Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 HHBB mmstm mss Fréttir TÍÍ|| ísf irðingar og fuglaflensa ísfirðingar vilja vita meira um fuglaflensuna og hvernig megi verjast henni. í kvöld, mánudagskvöld, verður haldinn fyrirlestur í sal Menntaskólans á ísa- firði þar sem sérfræðingur í alifuglasjúkdómum, Jarle Raiersen, mun fræða fólk um þennan skæða sjúk- dóm sem skelfir heims- byggðina. Það er Vestfirska akademían í samstarfi við Menntaskólann á ísafirði og Náttúrustofa Vestfjarða sem standa að þessum fyr- irlestri. Eyjamenn hamingju- samir" Samkvæmt því sem Eyjafrétt- ir greina frá í blaði sínu eru tæplega 80% þeirra sem spurðir voru um það hvernig væri að búa í Vest- mannaeyjum ánægðir með að búa þar. 8% aðspurðra sögðu að það væri ömur- legt að búa í Eyjum og 10% af þeim sem voru spurðir fannst það sæmilegt. í Vestmannaeyjum er mikið rætt um hugsanleg jarð- göng á milli lands og Eyja og kann það að vekja von- arglætu hjá eyjarskeggjum um bættar samgöngur. Tœknifrjóvgun einhleypra og lesbíaa íslandi? Pétur H. Blöndal alþingismaðurSjálfstæöisflokksins „Ég sé ekkert að þvl. Ríkið á ekki að skipta sér afsvona einkamálum fólks og þess vegna tel ég að ef einkaaðilar viija þjóða upp á þessa þjón- ustu sé það í lagi. Það þarfað vlsu lagabreytingu til að svo geti orðið og ég er ekki á móti þvíað lögum verði breytt Iþá átt." Hann segir / Hún segir „Þetta er réttindamál sem ég er búin að berjast fyrir Í3árað samkynhneigðar og einhleyp- ar konur hafi sama rétt til tæknifrjóvgunar á Islandi og giftar konur. Það er að koma til afgreiðslu frumvarp til laga á þingi um þessi mál á næstu dögum. Það þarfað vera laga- grundvöllur til þess að þetta nái I gegn." Guðrún ögmundsdóttir, alþingismaðurSamfylkingarinnar. Iceland Health, sem selur íslenskt lýsi í Bandaríkjunum, notar platfyrirtækið Lang- lífisstofu íslands til að segja Bandaríkjamönnum að hollt sé að taka omega-lýsistöfl- ur. Forstjóri Langlífisstofu er sagður læknirinn Jón Pétur Sigurðsson en sá eini á íslandi með því nafni býr á Sauðárkróki og starfar í byggingavinnu. Lýsi hf. pakk- ar og merkir þessa vafasömu vöru en þar á bæ firra menn sig allri ábyrgð. Katrín Pétursdóttir Framkvæmdastjóri Lýsis sem aðstoðar lceland Health í neytendasvindlinu. ICEIANDIC LCNGEVITY JNSTITUTEj MAXIMU® OMEfjA-3 Höfuðstöðvar lceland Health Sam kvæmt heimasíðu fyr- irtækisins eru þetta höfuðstöðvarnar. Gluggana er búið að merkja upp á nýtt með tölvuforriti. Jon Petur Sigurðs- son Sá eini á islandi með þessu nafni. Hef- ur mestmegnis verið til sjós en starfar nú í byggingavinnu á Sauðárkróki. mu r* r. „Ég hef mestmegnis verið til sjós en nú starfa ég í bygginga- vinnu,“ segir Jón Pétur Sigurðsson sem sagður er læknir og for- stjóri platfyrirtækisins Langlífisstofu fslands, sem er notað í markaðssetningu fyrirtækisins Iceland Health á omega-lýsistöfl- um í Bandaríkjunum. Sjálfur kannast Jón Pétur ekkert við Langlífisstofu Islands en sam- kvæmt þjóðskrá er hann eini íslend- ingurinn með því nafni og því erfitt að skUja hvað veldur því að bygginga- vinnustarfsmaður frá Sauðárkróki sé titlaður forstjóri Langlífisstofu. Platrannsóknir Hinn svokallaði forstjóri Langlíf- isstofu, Jón Pétur Sigurðsson, skrifar á heimasíðu fyrirtækisins að hlut- verk Langlífsstofu íslands sé að koma á framfæri vísindalegum upp- lýsingum bæði af rannsóknum fræðimanna og eigin rannsóknum, um lykilatriði sem varða eflingu heilsu og langlífis. Þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir náði DV ekki að finna hvar þær rannsóknir hafa verið gerð- ar, á hvers vegum eða hvenær. Með höfuðstöðvar á reykvísk- um restaurant Fyrirtækið Iceland Health birtir á heimasfðu sinni mynd af veitinga- húsinu ftalíu á Laugavegi og segir höfuðstöðvar sínar. Við markaðssetningu fyrirtækis- ins á omega-lýsistöflum í Bandaríkj- unum er vitnað til Langlífisstofu. Sagt er að fyrirtækið hafi rannsakað áhrif omega-lýsistaflna og komist að þeirri niðurstöðu að þær séu hollar öllum og lykillinn að góðri heilsu og langlífi Islendinga. Þótt ekki sé endi- lega deilt um að heilsa og langlífi fs- lendinga sé til fyrirmyndar er líklega umdeilt hvort taka eigi orð fyrirtækis á borð við Langlífistofu urri þau sannindi trúanleg. Lýsi hf. sér um pökkun Það er hið alíslenska og rótgróna fyrirtæki Lýsi hf. sem selur Iceland Health omega-lýsistöflur til sölu í Bandaríkjunum. Töflunum er pakk- að og þær eru merktar hér á landi. Á pakkningunum sem Lýsi hf. setur á töflurnar stendur að varan hafi verið rannsökuð af Langlífisstofu og að stofnunin mæli með notkun hennar. Því til stuðnings er vöru- meki Langlífis- stofu sett á merkimiðann, viðurkenn- ingarstimpill til að lokka að neytendur. Greinileg blekk- ingarstarfsemi á ferðinni. „Það eina sem við ábyrgjumst er að réttar upplýsingar um innihaldið séu á pakkningunum," segir Jón Ög- mundsson, gæðastjóri hjá Lýsi hf., sem sér um að líma blekkjandi upp- lýsingar á íslenska framleiðslu sem seld er í Bandaríkjunum. En það er verið að ljúga að neyt- endum? „Það er ekki á okkar ábyrgð, neyt- andinn fær réttar upplýsingar um innihald. Við ábyrgjumst ekkert ann- að.“ Sárnar þér ekkert að íslenska lýsið sé markaðssett á þennan hátt í út- löndum? „Ég ætla ekkert að tjá mig um það.“ Ábyrgðarmaður síðunnar vinnur á bóksölu Erfitt hefur reynst að ná í aðila tengda Iceland Health og Langlífis- stofu fslands. Þó náði DV í eiganda og ábyrgðarmann lénsins sem vistar heimasíðu Langlífisstofu, Sif Jónsdóttur. Sextán ára son- ur hennar er skráður sem tæknilegur tengiliður heimasíð- unnar. Sif Jónsdóttir var við störf í Bók- sölu stúdenta þegar DV hafði samband við hana. Starf hennar útskýrir kannski tengsl fyrirtækisins við Háskóla íslands en mynd af háskólanum er „Það er ekki á okkar ábyrgð, neytandinn fær réttar upplýsingar um innihald. Við ábyrgjumst ekkert annað." að finna á heimsíðu Langlífisstofu. Líklega til að undirstrika að fyrirtæk- inu, sem og vísindalegum niðurstöð- um þess, ætti að vera treystandi. Bandarískir svindlarar Sif Jónsdóttir átti erfitt með að út- skýra tengsl sín við Langlífisstofu ís- lands. Svo virðist þó að lykilmaður- inn í svindli Iceland Health og Lang- lífisstofu íslands sé barnsfaðir Siijar, Mark Stensberg, og samstarfsmaður hans, Amold Blair. Sif neitaði að gefa upplýsingar um hvar þessa menn væri að finna. Þess í stað ætlaði hún að afla sér skýringar á því hvers vegna nafn hennar hafi flækst inn í svikamyll- una. „Ég ætla að láta loka þessari síðu, það er klárt mál,“ sagði Sif. Skömmu síðar var heimasíðu Lang- lífisstofu fslands lokað. Tilkynning um að ný sfða verði opnuð á mið- vikudaginn var hins vegar komin í staðinn. Ekki náðist í framkvæmdastjóra Lýsis, Katrínu Pémrsdóttir, þrátt fyr- ir ítrekaðar tilraunir. andri@dv.is lt>vjoom:Hrna\> Dr. Jon Petur Sigurösson Þessi er sagður forstjóri Langlífisstofu en er i raun ekki tii. Lýsistöflurnar sem seldar eru í Bandaríkjunum Gæðastimpill plat fyrirtækis notaður tilað selja. Dr. Jon Petur Sigurðsson Þessi er sagður forstjóri Langlífisstofu en er i raun ekki tii. Iceland Health Selur íslenskt lýsi i Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.