Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1956, Blaðsíða 24

Símablaðið - 01.01.1956, Blaðsíða 24
18 S í M A B LA Ð I Ð ist, ef starfsmaður fær vegna veikinaa, aðeins hálf laun. Framangreindur starfsmaður á rétt á orlofi fyrir nefnt tímabil. Réttur til orlofs skerðist ekki þótt starfsmaður taki ekki full laun vegna veikinda. Þá er spurt, hvernig skuli fara um orlof starfsmanns, sem veikist í orlofi og læknisvottorð staðfestir veikindi hans. Ef starfsmaður veikist í orlofi skal fara eftir sömu reglum og hlutaðeig- andi starfsmaður hefði verið við störf, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 87/1954. Ef starfsmaður fær frí frá störfum án launa skal réttur hans til orlofs breytast í réttu hlutfalli við það hve hið launalausa frí er mikill hluti af við- komandi orlofsári. Þeim mönnum, sem verið hafa í þjón- ustu landssímans um lengri eða skemmri tíma sem lausráðnir á viku- kaupi, en skipaðir eru í stöðu, og þá tekið tillit til þjónustualdurs, ber að reikna orlof miðað við, hve mikinn hluta af næstliðnu orlofsári þeir hafa starfað sem fastir starfsmenn (skip- aðir). Dæmi: Starfsmaður, sem fær viðurkenndan 11 ára þjónustualdur og er skipaður í stöðu á miðju orlofsári á að fá næsta sumar eftir skipunina 9 daga orlof á fullum laiunum. Honum ber einnig réttur til ólaunaðs orlofs til þess að notfæra sér það orlofsfé, sem hann hafði fengið greitt hinn hluta or- lofsins, og miðast lengd þess við gild- andi reglur um orlof verkamanna á hverjum tíma. Þessir starfsmenn geta ekki notið lengra orlofs en reglugerð nr. 87/1954 gerir ráð fyrir. F. h. r. • Sigtr. Klemenzson. Kristján Thorlacius. Til póst- og símamálastjóra, Reykjavík. ----♦----- Breytingar á starfsmannaráði Þar sem póst- og símamálastjóri ekki á sæti í starfsmannaráði Landssímans, á Gunnlaugur Briem ekki lengur sæti í því. Og þar sem yfirverkfræðingar eru nú orðnir tveir, fjölgar meðlimum ráðs- ins, svo að nú eru fulltrúar Landssím- ans 5. Hinir nýju yfirverkfræðingar, Jón Skúlason og Sigurður Þorkelsson hafa nú tekið sæti í ráðinu. Vera má, að F.l.S. þyki ástæða til að fá sínum fulltrúum fjölgað af þessum ástæðum. Að vísu er starfsmannaráð aðeins ráðgefandi, — en hefur þó mikil áhrif á gang ýmsra mála í stofnuninni, einkum þó kjaramála og val starfs- manna. Það værj því ekki óeðlilegt að það óskaði þess, að eiga þrjá fulltrúa í ráðinu, en til þess myndi þurfa að gera breytingar á reglugerð um starfsmanna- ráð. En yrði á annað borð gerðar breyt- ingar á henni, væri æskilegt að taka hana til endurskoðunar í heild, með til- liti til þeirrar reynslu, sem fengist hef- ur þau ár, sem ráðið hefur starfað. Þeg- ar reglugerðin var sett, var engin reynsla til að byggja á, þar sem um al- gerða nýjung í rekstri opinberra stofn- ana var að ræða. En síðan hefur það

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.