Ætli það hafi ekki verið
fleiri í yfirmannsstöðum á ritstj óminni
en blaðamenn. Þrír ritstjórar. Ámi,
össur og Þráinn. Svo vom fréttastjórar
og ritstjómarfuHtrúar. Held að Mörður
Árnason hafi verið aðstoðarritstjóri
eða eitthvað í þá vem."
Hrafii vann í nokkrar vikur á Þjóð-
viljanum en var síðan gerður að rit-
stjóra Sunnudagsblaðsins, 21 árs
gamall. Hann segir að á þessum tíma
hafi verið einhver óeirð í sálinni, hann
hafi skrifað bækur og ferðast um
heiminn. Balkanskagann, sem þá stóð
í ljósum logum, en snúið aftur árið
Við sitjum á efri hæðinni á Café
Puccini. Kebab á leiðinni. Hrafn les
yfir próförk af nýrri skákbók sem
verður gefin út um jólin. Hún á að
heita Tær snilld - samansafn fallegra
sóknarskáka síðustu alda. Og Hrafn
er í sókn. „Hvítur á leik," skrifar hann
á próförkina. Síðustu forvöð til breyt-
inga.
Hrafn biður um sígarettu - einn af
þeim slæmu ávönum sem hann hef-
ur ekki náð að losa sig við - kveikir í
og heldur áfram. Helgina áður fékk
hann Biblíuna í gjöf frá sóknarprest-
inum í Hafnarfirði fyrir starf sitt í
þágu skáklistarinnar. Það em breyttir
tímar. Áður fóm opinberir starfs-
menn í mál við Hrafn sem reif kjaft
við mann og annan. Nú launa guðs-
menn honum gott starf með hinni
helgu bók.
Upphaf Hróksins
„Ég var kannski of harðskeyttur í
gamla daga," segir Hrafn og glottir.
Þeir sem þekkja hann vita að fátt hef-
ur breyst. Nú eru áherslumar aðeins
aðrar. „Jú, ég stend í ýmsum stórræð-
um með félögum mínum í Hróknum.
Við emm að festa í sessi skákvæðing-
una á íslandi. Tryggja að íslenska
skákvorið haldi áfram. Ég miða tíma-
mót frekar við áfanga í h'finu en ára-
fjölda. Nú er stórum áfanga hjá
Hróknum lokið. Félagið hefur gjör-
breyst."
Við höldum til baka nokkur ár. Til
stofnunar Hróksins á gamla Grand
Rokki á Klapparstígnum. Hrafn segir:
„Þetta byrjaði allt haustið 1998. Eig-
inlega sem brandari hjá okkur vinun-
um sem sóttum Grand Rokk á Klapp-
arstígnum þar sem nú er Sirkus."
Lítill Hrafn
Jökuls Ærsla-
fullur glókollur.
Töffari í leðurjakka
Á gamalli ljósmynd úr filmusafn-
inu sést Hrafn fyrir aftan barinn á
Grand Rokki að dæla bjór. Á þessum
tíma var hann yfirleitt titlaður bar-
þjónn eða bareigandi. Kannski ekki
eins virðulegur titill og forsetanafnbót
Hróksins sem Hrafri ber í dag.
„Ég var nú aldrei bareigandi en brá
mér í gervi barþjónsins endmm og
eins. Á Grand Rokk komu menn úr
öllum áttum. Þetta var kraumandi
pottur hugmynda og góðra manna en
skáldn var sterkasta kryddið í þeirri
skál. Við tefldum inni á staðnum og í
bakgarðinum. Ég man einu sinni þeg-
ar Dan Hansen tók 10 blindskákir
samtímis í bakgarðinum árið 1997.
Dan heitinn var prímusmótor Hróks-
ins. Það var hann sem fékk hugmynd-
ina að búa til keppnislið og keyrði
starfið áfram.“
Á annari mynd af Grand Rokk
árum Hrafns er hann klæddur í brún-
an leðurjakka, með pípu í munnvik-
inu og horftr íhugull á skákborðið fyr-
ir ffaman hann. Hrafn játar því að
margt hafi breyst síðan þá þótt tí'minn
yfir skákborðinu hafi síst minnkað.
„Þetta var kannski meira rokk og
ról. Við héldum uppi okkar eigin
menningu á staðnum. Með upplestr-
um, tónleikum og skákinni. Þegar við
ákváðum að taka þátt í íslandsmeist-
þýðublaðsins. Þar fékk Hrafh eldskírn
sína fyrir dómstólum landsins. Um-
deild skrif um Harald Johannessen,
sem þá var fangelsismálastjóri en er í
dag ríkislögreglustjóri, urðu tilefni
réttarhalda.
Réttað yfir Hrafni
„Þetta voru öðruvísi tímar í fjöl-
miðlum. Það var meiri virðugleika-
blær yfir öllu. Enginn mátti fara yfir
ákveðin landamæri. Það mátti ekki
gagnrýna biskupinn, Hæstarétt, for-
setann eða aðrar merkispersónur. Al-
þýðublaðið þótti fulliéttúðugt í um-
fjöllun sinni um þessar merkispersón-
ur. Og með Harald... Það sprakk á Al-
þýðublaðsárunum," segir Hrafn.
„Ég hafði verið að kynna mér mál-
efni fanga. Gagnrýnt aðbúnað þeirra,
skertan heimsóknartíma og þá stað-
reynd að unglingsstrákar voru lokaðir
inn í þessu öryggisfangelsi. Gagnrýni
mín var Haraldi tilefni til að klaga mig
til Ríkissaksóknara en þá voru sérstök
lög um að ekki mætti móðga opinbera
starfsmenn. Mér til mikillar ánægju
unnum við Jón Magnússon máhð fýr-
ir héraðsdómi og Hæstarétti. í kjölfar-
ið var þessum lögum breytt."
Hrafn tekur sér stutta pásu. Endur-
tekur síðan ummælin frægu: „Harald-
ur Johannessen er ekki fangelsismála-
stjóri. Hann er glæpamannaframleið-
andi ríkisins," og hlær. Ég spyr hvort
hann standi enn við ummælin. Hrafh
segir: „Þau standa í samhengi síns
tíma." Ég spyr hvort Valtýr Sigurðs-
son, núverandi fangelsismálastjóri,
hafi tekið við keflinu af Haraldi. Hrafn
svarar neitandi:
„Ég hef milda trú á að Valtýr sé og
verði farsæh í starfi. Staðurinn og yfir-
völd vilja bæta sig í þessum mála-
flokki. Hrókurinn hefur nú í rúmt ár
sinnt skákkennslu uppi á Hrauni. För-
um tvisvar í mánuði og teflum við
fangana og það er orðinn til noklcuð
góður hópur skákmanna innan fanga-
veggjana. Á Litía-Hrauni sér maður
kannski best hve mannbætandi áhrif
skákin hefur og þetta verkefni er unn-
ið í góðri sátt við yfirvöld sem hafa nú
vilja til að reyna eitthvað nýtt."
Breyttur maður
í ffamhaldi af þessu segir Hrafn:
„Þetta kennir manni kannski að ár-
angursríkustu aðferðimar eru ekki
ahtaf þær háværustu. Ég var of harð-
skeyttur í gamla daga. Gekk fram á
þessum árum í fuhvissu þess að ég
hefði aUtaf rétt fyrir mér. Hef örugg-
lega misst sitthvað út úr mér sem
hefði mátt vera látið ósagt. Maður nær
held ég meiri árangri með jákvæðum
Hrafn Jökulsson á
Grænlandi árið '03
Útbreiðir skákboðskap-
'<nn á Grænlandi og víðar.
A Grand Rokki
'99 Töffariileð-
urjakka með
pípu ímunnvik-
Hrafn Jökuls-
son í dómsal
árið'96 Vann
sigur í máli Har-
aldarJohann-
essens sem taldi
Hrafn hafa
móðgað sig.
Ritstjóri Al-
þýðublaðsins
árið '95 Hrafn
Jökulsson stýrði
blaðinu i tvö ár.
Brosandi út að eyrum
Hrafn árið 1990 ásamt
Bjarna Guðmundssyni sagn-
fræðingi en saman gáfu þeir
út bókina Ástandið.
Fyrir aftan
barborðið
Myndin ertekin
1997.Hrafni
hlutverki bar-
þjónsins á
GrandRokki.
aðferðum. Heiminum er ekki breytt
með aðfinnslum heldur fordæmum.
Þess vegna hef ég ekki haft mig mhdð
frammi í opinberri umræðu hin síðari
ár. Hef einfaldlega ekki haft þörf á
því."
Hrafn virðist einnig hafa breytt um
lífsstíl. Þær em margar sögumar sem
feira af lífemi Hrafiis á hans yngri
árum. Óregla einkenndi marga af hans
kynslóð sem stukku ffam á sjónarsvið-
ið í íjölmiðlunum og létu að sér lcveða.
Er Hrafn bindindismaður í dag?
Hrafn segir: „Ég vh gefa sem
minnstar yfirlýsingar. Lífið hefur verið
skrautlegt og skringUegt. Ég skrúfaði
tappann á vodkaflöskuna fyrir
nokkrum árum og ákvað að láta hana
eiga sig."
Af hverju?
„Ef ég hefði haldið áfram hefði ég
drukkið mig til óbóta. Svo fékk ég
áhuga á öðm en að sitja tímunum
saman í gleðskap. í dag er ég óskap-
lega sáttur við flest í mínu h'fi hin síð-
ari ár.“
Lífið eins og skák...
Spurður hvemig heUsan sé kemur
aftur sama glottið á Hrafn þegar hann
segir: „HeUsan er fi'n eins og kom best
í ljós í nýafstöðnu skálcmaraþoni.
Mínir ungu og kátu samverkamenn
máttu hafa sig aUa við að vaka með
Keppnislið
Hróksins árið
'04 Öflugasta
skáksveit Is-
landssögunnar.
Siðasti keppnis-
hópur Hróksins.
„Efég hefði haldið
áfram hefði ég drukk-
ið mig til óbóta. Svo
fékk ég áhuga á öðru
en að sitja tímunum
saman í gleðskap. í
dag er ég óskaplega
sáttur við flest ímínu
lífi hin síðari ár."
mér yfir nóttina. Ég bý líka að því að
hafa mikið keppnisskap og lærði að
vinna sem ungur drengur norður á
Ströndum. Þar var vinna ekki val held-
ur skylda."
Ilmurinn af heitum kebab berst frá
neðri hæðinni af Puccini. Hrafn er aft-
ur kominn í símann. Trúlega að
skipuleggja skákheimsókn í grunn-
skóla eða útgáfu nýrrar bókar. Ég
lauma að þeirri spumingu hvað ffam-
tí'ðin, á þessum ö'mamótum, beri í
skautí sér.
„Lífið er eins og skák að þessu
leyti..." segir Hrafri og brosir. „Breytist
með hverjum leik og maður þarf alltaf
að endurmeta stöðuna." simon@dv.is
Ljoðskáldið
Hrafn Á Ijóða
upplestri árið
1986.
Hrafn Jökulsson
'99 Ásamt vini sínum
Róberti Harðarsyni
°g fyrrverandi eigin-
konu Guðrúnu Evu
Mínervudóttur.