Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
Stuðmenn í
fótbolta
Fótboltaliðið Stuðmenn
sigraði á opna Sjóvármót-
inu í fótbolta á Hólmavík á
laugardaginn. Voru Stuð-
menn lið Orkubús Vest-
fjarða á Hólmavík. Fengu
Stuðmenn 16 stig en lið
sem nefndist Sigurliðið
endaði í öðru sæti með 13
stig. Nánar má lesa um
mótið á strandir.is. Þar
kemur meðal annars fram
að maður mótsins var val-
inn Stuðmaðurinn Bjarki
Guðlaugsson.
Vísað hálfum
úr skóla
Ódælum nemanda
grunnskólans í Vogum á
Vatnsleysuströnd hefur
verið vísað úr skólanum að
hluta. Hreppsráðið hefur
staðfest að fram tii jóla fái
nemandinn aðeins að
mæta tvisvar í viku í skól-
ann. Til þess að nemand-
inn fái að mæta þarf að
gera atferlissamning milli
hans og skólastjórnenda.
Þá á félagsráðgjafi að fylgja
nemandanum í kennslu tvo
daga í viku. Endurskoða á
fyrirkomulagið um áramót.
Þá á félagsþjónusta hrepps-
ins að sjá fjölskyldu nem-
andans fyrir ráðgjöf til að
móta heilstætt úrræði.
Valberg fær
fingurinn
Millinafnið Val-
berg er ekki gott og
gilt. Þetta er niður-
staða Mannanafna-
nefndar sem á dög-
unum kom saman til
fundar í Lögbergi þar
sem þetta eina mál
var til úrskurðar:
„Nafnið Valberg er ekki til á
mannanafnaskrá sem milli-
nafn. Hins vegar er Valberg
skráð í þjóðskrá sem ættar-
nafn og eiginnafn í karl-
kyni. Ættarnafn er einungis
heimilt sem millinafn í
þeim tilvikum sem getur í
7. gr. laga nr. 45/1996 um
mannanöfn. Þar sem úr-
skurðarbeiðendur falla ekki
undir þar tilgreind skilyrði
er beiðni þeirra um nafnið
Valberg sem millinafn
hafnað."
Leigjandi friðarleiðtogans Ástþórs Magnússonar, Ágúst Helgason, segir Ástþór
hafa sent átta hrotta á sig. Mennirnir höfðu í hótunum við Ágúst og gerðu honum
ljóst að hann skyldi vera kominn út úr íbúð Ástþórs um næstu mánaðamót. Menn-
irnir voru vopnaðir. Ágúst er nú þegar fluttur úr íbúðinni til að vernda öryggi fjöl-
skyldu sinnar.
Vopnaðir hrottar á vegum
Asthórs ógnuðu leigjanda
Leigusamningurinn
Isamningnum er
langur listi yfir verk-
efni sem Ágúst átti að
vinna fyrir Ástþór.
Fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Ásþór Magnússon boðaði
heimsbyggðinni frið með samtökum sínum Friði 2000. Friðar-
hugsjónin virðist Ástþóri þó fjarlæg um þessar mundir. Ágúst
ITelgason, sem hefur leigt af honum íbúð í Seljahverfínu í Breið-
holti um tveggja mánaða skeið, segir hann hafa í fyrrakvöld sent
átta menn á sig. Að minnsta kosti tveir voru vopnaðir, annar
barefli og hinn hnífi. Skilaboðin voru einföld: „Komdu þér út.“
Flutt út af ótta
Blaðamaður DV fór og hitti Ágúst í
leiguíbúðinni í Seljahverfi. Eftir að
„Þettá voru svona átta til níu menn
sem slógu hring utan um mig,“ segir
Ágúst um óvænta heimsókn sem
hann fékk þegar hann kom heim á
mánudagskvöldið. Mennimir biðu
inni í forstofu íbúðarinnar og komu út
um leið og þeir sáu Ágúst. Hann segir
augljóst að Ástþór hafi látið þeim í té
lykil að íbúð sinni. Með Ágústi vom
tveir synir hans, tólf og fimm ára.
Vopnaðir hnífi og barefli
„Þeir sögðu að ég ætti að koma
mér út fyrir mánaðamótin," segir
Ágúst um skilaboð hrottanna. „Ég
sagði þeim að það hefði aidrei neitt
annað staðið til."
Mennimir vom mjög ógnandi,
meðal annars segistÁgúst hafa séð að
einn þeirra hélt á barefli og annar var
með hmf innan á sér. „Ég þorði ekki
að gera neitt þama, enda ætlaði ég
ekki í neitt rugl með bömin mín hjá
mér."
Ágúst hefur leigt íbúð af Ástþóri
um tveggja mánaða skeið, en í húsinu
em einnig samtökin Friður 2000.
Ágúst rifti hins vegar leigusamningn-
um um síðustu mánaðamót þar sem
Ástþór hafði ekki staðið við skuld-
bindingar sínar.
Ástþór stóð ekki við sitt
„Leigan var lækkuð niður úr 170
þúsund niður í 110 þúsund og í stað-
inn átti ég að sinna vinnu við húsið,"
segir Ágúst en í leigusamningnum er
langur listi yfir verkefni Ágústar. Með-
al annars að setja upp eldhús- og bað-
innréttingu sem ekki er til staðar í
íbúðinni. Ágúst rifti samningnum
vegna þess að Ástþór átti að kaupa
innréttingamar en gerði ekki. Það
gerðist um síðustu mánaðamót þegar
Ástþór kom heim frá Danmörku þar
sem hann býr nú.
hafa verið boðið inn læsti Agúst bæði
útidyrahurðinni og millihurðinni.
Augljóst var að hann var skelkaður
vegna heimsóknar hrottanna kvöldið
áður.
„Við erum flutt út," sagði Ágúst,
sem segir ógn steðja að öryggi fjöl-
skyldu sinnar. Hann tekur augljóslega
enga áhættu ákveði hrottar Ástþórs að
koma í heimsókn á nýjan leik.
Lögreglan gerir ekkert
I kjölfar heimsóknar hrottanna
leitaði Ágúst á náðir lögreglunnar og
hugðist leggja fram kæm á hendur
Ástþóri. Viðbrögð laganna varða vom
þó á annan veg en hann bjóst við.
„Lögreglan sagðist ekkert geta gert í
málinu vegna þess að það sá ekkert á
mér," segir Ágúst og er augljóslega
ekki sáttur. „Em þeir að bíða eftir að
ég drepist?" spurði hann í kjölfarið.
johann@dv.is
tsm
Biðu í anddyrinu
Hrottarnir átta biðu
Ágústar í andyrinu.
Augljóst var að þeir
höfðu fengið lykil
hjá Ástþóri.
Friðarleiðtoginn Ástþár
Magnússon sendihóp
vopnaðra hrotta til að
hræða leigjanda sinn.
Jólin eru að koma!
Svarthöfði er að komast í jóla-
skap. Svarthöfði áttaði sig reyndar á
því að enn er meira en mánuður til
stefnu en það breytir litlu. Alls stað-
ar þar sem Svarthöfði kemur er eitt-
hvað sem minnir á jólin. í útvarpinu
hlustar Svarthöfði á jólalög, í glugga
verslana em komnar jólaútstillingar
og á götum em komnar upp skreyt-
ingar. Svarthöfði keyrði dóttur sína í
skólann í gærmorgun og þá tók
hann eftir því að dugmiklir bæjar-
starfsmenn voru búnir að hengja
upp jólatré á hvern einasta ljósa-
staur í hinu failega bæjarfélagi sem
Svarthöfði býr í. Dóttirin komst strax
Svarthöföi
í jólaskap og Svarthöfði byrjaði að
söngla jólalög. Fljótiega áttaði Svart-
höfði sig þó á því það var aðeins 22.
nóvember. Það skipti þó litlu máli
því hinn góði andi jólanna gerir sig
vel gildandi á hvaða tíma sem er.
Jafnvel þótt meira en mánuður sé til
jóla gat Svarthöfði ekki annað en
brosað í kampinn.
Svarthöfði hefur lengi hlustað á
barlóm nokkurra leiðindaseggja
sem hafa vælt og skælt yfir því
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað alveg þrusufínt," segir Karl Olgeirsson, hljómborðsleikari og hljómsveit-
arstjóri.„Það er verið að á fullu að taka upp Það var lagið. Þetta er svakatörn sem
gengur mjög vel. Við tökum upp tvo þætti á dag í heilan mánuð. Fyrsti þátturinn í nýju
syrpunni verðursýndur um jólin. Þá verðum við með einhverjar kanónur."
hversu snemma jólin koma á ári
hverju. Þeir kvarta yfir því að jólin
birtist alltaf fyrr og fyrr með hverju
árinu sem líður en Svarthöfði skilur
ekki þeirra afstöðu. Fyrir honum em
jólin holdgervingur gleði og friðar,
sem em hlutir sem oft em ekki fyrir-
ferðarmiklir í hinu daglega lífi ís-
lendinga. Svarthöfða finnst að ís-
lendingar eigi að fagna komu jól-
anna, hvort sem það er byrjað að
hita upp fyrir þau í október eða nóv-
ember. Svarthöfði fagnar þeim sem
syngja Gleði- og friðarjól með Pálma
Gunnars í október og skammast sín
ekki fyrir það. Hinir ættu að læra að
slaka á og njóta dýrðarinnar.
Svarthöfði