Símablaðið - 01.01.1956, Blaðsíða 14
8
SIMABLAÐIÐ
an þeim brokkaði Sokki sinnulegur og
léttur í spori. Ég fylgdi honum eftir
með augunum svo lengi sem ég gat, en
oftar sá ég hann ekki. — Síðar heyrði
ég til þess tekið, að hann hefði verið af-
burðaduglegur í þessum slarkferðum yf-
ir illfærar ár og veglausar heiðar.
Mér þætti ekki ótrúlegt að einhvern
tímann yrði reist standmynd eða málað
veglegt málverk til minningar um lagn-
ingu símans. 1 það listaverk mætti ekki
vanta íslenzka hestinn, en hann gerði
það mögulegt að síminn var lagður. Ég
hef nú lýst þeim hesti eins nákvæmlega
og unnt er, sem flutti sjálfan stjórn-
anda verksins um fjöll og heiðar þegar
hann undirbjó þetta mikla og farsæla
mannvirki. Ef til vill gæti sá listamað-
ur framtíðarinnar, sem fær það hlut-
verk að reyna að reisa upphafi símans
eins konar minnisvarða, haft gagn af
þeirri lýsingu á þessum afburða fallega
hesti, er lét líf sitt í þjónustu Forbergs
og símans þegar mest lá á.
Ólafur Ásmundsson.
ATHS.:
Símablaðið hefur leitazt við að fá
upplýst, hvort ekki væri til mynd af
þessum fallega hesti Forbergs, sem svo
snildarlega er lýst í greininni, en ekki
orðið ágengt.
Ef einhverjum lesenda blaðsins væri
kunnugt um mynd af honum, þætti því
vænt um að fá vitneskju um það.
Ritstj.
Málshöfðun tímavarða
Loranstöðvarinnar í Vík
í Mýrdal gegn póst-
og símamálastjórninni
Undan farið ár hafa tímaverðir Lór-
anstöðvarinnar í Vík í Mýrdal, studdir
af F.I.S., átt í málarekstri við póst- og
símamálastjórnina vegna vangoldinna
launa. Dómur í máli þessu var kveðinn
upp fyrir skömmu í undirrétti, og féll
dómurinn þannig að fallist var á sjón-
armið tímavarðanna, með öðrum orð-
um póst- og símamálastjórnin tapaði
málinu.
Þetta er í sjálfu sér bæði sögulegur
og réttarfarslegur atburður. Sögulegur
að því leyti, að þetta er í fyrsta skipti,
sem F.Í.S. styður og hvetur til máls-
höfðunar gegn póst- og símamálast.iórn-
inni, til þess að ná rétti félagsmanna
sinna. Réttarfarslegur að því leyti, að
með dómi þessum eru starfsmannaregl-
ur Landssímans fullkomlega viður-
kenndar.
Ég tel rétt að fara nokkrum orðum
um tildrög þessara málaferla, og lýsa í
fáum orðum málsatvikum. Snemma á
árinu 1953 komu fulltrúar frá tíma-
vörðum Loranstöðvarinnar á fund
stjórnar F.I.S. og tjáðu henni, að póst-
og símamálastjórnin hefði að þeirra
dómi vangoldið þeim aukavinnu og á-
lagstíma frá því að þeir byrjuðu að
vinna hjá henni, eða nánar tiltekið 1.
jan. 1951. Þetta rökstuddu þeir með