Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Síða 22
NBA KÓRFUBOLTINN
22
MÁNUDAÚÚfilQ. NÖvÉmJeR 2005
Sport DV
Sama sagan hjá
Utah Jazz?
Koma á óvart
Milwaukee Bucks halda
áfram að koma á óvart og á
laugardagskvöldið vann lið-
ið ævintýralegan sigur á
Indiana eftir að
hafa verið í von-
lausri stöðu í
fjórða leikhluta
þegar skammt var
til leiksloka. Leik-
menn Indiana
hjálpuðu vel til
með því að brenna
af tíu vítaskotum á
lokamínútunum, en það var
svo Mo Williams sem var
hetja Milwaukee þegar
hann skoraði sigurkörfu
liðsins af um tíu metra færi
á hlaupum um leið og
lokaflautan gall og tryggði
liði sínu eins stigs sigur.
Hvaða meiðsli?
Tracy McGrady bætti
um betur þegar
hann sneri aftur
úr bakmeiðslum
með Houston á
laugardagskvöld-
ið. Hann lagði
grunninn að sigri
Houston á New
Jersey með því að
skora 35 stig og
hirða 10 fráköst. Stuðnings-
menn Houston anda líklega
léttar, því liðið er í einu orði
sagt skelfilegt í fjarveru
hans. Jeff Van Gundy þjálf-
ari sagði að leikur liðsins
hefði verið skipulagslaus
óreiða í fjarveru McGrady
og það er ekki langt ffá lagi.
Ekki tók Yao upp hanskann,
svo mildð er víst, enda tók
Hlynur Bærings hann létt í
fráköstunum hérna forðum.
Kannski að einhver þurfi
bara að fara að pota í hann
með spýtu.
Tímabilið hefur byrjað
vonum ffamar hjá Utah
Jazz, sem var fast í
kjallaranum í fyrra.
Mehmet „Memo"
Okur hefur farið á
kostum í fjarveru
Carlos Boozer og
er með 20/10 með-
altal. Vonandi
heldur hann áfram að spila
svona, því Andrei Kirilenko
tognaði illa á ökkla gegn
Chicago á laugardaginn og
getur þá sest við hliðina á
Boozer í jakkafötunum.
Menn eru famir að hvísla
sín á milli af hverju Boozer
er ekki löngu byrjaður að
spila, en hann á að vera
meiddur á læri. Sá er búinn
að vera á góðu kaupi síðan í
fyrravetur.
Arenas fór
hamförum
Washington burstaði
meistara San Antonio á
laugardagskvöldið 110-95.
Gilbert Arenas fór hamför-
' um í liði Washington og
skoraði 43 stig í leiknum,
sem er það mesta sem
nokkur hefur skorað í
einum leik það sem af
er tímabili. Arenas
hitti úr 15 af 20 skot-
um í leiknum og var
óstöðvandi. Það sem
var í raun merkilegra
var að Tim Duncan átti
einn slakasta leik sinn á
ferlinum og hitti aðeins úr
þremur af átján skotum sín-
um í leiknum. Hann hitti úr
tveimur fyrstu skotum sín-
um á upphafsmínútunum,
en klikkaði svo á fimmtán
< skotum í röð. Atlanta
Hawks á ekki von á góðu frá
honum í næsta leik.
Á meðan fyrrum lærisveinar
Larrys Brown í Detroit eru á siglingu
og líta út fyrir að vera besta liðið í
NBA í dag, hefur sá gamli ekki átt sjö
dagana sæla í nýja starfinu sínu sem
þjálfari New York Knicks. Þeir sem
fylgst hafa með Brown í gegn um tíð-
ina vita að þar fer stoltur maður og
því er enn erfiðara að skilja af hverju
í ósköpunum hann tók að sér að
þjálfa New York Knicks af öllum lið-
um. Brown hefur alltaf sagt að það
væri draumur sinn að þjálfa Knicks,
en eftir að liðið hefur tapað fimm
fyrstu leikjum sínum í deildinni er
strax farið að krauma í Stóra eplinu.
Brown er strax farinn að kvarta yfir
því að Isiah Thomas, forseti félags-
ins, hafi gert sér erfitt fyrir með því
að hræra of mikið í leikmannahópn-
um og segir að frammistaða þeirra
sem fyrir eru hafi valdið honum
„sárum vonbrigðum.“
Þær fréttir berast nú frá New York
að Larry Brown sé ósáttur við Isiah
Thomas, því hann hafi tekið við lið-
inu með það fyrir augum að þjálfa
ákveðna leikmenn, en sem kunnugt
er var félagið iðið við kolann á leik-
mannamarkaðnum í sumar og fékk
meðal annars til sín hinn „hjart-
næma" Eddy Curry frá Chicago
Bulls, sem eins og Jerome James,
hefur ekki verið til stórræða.
Peter Vescey, dálkahöfundur í
New York Post, fullyrti fyrir helgina
að hann hefði heimildir fýrir því inn-
an félagsins að forráðamenn liðsins
tjölduðu nú öllu til að losna við
leikstórnandann Stephon Marbury,
sem gat ekki unnið með Brown með
landsliði Bandaríkjanna og það hef-
ur svo sannarlega ekki breyst með
liði New York Knicks. „Þetta er New
York," skrifaði Vescey. „Þar sem Isi-
ah Thomas fékk Larry Brown til að
þjálfa liðið til að bjarga starfi sínu,
en kaldhæðnin er sú að líklega verð-
ur það Brown sem tekur starfið hans
á endanum."
Draumur Larry Brown líkari martröð
Fyrstu tvær vikur deildarkeppninnar í NBA lofa svo sannarlega góðu fyrir vetur-
inn og á meðan mikið hefur verið um óvænt úrslit, er aðeins eitt lið sem sker sig
úr og er taplaust það sem af er.
Nýjar
Sama niöurstai'
Á meðan lið eins og San Antonio, Indiana og Miami Heat hafa
verið mikið í sviðsljósinu í sumar og í upphafi leiktíðar í ljósi
mannabreytinga, virðist sem margir hafi afskrifað fyrrum meist-
ara Detroit Pistons, og þá ekki í fyrsta skipti.
Lið Detroit hefur átt frábæru
gengi að fagna síðustu fjögur ár, lið-
ið vann riðil sinn árið 2002 og 2003,
þar sem það vann 50 leiki bæði árin
og hampaði titlinum árið 2004. f
fyrra var svo liðið aðeins mínútum
frá því að verja titilinn en tapaði
naumlega fyrir San Antonio Spurs í
sjö leikjum.
Detroit er að öðrum liðum ólöst-
uðum með besta byrjunarlið í deild-
inni og þar spila saman leikmenn
sem þekkja hver annan inn og út.
Aðeins ein grundvallarbreyting hef-
ur orðið á liðinu síðan í fyrra, Flip
Saunders er sestur í þjálfarastólinn í
stað Larry Brown. Saunders er þjálf-
ari sem hefur löngu sannað sig í
deildinni og náði hann ágætum ár-
angri með lið Minnesota í þau ár
sem hann stýrði liðinu, en þar átti
hann einmitt stóran þátt í því að
gefa Chauncey Billups fyrsta alvöru
tækifæri sitt í deildinni og því urðu
sannkallaðir fagnaðarfundir þegar
ljóst var að þeir félagar hæfu störf
saman á ný.
Billups er leiðtogi Detroit liðsins
og hann stýrir því nú eftir höfði
Saunders, sem leggur mun meira
upp úr sóknarleilcnum en Larry
Brown gerði nokkurn tímann. Pi-
stons eru þegar þetta er ritað, eina
taplausa liðið í NBA deildinni og
hefur unnið alla sex leiki sína sem er
besta byrjun liðsins síðan það byrj-
aði 8-0 tímabilið 1988-89, en þá varð
liðið einmitt NBA meistari í fyrsta
sinn. Þó leikur liðsins sé vissulega
ekki hnökralaus enn sem komið er,
hefur liðið unnið í það minnsta tvo
leiki með dramatískum hætti þar
sem ekkert annað en reynsla meist-
aranna tryggði þeim sigur.
A botnu brmttím
Philadelphia hefur unniö þrjá leiki I röð eftir aö hafa tapaö þremu
fyrstu leikjunum. Iverson tekur sln 30 skot i leik og hittir úr 10
þeirra, Webber er stlfbónaöur Hummer-jeppi meö sprungiö á
öllum. Verst aö hinir ágsetu aukaleikarar þeirra fá aldrei séns,
þvl sumir þeirra eru ágætir körfuboltamenn.
Washington (5-1), haföi fram aö helginni aðeins unniö frekar slök lið, en
þaö var ekki hægt annað en aö smella Wizards I sparidálkinn eftir að liö-
iö sallaöi 137 stigum á Seattleog valtaði yfir meistarana á iaugardags-
kvöidið. Arenas var fór hamförum, setti 43 stig á Spurs og hitti úr 15 af20
skotum.
Cleveland. LeBron er að læra að leika sér fallega og leyfa
hinum krökkunum að vera með. Það erskandall efþetta
liö vinnurekki 50leiki i vetur.
LA Clippers. Þaö er alltaf fréttnæmt þegar Clippers
byrjar 5-1, enda hefur liðið ekki byrjaö betur íná-
kvæmlega 20 ár. Sam Cassell segir aö liðinu séu eng-
in takmörk sett,en gleymir því kannski aö þetta er
nú einu sinni Clippers-liðiö.
Richard
Hamilton er lík- í
lega sá leikmaður
sem hagnast mest
á breyttum áhersl-
um Saunders í sókn-
arleiknum, en þessi
frábæri skorari er með
rúm 22 stig að meðaltali í
leik það sem af er og er
með yfir 57% hittni utan af
velli. Þeir sem eru svo
heppnir að vera áskrifendur að
NBA TV sáu Hamilton skora
glæsilega sigurkörfu gegn Boston
á dögunum, þegar aðeins 0,8 sek-
úndur lifðu leiks og skömmu síðar
gerði hann út af við Phoenix Suns
með tveimur körfum á síðustu mín-
útunni.
Þegar talað er um fulltrúa austur-
deildarinnar í úrslitunum í vor, tala
menn jafiian mikið um Miami Heat
og Indiana Pacers, en eins og tíma-
bilið fer af stað nú, er ljóst að enginn
skyldi afskrifa austurdeildarmeist-
ara tveggja síðustu ára, Detroit Pi-
stons.
J JrJzjJJíJSíjjj ujjjd
Toronto Raptors. Fimm leikir, fimm töp. Um helgina sást stuðningsmaöur liðsins uppi i
heimavelli þeirra með skilti sem á stóð;„StuöningsmaðurToronto til leigu." Segir
sem segja þarf.
Atlanta hefur enn ekki unniö leik og tapaði grátlega með einu stigi
fyrir Memphis um helgina. Sviplegt fráfallJason Collier varekki til að
bæta það sem vitað var að yrði langur vetur hjá liðinu.
Charlotte byrjaði vel, en hefur nú tapað þremur leikjum i röð. Meiðsli
lykilmanna há liðinu, en það ætti þó að geta slopp-
viö að veröa sér til skammarí
veturmeð tvo skemmtilega leik-
stjórnendur i sinum röðum.
Seattle. Gengi liðsins er ekki
ósvipað veðurfarinu sem borgin er
þekkt fyrir. Skýjað og úrkoma I
grennd. Þrjú mjög Ijót töp i röð, með
að meðaltali 31 stigs mun og ieinum
þeirra létSeattle út-frákasta sig með
30+,sem er náttúrulega bara rugl.
Chauncey Billups Leiðtogi
Detroit liðsins og finnursig vel
undir stjórn Flip Saunders.
STÓRA „R0TNA" EPLIÐ
Larry Brown Á erfitt
með að koma New York
Knicks á beinu brautina.