Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2005, Page 31
VÖÐV Lffie
•>
MÁNU.DAGUR 14. NÓVEMBER 2005 31
Ingvar Þór og
I Hallgrímur Andri
Ætla að hætta með
Fazmo.is og opna
eigin síðu.
Mikið lesnir
Þeir Ingvar og Hallgrímur hafa unn-
ið að því hörðum höndum að losna við
að vera stimplaðir ofbeldismenn. Það
er þó meira en að segja það, Fazmo-
nafnið verður ekki hreinsað svo auð-
veldlega. Þeir ætla því að opna nýja
síðu á næstunni sem þeir tveir munu
sjá um. Horn eins og áskorunarhornið,
bflahornið og fleiri verða þó áfram á
síðunni. „Það er fínt að skipta um nafn
og undirstrika að við erum í góðum
hugleiðingum," segir Ingvar. Nú ætla
þeir að fara að vinna að nýrri síðu sem
mun opna von bráðar. Líkegt þykir að
sú síða fái mikinn lestur en
www.fazmo.is hefur verið í ellefta sæti
yfir mest lesnu síður á landinu lengi
vel. Strákarnir segja að meðal-heim-
sóknarfjöldi á viku sé um 10.000
manns.
Strákarnir segja að þeir vonist til
þess að sættir muni nást innan hópsins
og ákvörðunin um að hætta með síðuna
sé tekin í þeirri von um að það gangi í
gegn. „Vinskapur okkar strákanna er
miklu mikilvægari en einhver heima-
síða.“
soli@dv.is
„Við ætlum að hætta með síðuna í
vikunni," segir Ingvar Þór Gylfason
meðlimur í Fazmo. Þeir Ingvar og Hall-
grímur Andri hafa haft sig hvað mest í
frammi fyrir hönd hópsins en nú hefur
komið upp ósætti mUli þeirra og aðila
innan hópsins. Þess vegna hafa þeir
ákveðið að segja skilið við heimasíðuna
og hætta með hana.
Öfundsýki og dónaskapur
Strákarnir segja að það hafi aldrei
náðst almennileg sátt um heimasíðuna
eftir að hún varð www.fazmo.is. „Það
hafa verið leiðindi í gangi síðan," segir
Ingvar. Þeir Ingvar og Hallgrímur hafa
verið mikið í sviðsljósinu eftir að heima-
síðan fór í loftið og virðist sem sú athygli
sem þeir hafa fengið hafl farið fyrir
brjóstið á einhverjum hinna með-
limanna. Einhverjir hafa lagst svo lágt
að setja inn nafnlausar athugasemdir
inn á síðuna, þrátt fyrir að vera sjálfír í
hópnum. „Það eru þeir sem eru inni á
síðunni og þeir sem eru ekki inni á síð-
unni," segja drengirnir. Þeir segja að
þeir sem hafi yfirhöfuð verið með leið-
indi á síðunni séu í mesta lagi 10 manns
sem skrifa undir mismunandi nöfnum.
Fazmo Hópur-
inn eins og hann
ieggursig.
Strákarnir 1 Fazmo eru fyrir löngu orðnir landsþekktir. Þeir komust fyrst í fjöl-
miðla eftir líkamsárás fyrir utan Hverfisbarinn í vor. Eftir það hafa þeir unnið að
því hörðum höndum að hreinsa nafn sitt. Nú hefur hins vegar komið upp ósætti
innan hópsins og hafa forsprakkarnir, Ingvar Þór og Hallgrímur Andri. sagt skilið
við heimasíðu hópsins. m
Nylon gefur út smáskífu í Bretlandi í febrúar
Mick Jagger veit af Nylon-útgáfuimi
„Planið er að þetta fyrsta lag þeirra
verði kynnt á útvarpsstöðvum í Bret-
landi í janúar," segir Einar Bárðarson,
umboðsmaður stúlknanna í Nylon,
en þær munu gefa út smáskrfu í Bret-
landi í vor. Lagið sem fer í spilun heit-
ir Have seen mother baby standing in
the shadow og er gamalt Rolling sto-
nes-lag. „Ég veit ekki hvort þeir [Roll-
ing Stones] hafl heyrt lagið. Þeir vita
hins vegar af þessu og höfðu gaman
af skilst mér," segir Einar. Það er búið
að taka upp fimm lög á ensku sem að
Nylon hefiir aldrei sungið á íslensku.
Einnig er búið að taka upp plötuna
100% Nylon á ensku og segir Einar að
það sé verið iliuga hvort, og þá hvaða
lög af þeirri plötu verði gefin út.
„Þetta eru svona 15-18 lög á ensku
sem við munum velja úr og setja á 12
laga plötu."
Einar segir að Nylon-stúlkurnar
hafi ekki sagt skilið við íslenskan tón-
listarmarkað. „Við erum náttúrulega
búin að gefa út nýja plötu sem fer vel
af stað. Þær voru að árita í Hag-
kaupum í Smáralind um helgina og
það kláraðist allur lagerinn af plöt-
unni," segir Einar.
Einar segir að þeir aðilar erlendis
sem hann hafi verið að semja við hafi
heillast af því hve stúlkunum hefur
gengið vel hér á íslandi. Náð skjótum
og glæstum frama. „Þeir komu hing-
að á útgáfutónleika í fyrra og sáu þær
afgreiða 300 áritanir á 20 mínútum,"
segir Einar.
Á laugardaginn mun Nylon halda
útgáfutónleika. „Það ætla nokkrir af
þessum lykilmönnum sem við höfum
verið í samstarfi við að koma á tón-
leikana. Fólk frá Universal meðal
annars," segir Einar. Hann gefur lítið
fyrir sín afrek í samningum. „Þetta
stendur allt og fellur með því hvemig
þær standa sig."
Logi Ólafsson íþróttakennari er 51 árs f
dag. „Maðurinn leyfir sér að dreyma um
það sem hann kýs að upplifa eins og ör-
yggi,aðdáun,líkamlega snertingu og
blíðu. (myndunarafl hans er frjótt um
þessar mundir og hann
byggir sér upp miklar
sviðsmyndir sem örva
hann og konuna sem
hann elskar á góðan máta,"
segir í stjörnuspá hans.
Logi Ólafsson
Vatnsberinn (20.jan.-1s. tebr.i
Ekki reyna að þvinga fram lausn
á vandamáli sem þú gætir átt til að
mikla fyrir þér og eyða þar með dýr-
mætri orku þinni í óþarfa áhyggjur.
Taktu staðfast á hverju sem verður á
vegi þínum meðjákvæðum huga.
F\Skm\J (19.febr.-20.mars)
Þér er ráðlagt að láta hvers
konar reiði eða beiskju vera fjarlægja
þér og þínum kæri fiskur. Þú ert vissu-
lega á réttri leið ef þú sýnir viðleitni
þlna I verki. Hér gæti verið á ferðinni
vandi sem er smávægilegur frá þínu
sjónarhorni án efa en tekur að sama
skapi mikla orku frá þér á einhvern
hátt.
Hrúturinn (21.mrs-19.aprH)
Leyfðu hjarta þínu einstaka
sinnum að stjórna huganum. Gefðu
andanum innra með þér meiri tlma og
dýpri skilning á þörfum þlnum.
Nautið (20. april-20 mal)
Stjarna nautsins er minnt á að
skipuleggja sig og tíma sinn vel ef hún
stendur frammi fýrir próflestri eða ein-
hvers konar undirbúningi sem tengist
starfinu.
Tvíburarniri2i. maí-21.]únl)
Allt virðist gerast mjög hratt
hérna þegar kemur að einhverju sem
stendur hjarta þínu næst.
Íí(Mm(22.júni-22.júli)
Gleymdu ekki að ef þú svarar
reiði annarra með eigin reiði er ekki
möguleiki á að árangur náist. Fólk fætt
undir stjörnu krabbans sigrar ekki orr-
ustu sem það missir stjórn á, svo mikið
er víst. Reynsla þín er til að þú lærir og
þegar ekkert virðist ganga upp og allt
virðist jafnvel öfugsnúið ættir þú að *
muna að góðir hlutir gerast sannarlega
hægt.
LjÓníð (22.júii-22. dgúst)
I óvissu felst sköpun og frelsi
(þetta veistu reyndar).
Meyjan (23. ágúst-22. septj
Ef þú hefur hafið verkefni sem
virðist breyta aðstæðum töluvert sem
og viðhorfi þínu til l(fsins,ættir þú að
skipuleggja tíma þinn vandlega svo
fólkið þitt sitji ekki eftir.
Vogil) (23. sept.-23.okt.)
Þú ættir að finna þessa ágætu
kyrrð sem býr I hjarta þínu um þessar
mundir og leita jafnvægis en hér kemur
fram að þörf er á hvlld.
Sporðdrekinn (24.akt.-2u><w
Tækifærin elta þig uppi ef þú
lætur engan og ekkert buga þig. Þú ert
minnt/ur á að geyma ekki tilfinningar
þínar innra með þér mikið lengur af ein-
hverjum ástæðum því með því munt þú
einungis særa sjálfa/n þig. Ekki taka f
skyndiákvarðanir sem þú munt sjá eftir
slðar.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Leyfðu þér að njóta alls þess
sem veitir þér sanna gleði. Stundum
ættir þú að láta mál annarra afskipta-
laus og blða þolinmóð/ur eftir að fólkið
sem þú umgengst bjargi eigin skinni.
Þú átt nóg með sjálfið og ættir að huga
fyrst og fremst að eigin líðan.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Ef þú stefnir hátt munt þú á
endanum komast þangað sem þú ætlar
þér en eðli þitt er eflaust virkt til að sigra.
Efldu metnað þinn með framvæmd fýrst
og fremst en ekki síður með því að nýta
samningahæfileika þína.
SPÁMAÐUR.IS