Símablaðið - 01.01.1955, Blaðsíða 27
XX XX. árg.
1. tbl. 1955
£wabla$tí
Á síðustu UO árum hafa or&ið stórstíg-
ari framfarir á sviði atvinnulífsins hér á
landi en nolckru öðru jafnlöngu timabili.
Á sviði félagsmála er um hreina byltingu
að ræða, sem mörgum hefur ekki orðið
sársaukalaus í bili, — við ýmis þau spor,
er stigin voru, — en flestir sætt sig fljótt
við, og reynslan sýnt, að áttu fullan rétt
á sér. — Þegar alþýðusamtókin hófu göngu
sína, 1916, var ekki langt frá því að braut-
ryðjendur þeirra væru hálfgerðir land-
ráðamenn í augum mikils hluta þjóðar-
innar.
Árið 1915 voru þeir hlutfallslega ekki
fáir innan o k k ar stéttar, sem
ekki voru vissir um, að það samrýmdist
því, að vera góður þjóðfélagsþegn, að
ganga í hið nýstofnaða stéttarf'élag. Jafnvel svo glöggur og reyndur maður,
sem þáverandi landssímastjóri, 0. Forberg, leit þessi samtök hornauga
í fyrstu — og ekki laus við þá skoðun, að þessari félagsstofnun kynni að
vera beint gegn sér, sem yfirmanni stofnunarinnar. 1 því viðhorfi spegl-
aðist afstaða fjölda ráðandi manna á þeim tímum, en Forberg mun hafa
skilið það fyrr en flestir þeirra, að hér var um eðlilega og sjálfsagða
þróun að ræða. — Fyrstu 10 ára starf F.I.S. gaf því þann innri styrk,
sem verið hefur kjölfesta þess síðan. Á því tímabili, eða strax á bernsku-
skeiði, fékk það við að glíma viðfangsefni, sem reyndu á þolrifin, — og
sem hvað eftir annað lá við að kostaði þá, sem fremstir voru, stöðuna.
Þar áttust við ný og gömut viðhorf, — nýi og gamli tíminn.
En þeim, sem þá stóðu oft í óvæginni orrustu, skyldist það, hve
ómetanlegt það er slíkum félagssamtökum, að eiga mál sín að sækja
á hendur manni, sem kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Fyrir
það munu þeir ætíð minnast 0. Forbergs landssímastjóra með virðingu,
og telja félag sitt í þakkarskuld við hann, jafnvel þó hann væri oft harður
í horn að taka. En undir hann átti félagið mál sín að sækja fyrstu 10 árin,
þau ár, sem það var að skapa sér tilverurétt. A. G. Þ.
Olav E. Forberg.