Símablaðið - 01.01.1956, Blaðsíða 8
2
SIMAE3LAÐIÐ
ara. Hann varð stúdent 1919, lagði síð-
an stund á rafmagnsfræði með síma og
radíófræði sem höfuðnámsgrein, við
fjöllistaháskólann í Kaupmannahöfn,
og lauk prófi þaðan í janúar 1926. Vann
hann síðan hjá ríkissímanum danska í
11 mánuði. Það sama ár fékk hann styrk
hjá Alþingi til frekari fullkomnunar í
símaverkfræði, og fór í þeim erindum
til Þýzkalands um áramótin 1926—
1927, og var þar í hálft ár, bæði á
Technisce Hochsehule (verkfræðahá-
skólanum) í Charlottenburg og hjá rík-
issímanum þýzka, og ýmsum stærstu
símtækjaverksmiðjum þar. Þaðan fór
hann til Frakklands og Belgíu, og dvaldi
þar í hálfan annan mánuð til þess að
kynnast símatækjum og símarekstri
þar; fór þaðan aftur til Þýzkalands og
kom eftir skamma dvöl þar, heim til ls-
lands. Var hann þá hinn eini hér á
landi, er lokið hafði háskólaprófi í síma-
verkfræði. Eftir heimkomuna stundaði
Briem ýmis verkfræðistörf þar til hann
réðist til Landssímans árið 1929. Hef-
ur hann síðan verið yfirverkfræðingur
stofnunarinnar, en jafnframt hefur
Nýr póst- og' símamálastjóri tekur sæti.
hann verið verkfræðingur Ríkisútvarps-
ins frá stofnun þess.
Gunnlaugur Briem hefur leyst af
höndum mörg trúnaðarstörf fyrir stofn-
unina, utan síns raunverulega verka-
hrings. Hann hefur oft gegnt störfum
landssímastjóra, og setið símaráðstefn-
ur utanlands og innan.
Frá stofnun Starfsmannaráðs Lands-
símans 1953, hefur hann átt sæti í því.
Á þeim vettvangi hefur hann kynnzt
viðhorfi starfsmannanna og samtaka
þeirra til hinna ýmsu viðfangsefna
stofnunarinnar, og á hvern hátt bezt
verða leyst sameiginleg hagsmunamál
starfsfólksins og stofnunarinnar, og
ekki síður ágreiningsmálin.
Væntir Símabl. þess, að sú kynning
hans reynist honum ekki síðra vega-
nesti í hinu vandasama starfi en hans
víðtæka þekking á öðrum sviðum.
Bréfritarar póst- og símamálastjóra.