Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Page 18
 $port DV Erlingur að yfirgefa Þrótt Varnarmaðurinn Erling- ur Þór Guðmundsson mun ekki leika með fyrstu deildar liði Þróttar á næstu leiktíð. Erlingur sem er uppalinn Þróttari lék alls ell- efu leiki með lið- inu í Landsbanka- deildinni í sumar en hann kom inn á sem varamaður í flestum þeirra. Nokkur lið í fyrstu og annarri deild munu hafa sýnt Erlingi áhuga og verð- ur spennandi að sjá hvert hann fer. Þórsari til reynslu hjá Crystal Palace Víglundur Páll Einarsson varnarmaður úr____________ Þór er á lei ð til enska fyrsi u deildar lið; ;ins Crystal Pai ace til reynslu. Víglundur mun haldí út í dag og ver i til reynslu í vikutíma SM Hann gekk á dögunum aft- ur til liðs við sitt gamla félag Þór en hann spilaði með Fjarðabyggð í annarri deild- inni í sumar og skoraði þrjú mörk í sextán leikjum þar. Þremur högg- um frá niður- skurðinum Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG féll í gær úr leik á lokastigi úrtökumótsins fyr- ir evrópsku móta- röðina sem fram fer á San Roque vellinum á Spáni. Birgir lék sinn besta hring á mót- inu í gær eða á 73 höggum en það dugði ekki til og var hann þremur höggum frá því að komast í gegn um niður- skurðinn. Eftir hringinn í gær var keppendum fækkað niður í 70 og leika þeir tvo hringi í viðbót. Þeir 30 efstu komast svo áfram á evr- ópsku mótaröðina. Upplýslngar I slma 680 2626 Texta.va.rpi Stöö 2 • 160-163 RÚV • 201, 203 og204 Vinningstölur 12. 11. 2005 V. V 2D ?9) 3V 3 Tvöfaldur 1. vinningur ta*0, næsta laugardag „Ég held bara að við höfum borið of mikla virðingu fyrir Svíunum úti og það fór með okkur,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Valsmanna eftir að liðið féll út úr EHF-keppninni í gær. Það má taka undir orð Óskars því að Valur sigraði sænska liðið Skövde 24-22 í gær en útileikurinn sem tapaðist með sjö mörkum felldi liðið. Haukar luku keppni í Meistaradeild Evrópu með tapi á Ítalíu. Valur og Haukar úr í Evrópukeppnunum Jfi*r/oN Valsmenn byrjuðu af krafti í leiknum í Laugardagshöllinni í gær vel studdur af þeim áhorfendum sem mættu til leiks. Þeir komust meðal annars í 4-1 áður en Svíarnir sneru taflinu við og komust í 4-6. Pálmar Pétursson var að verja vel á köflum en í sókninni voru Valsmenn ekki að hitta markið nógu vel og til að mynda varði markvörður Svíanna aðeins eitt skot á fyrstu tutt- ugu mínútum. í Meistaradeild Evrópu duttu Haukar úr leik eftir tap fyrir Torggler Meran á ftalíu. Skövde var 10-13 yfir í leikhléi en Valsarar náðu að jafna fljótlega í síð- ari hálfleik. Jafnræði var með liðun- um mest allan síðari hálfleikinn en undir lokin sigldu Valsarar fram úr. Þegar um hálf mínúta var til leiksloka fékk Skövde vítakast í stöð- unni 23-22 fyrir Val. Pálmar varði vítakastið og Hjalti Pálmason inn- siglaði svo 24-22 sigurinn með síð- asta skoti leiksins. Óskar Bjami Óskarsson þjálfari Vals vildi meina að þetta hefði verið besti leikur liðsins í vetur en hins- vegar hefði byrjunin út í Svíþjóð í raun eyðilagt möguleikana á að komast áfram. Hann er hinsvegar ánægður með að Valsmenn hafi náði í þriðju umferð. „Það er nú varla að marka fyrstu umferðina sem var grín. Ég held bara að við höfum borið of mikla virðingu fyrir Svíunum úti og það fór með okkur, fyrstu tíu mínúturnar 9-3. Við stefndum á þriðju til fjórðu umferð og ég er bara sáttur," sagði Óskar við DV eftir leik. Leikstjórnandinn Sigurður Egg- ertsson var ekki með Valsmönnum í leikjunum tveimur þar sem hann er meiddur. Óskar sagði það hafa skipt máli. „Já, hann er besti sóknarmað- urinn í deildinni og okkar landsliðs- maður. Auðvitað skiptir þetta máli. Mér finnst ótrúlegt hvað við höfum verið að spila vel án hans en það kemur alltaf maður í manns stað." Áhorfendur mættu ágætlega í Höllina í gær enda var fjölskyldu- skemmtun hjá Val. „Þetta er frábært í dag, fjölskyíduskemmtun. Ég vil að sjálfsögðu hvetja alla góða til að koma á miðvikudaginn á móti Fram,“ sagði Óskar. Mörk Vals: Baldvin Þorsteinsson 5/1, Mohamadi Loutouli 5, Ingvar Árnason 3, Fannar Þór Friðgeirsson 3/1, Kristján Karlsson 2, Atli Rúnar Steinþórsson 2, Elvar Friðriksson 2, Davíð Höskuldsson 1, Hjalti Pálma- son. Varin skot: Pálmar Pétursson 19/1 Haukar sáu aldrei til sólar Haukar hafa lokið keppni í Meist- aradeild Evrópu í handbolta. í gær tapaði liðið fyrir ítalska liðinu Tor- gler Group Meran á Ítalíu. Leikar enduðu 30-27 fyrir heimamönnum en Haukar komust aldrei yfir í leikn- um en náðu þó að jafna rétt fyrir leikslok. Hafnfirðingarnir enduðu í nesta sæti riðilsins en Torgler í því þriðja og fara í IHF-kepnina. ítalska liðið, sem nánast ein- göngu er skipað leikmönnum frá Austur Evrópu tók öll völd á vellin- um í fyrri hálfleik og náðu á tímabili sex marka forystu. Það var hins veg- ar beittara Haukalið sem mætti til leiks í síðari hálfleik en þrátt fyrir ágætis tilþrif tókst þeim ekki að snúa leficnum sér í vil og því þriggj a marka tap niðurstaðan. Með jafntefli hefðu Haukamir náð þriðja sætinu. Jón Karl Bjömsson, Halldór Ing- ólfsson og Freyr Brynjarsson vom bestir í liði Hauka. Aðrir leikmenn liðsins virtust frekar áhugalausir, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þar með hefur Evrópuævintýri Hauka mnnið sitt skeið og liðið get- ur nú einbeitt sér að verkefnum sín- um hér á landi. Mörk Hauka: Jón Karl Björnsson 7 (á mynd), Árni Þór Sigtryggson 5, Freyr Brynjarsson 4, Kári Kristjáns- son 3, HaÚdór Ingólfsson 3, Andri Stefan 2, Samúel Ivar Árnason 2 og Guðmundur Petersen 1. Sturla Ásgeirsson og félag- ar í Arhus unnu riðilinn með því að leggja Gorenje j Velenje frá Sló- veníu á heimavelli / sínum í gær og em þar með komnir í j 16 liða úrslit í keppninni. * Jn í strangri gæslu Mohamadi Loutouli skoraði fimm mörk fyrir Valen hér er hann I strangri gæslu þriggja varnarmanna sænska liðsins. DV-mynd E.ÓI. Spenna í handboltanum á laugardaginn Jókertölur vikunnar Á ■ • | |/| • /1“ • • • | • * h H f 19111218161 Ovæntur sigur Vikings/Fjolnis i Mosfellsbænum Fyrsti vinningur gekk ekki út. KW BO LiTTV Vlnnlngstölur mlðvlkudaglnn 9. 11. 2005 11 13 20 27 32 38 Tveir leikir fóm fram í DHL-deild karla í handbolta á laugardaginn og spennan var mikil í þeim. Fram og Þór gerðu jafntefli 26-26 í Safamýri en Jón Björgvin Pétursson jafnaði fyrir Fram þegar þrjár sekúndur vom eftir en Framarar sóttu á sjö leikmönnum undir lokin og tóku Eg- idjijus Petkevicius markvörð af velli. Jón Björgvin var atkvæðamestur í liði Fram með níu mörk, þar af fimm úr vítaköstum og Sigfús Sigfússon skoraði fjögur. Petkevicius varði síð- an fimmtán skot og Magnús Er- lendsson tók einn bolta. Hjá Þór var Amar Þór Gunnarsson markahæstur með níu mörk og Aijars Lazdins skoraði fimm. Shota Tevzadze varði svo sautján skot í markinu. Þór er sem fyrr í áttunda sæti deildarinnar en Framarar em á toppnum með Qórtán stig eftir níu leiki. í Mosfellsbæ urðu óvænt úrslit þegar botnlið Víkings/Fjölnis sigraði Aftureldingu 27-28. Sveinn Þorgeirs- son var hetja Víkings/Fjölnis en hann skoraði sigurmark leiksins með þmmuskoti á lokasekúndun- um. Brynjar Þór Hreggviðsson skor- aði mest fyrir Víking/Fjölni eða sex mörk og Bijánn Brjánsson kom næstur með fimm. Jón Árni Trausta- son varði sextán bolta í markinu og Hjalti Þorvarðarson varði tvö. Hjá heimamönnum var Ernir Hrafn Arn- arson atkvæðamestur með níu mörk en Haukur Sigurvinsson kom næst- ur með fimm mörk. Davíð Svansson varði ellefu bolta í markinu og gamla tók þrjá en Afturelding er í sjötta kempan Guðmundur Hrafnkelsson sæti deildarinnar. I gólfinu Þórsarinn Heiðar Þór Aðalsteinsson og Jóhann Einarsson, Fram, liggja I gólfínu eftir átök þeirra í leik liðanna um helgina. DV-mynd E.ÓI. ——s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.