Símablaðið - 01.01.1955, Qupperneq 36
10
SÍMABLAÐIÐ
r----------------------------------------------
KVEÐJA
íra gömlum iormanni
lrunnár acHram.
s._____________________________________________/
Það kom mér á óvart, þegar ég heyrði
það á dögunum, að F.l.S. ætti 40 ára
afmæli 27. febrúar n.k. því tíminn virð-
ist hafa liðið svo ótrúlega fljótt, en
þetta mun þó vera staðreynd.
Þegar ég minnist nú fyrstu starfsára
F.I.S., koma margar skemmtilegar end-
urminningar í hugann, bæði frá félags-
starfinu og gömlu félögunum, sem
margir eru nú horfnir sjónum.
Það var ungt og áhugasamt fólk, sem
undan mörg og mikilvæg verkefni, sem
útheimta samhug og samstarf allra fé-
lagsmanna. Er því áríðandi að allir fé-
lagsmenn standi fast saman um foryst-
una, því að keðjan er nú ekki sterkari
en veikasti hlekkur hennar.
Um leið og ég sendi innilegar kveðj-
ur mínar til allra símamanna, og þá
sérstaklega þeirra, er voru samferða-
menn mínir, þá árna ég félaginu okk-
ar, málgagninu, forystumönnum þeirra,
svo og símamannastéttinni í heild, geng-
is og velfarnaðar í bráð og lengd. Vona
ég að prúðmennska og drengskapur
megi áfram einkenna störf þeirra og
starfsaðferðir.
Otto Arnar.
að félagsstofnunni stóð og var þegar í
upphafi sköpuð sú stefna, sem enn mun
ríkja í aðaldráttum í starfi félagsins.
Hópurinn var ekki stór, en samvinna
þeirra var með ágætum og bjartsýni
á framtíð félagsins var mikil, og eftir
því sem árin liðu óx því fiskur um
hrygg, og hefur verið ánægjulegt að
fylgjast með starfi þess á liðnum ár-
um. Nú má segja, að F.l.S. sé orðið
voldugt félag, sem mörgu góðu hefur
komið til leiðar, bæði fyrir landsmenn
og félaga þess.
Það er fróðlegt að blaða í Elektron
og Símablaðinu, því þar má finna starfs-
sögu félagsins ár frá ári, en þegar lit-
ið er yfir farinn veg, má segja, að þau
markmið, sem félagið hafði í upphafi
sett sér að vinna að, hafa gengið fram
vonum betur og má þakka það, að í
öllum stærstu málum, sem á dagskrá
hafa verið, hafa menn verið samhentir
um að koma þeim í framkvæmd og er
vonandi að svo verði enn í framtíðinni.
Þegar á fyrsta ári félagsins sáu menn
að þar sem félagarnir voru dreifðir út
um allt land, var nauðsynlegt að gefa
út sérstakt blað fyrir stéttina og tel
ég óhikað, að blaðið hafi haft hin beztu
og mestu áhrif á það, hve samstarfið