Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Ritstjórar:
Jónas Kristjánsson
og MikaelTorfason
Fréttastjóri:
Óskar Hrafn Þorvaldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550
5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is
Auglýsingar. auglysingar@dv.is.
Setning og umbrot:
365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og úr
gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Dr. Gunni heima og að heiman
Er betra og skemmtilegra að vera
til núna en fyrir svona 25-30
árum? Þetta er spuming sem
brennur á mörgum, td. Agli
Helgasyni (nýlegum
pistli á Vísi. Það er
eðlilegt að þeir
sem voru ungir
og upprennandi
áriö1980en eru
nú komnir með
(stru og þurfa
kannski bráðum víagra
til aö sletta úr klaufunum spyrji
þessarar spumingar. Eðlilegt að
nostalgfskar upprifjanir á æsk-
unni séu ferskari tilhugsun en
miöaldra kaunin, þótt þau séu
náttúrlega ágæt Ifka. Auðvitað er
skemmtilegra að vera ungur og
ferskur en miðaldra, en það er
ekki þar með sagt að tímarnir séu
verri eða betri þótt Baugur og
Björgólfur eigi allt núna en ekki
SÍS og Kolkrabbinn eins og 1980.
Þótt ég náfi haft eina sjónvarps-
stöð árið 1980 en hundrað núna
þarf ég ekki að horfa á þær. Þótt
maður hafi val er ekki þar með
sagt að maður velji. Maður getur
td. bara valið að velja ekki neitt
og lesið, enda nóg
íboðiíbókun-
um. Sjónvarp-
iðerekki
óvinur ef
maður hefur
vit á að slökkva
á því. Markaðs-
setning varvarlatil
1980. B&L hefði aldrei gefið
Bubba jeppa og látið hann tala
inn á auglýsingar og það sem
meira en Bubbi hefði aldrei þegið
boðiö. í pönkinu voru menn
nefnilega vandræðalegir í garð
peninga og vildu helst komast
hjá þvl aö hugsa um þá. Þeir voru
af hinu illa. Á meðan gekkst
diskóliöið upp I þvl að lífsham-
ingjuna væri hægt að kaupa.
Nú eru flestir nokkum veginn
búnir að kaupa heimsmynd
diskóliðsins, að peningar skapi
hamingju. Eða eigi stóran þátt f
henni. Og svo getur maður núna
étið á mun fleiri stööum en Aski
og Hominu. Það væri gaman ef
hægt væri að heyra skoðun
manns frá þar sfðustu öld. Sllkur
fommaður myndi eflaust segja
að Iffiö hafi verið betra áður
en helvítis rafmagnið
kom. „Þegarfólk
svaffhaugábað-
stofuloftinu, gam-
almenni,fullorðn-
irog böm,varfólk
nánara," myndi
fommennið segja og
fussa yfir „hraðanum f
nútfmaþjóöfélaginu". Niðurstað-
an er þvf sú að llfið veltur áfram
og til litils er að syrgja fortfðina
og fussa yfir nútfðinni. Þó það
geti verið gaman.
Risaeðla í ríkiskerfinu
Við eigum hátæknisjúkrahús, Land-
spítalann. Við getum stækkað hann,
ráðið fleira fólk, keypt betri tæki.
Þannig höfum við hátæknisjúkrahús, sem
endist og endist. Það er hins vegar ekki
bara óþarft, heldur beinlínis skaðlegt að
kasta mörgum milljörðum í nýtt hátækni-
sjúkrahús, sem síðan þarf að reka.
Hátæknisjúkrahús eru staður fyrir
flóknar pillugjafir og enn flóknari upp-
skurði með nýjustu tækjum fyrir tiltölu-
lega fáa sjúklinga. Við erum komin vel á
veg á því sviði, sérstaklega ef unnt væri að
ná tökum á rekstri Landspítalans, sem nú
er rekinn með of stórri og flókinni yfir-
byggingu fínimanna.
Lýður Árnason læknir hitti naglann á
höfuðið í stuttri grein í Morgunblaðinu,
þar sem hann benti á, að flöskuhálsinn
væri ekki fólk með fiókna sjúkdóma fyrir
hátæknisjúkrahús. „Vandinn er elli, geð-
sjúkdómar, ffkniefni, hræðsla og leti."
Þetta eru verkefnin, sem heilsugeirinn
þarf að ráða við.
„Meðan eldri borgarar liggja hver um
annan þveran á ríkisstofnunum, fíklum
blandað saman, gömlum sem ungum og
allir settir undir sama hatt, geðveikum út-
hýst, deildum lokað og mannekla viðvar-
andi, finnst mér ótækt að bjóða upp á
óráðshjal eins manns, sem þetta hátækni-
sjúkrahús... er.“
Þetta er stutt og laggóð lýsing Lýðs á
óleystum verkefnum í heilbrigðisgeiran-
um. f stað þess að verja tiltölulega litlu fé
til að leysa þau, þá er hlaupið í milljarða-
sukk, af því að Davíð Oddsson fékk
krabbamein og heimtaði hátæknihús.
Hvernig er það, erum við ekki laus við
Davíð úr pólitík?
Ruglið um hátæknisjúkrahús hefur sefj-
að stjórnmálastétt landsins. Ríkisstjórnin
hefur ákveðið að setja hluta af söluverði
Símans í þessa mestu sukkhugmynd síð-
ustu áratuga. Ef ekki verður stungið við
fótum, lendum við með nýja risaeðlu í
ríkiskerfinu, án þess að heilsufar verði
bætt.
Svo virðist sem ráðamönnum lands og
borgar, svo og ýmsum valdamönnum í
stjórnarandstöðunni á hvorum stað, sé
fúlasta alvara í að knýja fram snarvitlausa
framkvæmd og glata
þar með tækifæri
til að bæta heilsu
þjóðarinnar,
einkum elli
hennar, geð
hennar, fíknir
hennar, hræðslu
hennar og leti.
Lýður Arnason
læknir hefur séð,
að hugmyndin
um sérstakt
hátækni-
sjúkrahús er
fjarstæða,
sem leysir
ekki vand-
ræðin í heil-
brigðismál-
um. Þjóðin
þarf að
stöðva
þetta sukk.
Lýður Árnason læknir Hefur
séð, að hugmyndin um sérstakt
hátæknisjúkrahús er fjarstæða,
sem bætir ekki heilsu fólks
vepkeim tyrip olíufurstana é Litla-Hrauni
STOFNAÐ
MAFlU GLÆPA-
STARFSEMI Á ÍS-
LANDI ER
ÓSKIPULÖGÐ
OGTIL SKAMM-
AR.
BÓKHALDSAÐ-
STOÐ ÞEIR
GÆTU SAM-
RÆMT SKATT-
FRAMTÖLANN-
ARRA FANGA.
FLÓTTINN ÞEIR
GÆTU SAM-
RÆMT FLÓTTA-
AÐGERÐIR -
FYRIR SIG.
Woodward er fallinn
B0B W00DWARD, blaðamaðurmn
mikli frá Watergate, er fallinn af stalli.
Umboðsmaður lesenda hjá Was-
lúngton Post hefur áminnt hann og
hann hefúr beðist afsökunar. Hann lét
spunameistara forsetans Ijúga að sér
og breiddi út lygar.
FYRIR TVEIMUR árum vissi Wood-
Það sem er að gerast
hjá stórblöðum
Bandaríkjanna er, að
stjörnublaðamenn
sturlast og hverfa inn í
hringiðu kjaftaþátta í
sjónvarpi og bóka-
frægðar.
Fyrst og fremst
ward um ýmis atriði um hjónin Joseph
Wilson sendiherra, sem komst að raun
um, að frak hafði ekki keypt úram'um í
Afríku, og Valerie Plame, sem var
njósnari fyrir CIA og var opinberuð
sem slík í hefndarskyni.
W00DWARD HÉLT vitneskju sinni
leyndri fyrir ritstjórum Post, en notaði
hana í skrifum og fullyrðingum í
kjaftaþáttum í sjónvarpi, þar sem
hann varði stjómvöld og lýsti ffati á
skoðun Patricks Fitzgerafd saksóknara
á svonefndu Plamegate.
W00DWARD VAR átnínaðargoð
blaðamanna í lok Nixontímans, en
hefur nú sjálfúr sogast inn í svartholið,
þar sem söfnun auðs og frægðar hefur
gert hann að hluta yfirstéttarinnar,
sem hefur sameiginlegra hagsmuna
að gæta gegn þjóðinni.
JUDITH MILLER var á endanum rekin
frá New York Times fýrir svipað afbrot,
að vera í samkrulli með spunameistur-
um stjómvalda til að koma spunanum
á síður virtra dagblaða. Washington
Post hefur hins vegar ekki rekið Wood-
ward enn.
TRÚNAÐARBRESTUR New York Times
við lesendur var hrikalegur og nú
stefnir í enn meiri trúnaðarbrest hjá
Washington Post. Benjamin Bradlee
er fyrir löngu hættur þar sem ritstjóri
fyrir aldurs sakir og aðrir bógar minni
teknir við völdum.
ÞAÐ SEM ER að gerast hjá stórblöð-
um Bandaríkjanna er, að stjömu-
blaðamenn sturlast og hverfa inn í
hringiðu kjaftaþátta í sjónvarpi og
bókafrægðar og verða
eins og hverjir aðrir
fegurðarkóngar
fféttamennsku í
sjónvarpi.
ÞEIR LENDA
hagsmuna-
bandalagi
frægðarfólks í
pólitík, við-
skiptum og
sjónvarpi.
Fall Wood-
wards er
mesta áfall,
sem blaða-
mennska í
heiminum
hefur orðið
fyrir um ára-
tuga skeið.
jonas@dv.is
Bob Woodward Fall
hans ermesta áfall,
sem blaðamennska í
heiminum hefur orðið
fyrir um áratuga skeið.
Dæmdur nauðgari laus
DV hefur sagt fréttir af Stef-
áni Hjaltested sem var í síðustu
viku dæmdur fýrir að nauðga
átján ára stúlku. Hann byrlaði
henni ólyfjan sem svæfði hana
svo hann gæti náð fram vilja
sínum. Stefán gengur laus og
var fyrir skömrnu á skemmti-
stað í miðbæ Reykjavíkur þrátt
fyrir dóminn.
Þaö er alltaf jafn skrýtið aö
fylgjast meö svona fréttum.
Þegar maöur er dæmdur fyrir
nauðgun og gengur bara laus.
Það er auðvitað regin hneyksli.
Við verðum að gera betur.
Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra
Nú eru 264 dagar slðan
hann lofaði að laga að-
búnað gamla fólksins á
Sólvangi.
Dagur264
Eins og lesendur DV vita er
orðið langt um liðið frá því Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra
lofaði úrbótum til handa gamla
fóllcinu á Sólvangi. Hann hefúr
ekkert fyrir þau gert annað en að
salta þau í nefnd sem skilar
skýrslu á næsta ári. Á meðan er
Jón þögull sem gröfin.
Jón býr í ágætis íbúð þar sem
rúmt er um þau hjónin. Hann
þyggur hundruð þúsunda á mán-
uði fyrir að vera heilbrigðisráð-
herra. Samt gerir hann lítið gagn.
Gamla fólkið á Sólvangi býr við
lúsakjör, þrjú, fjögur og fímm
saman ílitlu herbergi.