Símablaðið - 01.01.1956, Blaðsíða 21
SIMABLAÐIÐ
15
húmoristiskum sans, — en eru hins
vegar dragbýtar á daglegt starf innan
stofnunarinnar.
Á sjötugsafmæli Guðmundar Hlíðdal
póst- og símamálastjóra, 11. febrúar,
færði starfsfólk pósts og síma honum að
gjöf vandað skrifborð. — Þann dag lá
hann á spítala eftir uppskurð, — en
heimili hans bárust margar fagrar
blómakörfur, og margir gestir heim-
sóttu konu hans, þar á meðal stjórn
F.l.S.
★
Magnús
Magniisson
fyrrverandi símaverkfræðingur.
Símablaðið hefur þau gleðitíðindi að
færa lesendum sínum, að Magnús Magn-
ússon verkfr. er nú á ný ráðinn til stofn-
unarinnar eftir 10 ára fjarveru. Verð-
ur hann verkfræðingur Bæjarsímans.
Magnús fór úr þjónustu Landssím-
ans árið 1946, og hefur stundað eigin
atvinnurekstur síðan. — Magnús kom
fyrst í þjónustu Landssímans árið 1934.
Þau 12 ár, sem hann starfaði hjá Lands-
símanum tók hann mikinn þátt í félags-
lífi F.l.S. Átti m. a. sæti í stjórn félags-
ins og var varaformaður þess um skeið.
Hann skrifaði mikið í Símablaðið, bæði
um félagsmál og einkum greinar fræði-
legs efnis. Símablaðið býður hann vel-
kominn aftur til starfa.
-------•--------
LALIMAKJÖR
síma- og póstafgreiðslumanna á
Landssímastöðvum
hafa á ný verið endurskoðuð af hinni
sömu nefnd, er fjallaði um reglugerðina
fyrir ári síðan.
Þótti póst- og símamálastjórninni
ekki verða hjá því komizt vegna breytts
viðhorfs við setningu launalaga. End-
urskoðuð reglugerð hefur nú verið gef-
in út 24. maí sl., og gildir hún frá síð-
ustu áramótum.
Því verður ekki neitað, að við þessa
endurskoðun hafa launakjör stöðvar-
stjóranna batnað að mun, og ekki síður
afgreiðslustúlknanna. Launaflokkum
hefur enn verið fækkað með því að færa
upp lægri launaflokka.
Hitt er svo annað mál, að símastjór-
arnir eru ekki ánægðir með þann ár-
angur, sem enn hefur náðzt, er þeir
bera laun sín saman við laun einstakl-
inga og flokka, sem laun taka eftir
launalögum. Hefur því deildarstjórnin
skrifað stjórn F.I.S., og óskað eftir því,