Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 7
ónógan hita í húsum sínum vegna ákveð-
innar pólitískrar atburðarásar og rýrn-
unar þeirra náttúruauðæfa, — olíunnar,
— sem hingað til hafa ráðið miklu um
vöxt og viðgang efnahagslegra gæða í
hinum tæknivæddu löndum heims.
Á innlendum vettvangi verða gamal-
kunnug mál sjálfsagt efst á baugi á kom-
andi ári eins og endranær. Því er eðlilegí,
að spurt sé, hvert hin gífurlega dýrtíð og
verðbólga, sem nú ríkir, leiðir fyrir ís-
lenzkt launafólk.
Þegar þetta er skrifað, er enn óvíst,
hvort samkomulag um aðalkjarasamn-
ing ríkisstarfsmanna muni takast fyrir
áramót. Engu að síður munu ríkisstarfs-
menn njóta árangurs kjarabaráttunnar,
sem hófst snemma á því ári sem er að
líða, allt frá 1. janúar 1974.
Fyrir símamenn sem og aðra hópa rík-
isstarfsmanna verður árið 1974 tíma-
mótaár, enda reynir þá í fyrsta sinn á
styrk samtaka þeirra í samningum við
ríkisvaldið um þann hluta kjarasamn-
ings, sem einstök félög ríkisstarfsmanna
eiga að semja um samkvæmt nýjum
kjarasamningalögum.
Símablaðið óskar öllum lesendum sín-
um gleðilegra jóla, farsæls nýs árs og
þakkar þeim liðið ár.
SÖLUSAMBAND
ÍSLENZKPA
FISKFRAMLEIÐENDA
Skrifstofur
Sölusambandsins
eru í
Aðalstrceti 6,
Reykjavík.
var stofnað í júlímónuði 1932
með frjálsum samtökum
fiskframleiðenda hér á landi.
Annast sölu og útflutn-
ing á saltfiski félags-
manna.
9
Símnefni innanlands:
FISKSÖLUNEFNDIN
Símnefni utanlands:
UNION
®
Sími 11480 (7 línur)
SÍMAB LAÐ ID
37