Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Side 4
Fréttir DV
HMP@?SW£MGU/mNÓ\ÆMBER200$%3»^2 I V .ixV ’» ■ ■>» u^’>- ■-,•■ -w/y
Saltfiskpökkun
í Þorlákshöfn
Meiri atvinna verður fyr-
ir íbúa í Þorlákshöfn á
næstunni. Fiskvinnslufyrir-
tækið Hólmaröst hyggst
flytja saltfiskpökkun sína til
Þorlákshafnar eftir áramót.
Hólmaröst hefur tekið yfir
alla flokkun og saltfisk-
pökkun fyrir Iceland
Seafood sem áður var í
Hafnarfirði. Að sögn Björns
Inga Björnssonar hjá
Hólmaröst munu stöðu-
gildi ekki aukast mikið fyrir
austan en þó er ljóst að
einhver atvinnuaukning
muni verða fyrir íbúa Þor-
lákshafnar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar sagði á flokksstjórnar-
fundi á laugardaginn að standa þurfi vörð um miðjuna í íslenskum stjórnmálum.
Einnig að Morgunblaðið sé hræsnisfyllsti fjölmiðill landsins. Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra og Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri-
grænna voru spurðir um ummælin.
Samfylkingin þangað
sem vindar hlása
Dagur
íslensku
tungunnar
Hið ástsæla skáld íslend-
inga, Jónas Hallgrímsson,
fæddist þann 16. nóvember
1807 og á bráðum 200 ára
fæðingar-
afmæli. í tilefni
fæðingardags
Jónasar verður
Grunnskólinn í
Borgarnesi með
dag íslenskrar
tungu á
miðvikudaginn
16. nóvember. Eldri nem-
endur lesa fyrir þá yngri úr
ljóðum Jónasar Hallgríms-
sonar. Nemendur í sjötta til
níunda bekk grunnskólans
munu einnig vera með
upplestur og söng á þriðju-
daginn næstkomandi í
kirkjunni í Borgarnesi.
Glæsilegt framtak skólans
til eflingar íslensku tung-
unnar.
Strútar og
kengúrur í
jólamatinn
Núna þegar allir keppast
við að halda jólahlaðborð
og bjóða upp á sem fjöl-
breyttasta úrvalið eru veit-
ingastaðir með ansi sér-
staka rétti sem ekki hafa
sést oft á
j matar-
borðum
. hér á
landi.
Sævar
Þorbergs-
son á veit-
, ingastaðn-
f<um Narf-
eyrarstofu í
Stykkishólmi
býður gestum sínum uppá
frumlegt jólahlaðborð í ár.
Hann verður með á
boðstólum strútakjöt,
kengúrukjöt og dádýrakjöt.
Innflutningur á þessum
kjötvörum hefur aukist til
íslands og ættu landsmenn
að geta prófað nýjan rétt á
aðfangadagskvöld í ár.
Ræða Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingar-
innar, á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardag hefur
vakið mikla athygli. Þar sagði hún að standa þurfi vörð um miðj-
una í íslenskum stjórnmálum. Um 60% landsmanna væru fylgj-
andi auknum jöfnuði í þjóðfélaginu og það eitt ætti að styrkja
stöðu Samfylkingarinnar.
DV talaði við Guðna Ágústsson
landbúnaðarráðherra og Ögmund
Jónasson formann þingflokks
Vinstri-grænna og spurði þá um
ummæli Ingibjargar Sólrúnar.
Einnig voru þeir spurðir um um-
mæli hennar þegar hún sagði á
flokksstjórnarfundi að Morgunblað-
ið væri hræsnisfyllsti fjölmiðill
landsins.
Engin miðja án Framsóknar
„Farsælasta stjómin sam-
anstendur af flokkum sem aðhyllast
framsækna félagshyggju eins og
Framsóknarflokkurinn,“ segir Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra.
„Til að það tak-
miðjustjórn. Ég er sammála Ingi-
björgu um að miðjuflokkarnir em að
styrkjast og flestir flokkar leita inn að
miðju nema Vinstri-grænir. Fram-
sóknarflokkurinn þarf að eflast til að
miðjuafl í stjórnmálum haldist
sterkt," segir Guðni.
Honum þykja orð Ingibjargar um
Morgunblaðið stór. „Mér finnst hún
taka stórt uppí sig með þessum um-
mælum og svolítill hroki í þeim þó
ég finni stundum sjálfstæðisbragð af
Mogganum."
Samfylking snýst eins og
vindar blása
„Þegar stjórnmálaflokkur em
farinn að lýsa
sér sem
miðjuflokki finnst mér það yfirleitt
sýna að þeir séu opnir í báða enda
og tilbúnir að snúa í þá átt sem vind-
arnir blása hverju sinni," segir Ög-
mundur Jónasson formaður þing-
flokks Vinstri-grænna.
„Ég hef alltaf sagt að Samfylking-
in hneygist til hægri eins og til dæm-
is áhersla flokksins á markaðsvæð-
ingu. Framsóknarflokkurinn er
miðjuflokkur þó hann sé frekar til
hægri í seinni tíð og hefur verið
tilbúinn til að snúa þangað
sem vindar blása," segir Ög-
mundur. Hann segir
Vinstri-græna líta á
Samfylkinguna sem
vænlegasta valkostinn
til vinstri ef til stjórnar-
samstarfs kæmi en seg-
ir jafnframt að Sam-
fylkingin þurfi að tala
skýrt svo kjósendur og
samstarfsaðilar átti sig á
þvf hvar flokkurinn standi.
Morgunblaðið alltaf til
hægri
Ögmundur segir að Morg
unblaðið hafi aldrei farið
dult með sína pólitík sem
sé til hægri og það
komi af-
dráttarlaust fram í leiðurum blaðs-
ins. „Þegar dregur að kosningum
smitast þessi stefna Morgunblaðsins
út í fréttaflutninginn. Morgunblaðið
er hinsvegar með góða og vandaða
fréttamennsku og er vettvangur til
skoðanaskipta í þjóðfélaginu," segir
Ögmundur.
jakobina@dv.is
Stjörnur sem orka tvímælis
Svarthöfði skemmti sér kon-
unglega yfir Edduverðlaunahátíð-
inni á Nordica hóteli í gær. Stór-
kostlegt að fylgjast með þessu fína
fólki skemmta sér í sjónvarpinu.
Svarthöfði hefði reyndar viljað fá
tilnefningu en leið þó ágætlega
með „alvöru fólki" fyrir framan
skjáinn.
Hátíðin var undirlögð af glansi
og glamúr. Sjónvarps- og kvik-
myndastjörnurnar okkar eru á
heimsmælikvarða á skjánum. Og
skemmta sér vel fyrir framan vél-
arnar. Það fór ekki milli mála.
Stjörnurnar njóta sín þegar vel
gengur. Brosa sínu breiðasta og
í
r'S
Svarthöfði
stilla sér upp. Svarthöfða þykir aft-
ur á móti verra hversu hátt heyrist í
þeim þegar umfjöllunin er ekki á
þann veg sem þær kjósa. Þær elska
sigursögurnar en ef sagt er frá því á
sama stað þegar ekki er allt í blóma
verður allt vitlaust. Og þannig
gengur þetta hring eftir hring.
Flestar heimta stjörnurnar athygli
en vilja svo rífa linsuna af vélunum
þegar hentar. Þetta eru stjörnur
sem orka tvímælis.
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað rosalega gott,“segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, sem sigraði í próf-
kjöri framsóknarmanna í Kópavogi um helgina.„Ég er reyndar þreyttur í dag, svaf lítiö iaugardags-
nóttina og fórsvo að dæma fótboltaleik í Flfunni hér í Kópavoginum á sunnudagsmorgun. Ég
var að dæma íöðrum flokk kvenna en ég hefdæmt fótboltaleiki undanfarin 20 ár. Annars
er ég bjartsýnn á framtíðina og tel úrslitprófkjörsins vera frábæran sigur fyrir fiokkinn."