Símablaðið - 01.01.1956, Blaðsíða 23
S I M A S LAÐ I Ð
17
komulags við þessa stofnun er bæði erf-
iðara og kostnaðarsamara að skipu-
leggja þessar ferðir en við aðrar stofn-
anir. En fyrst ríkisvaldið hefur farið
inn á þessa braut, með stjórnarráðið í
broddi fylkingar, þá getur símastofnun-
in ekki skotið sér undan þeirri skyldu
sem á henni hvílir í þessum efnum.
Ætla hefði mátt, að einhver ríkis-
stjórn hefði komið auga á nauðsyn þess,
að samræma aðgerðir allra ríkisstofn-
ana. En meðan svo er ekki, en hver
stofnun látin hafa þar um sjálfræði,
getur símastjórnin ekki skotið sér und-
an hlutverki hins veitula húsbónda.
Sumarið er komið, — þó sumarblíðan
láti bíða eftir sér. — Og á meðan hún
gerir það, er þess að vænta, að síma-
stjórnin búi sig undir það að geta keyrt
úr hlaði, — með starfsfólk sitt einn
góðan veðurdag, þegar blessaðri sum-
arsólinni þóknast að sveipa gulli dal
og hól.
Stjórnarúrskurður um orlof (sumarieyfi)
Samkvæmt reglugerð frá 15. júní 1954, skal orlof og veikindaforföll starfs-
manna ríkisins, miðað við starfsaldur, þannig að eftir 10 ára starf í þjónustu
ríkisins fái menn 18 virka daga, og eftir 15 ár 24 virka daga.
Með hliðsjón af þeim samningum, sem gerðir voru á s.l. ári milli verkalýðs-
félaganna og vinnuveitenda, um orlof, hefur ríkisstjórnin ákveðið, að orlof
þeirra, sem nú eiga rétt á 15 dögum virkum, skuli vera 18 virkir dagar og
þeirra, sem nú hafa 18 virka daga skuli vera 21 virkur dagur. Orlof annarra
verði óbreytt. Samkv. bréfi frá fjármálaráðuneytinu.
Úrskurður um orlof með hliðsjón af veikindum
Vegna margra fyrirspurna félagsmanna um ýmis atriði viðvikjandi
orlofi, — einkum með tilliti til veikinda, hefur Símablaðið fengið hjá formanni
F.l.S. afrit af bréfi stjórnarráðsins til Póst- og símamálastjórnarinnar, sem
svar við ýmsum fyrirspurnum þessu viðvíkjandi. — Er rétt fyrir lesendur að
kynna sér vel þessi svör stjórnarráðsins og leggja sér þau á minni.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Reykjavík, 31. okt. 1955.
Ráðuneytið hefur móttekið bréf yð-
ar, herra póst- og símamálastjóri, dags.
19, þ.m., varðandi nokkur atriði í
reglugerð nr. 87/1954, um orlof og
veikindaforföll starfsmanna ríkisins.
Fyrst er spurt, hvort starfsmanni,
sem verið hefur frá vinnu vegna veik-
inda á tímabilinu 4/10 1954—4/10
1955, beri orlof fyrir nefnt tímabil. Þá
er spurt, hvort réttur til orlofs breyt-