Símablaðið - 01.01.1956, Blaðsíða 17
SIMABLAÐIÐ
11
Jón Skúlason
ijfirue rlfrœ&ingur
Er fæddur í Keflavík, 22. ágúst 1916.
Lauk stúdentsprófi úr stærðfræðideild
Menntaskólans í Reykjavík sumarið
1937. — Hóf þá þegar um haustið
nám í verkfræði við verkfræðiháskól-
ann í Kaupmannahöfn. Lauk brottfar-
arprófi þaðan í janúar 1943 með I. eink-
unn (sérgrein: síma- og útvarpsverk-
f ræði).
Hin næstu tvö ár vann hann verk-
fræðistörf á teiknistofum, útreiknings-
deild, svo og samhliða í söludeild hinna
þekktu verksmiðja „A/S Laur. Knud-
sen“ og „A/S Titan“ í Kaupmannahöfn.
Fór því næst til Stokkhólms og fékk
þar stöðu aðstoðarverkfræðings hjá
prófessor Heimbúrger við verkfræðihá-
skólann í Stokkhólmi. Starfaði þar, unz
hann hvarf heim til Islands, með fyrstu
ferð að heimsstyrjöldinni síðari lokinni,
og réðist þá strax í þjónustu landssím-
ans.
Skipaður verkfræðingur hjá Lands-
símanum frá 1. júlí, 1945 og hinn 1.
júlí, 1946 voru launin færð til samræm-
is við deildarverkfræðinga Reykjavík-
urbæjar.
Fyrsta árið vann hann hjá Landssím-
Skúlason deildarverkfr. og Magnús
Magnússon fyrrv. símaverkfr.
Stöður þessar hafa verið veittar frá
1/6, Sigurði Þorkelssyni og Jóni Skúla-
syni.
anum við radíótæknileg störf en síðan
við símtæknideildina, sem deildarverk-
fræðingur.
Auk þessa hefur hann haft á hendi
tæknilega kennslu á vegum Landssím-
ans, bæði við loftskeytaskólann og á
símvirkjanámskeiðum, svo og kennt
stærðfræði í einum bekk stærðfræði-
deildar Menntaskólans í Reykjavík
skólaárið 1954—55.
Jón er nú formaður Rafmagnsverk-
fræðingadeildar Verkfræðingafélags fs-
lands.