Símablaðið - 01.12.1973, Síða 11
Karl og Eiríkur Þorvaldsson, símasmiður,
sem starfaði með Karli allan tímann, sem
hann var stöðvarstjóri á Akranesi.
Aðeins 25 ára gamall er Karl ráðinn til að
veita póstafgreiðslunni og símstöðinni á
Blönduósi forstöðu og hefur hann helgað
því sem næst allri starfsævi sinni póst- og
símamálum.
„Reyndar var ég við verzlunarstörf á
Blönduósi í fimm ár, unz ég var ráðinn til
að veita póstafgreiðslunni þar forstöðu frá
1. janúar 1930 og síðan landssímastöðinni
frá 1. apríl sama ár“, sagði Karl og bætti
við:
„Sennilega verður fyrsti vísirinn að sam-
einingu Pósts og Sima einmitt á Blönduósi,
er ég tók þar við stöðinni. En með lögum
frá 1928 var heimilað, að Póstur og Sími
sameinuðust á hinum ýmsu stöðum á land-
inu, eftir því sem henta þætti og eftir því
sem forstöðumenn þessara stofnana á hverj-
um stað létu af starfi eða féllu frá.
Skipunarbréf mitt var gefið út af þá-
verandi atvinnu- og samgönguráðherra,
Tryggva Þórhallssyni, en póstmálafulltrúi
á þessum tíma var Sigurður Briem, og lands-
símastjóri Gísli J. Ólafsson, Jónssonar, Ól-
afssonar, ritstjóra".
Hajðir þú hlotið einhverja menntun á
sviði póst- og símamála, áður en þú varðst
stöðvarstjóri?
„Nei, ég kom beint úr verzluninni í þetta
starf — og hafði aldrei nærri póstmálum
komið, hvað þá heldur símamálum. í upp-
hafi starfsins fékk ég þriggja mánaða leyfi
til náms og kynningar á hinum nýja starfs-
vettvangi. Og frá þeim tíma minnist ég
margra mætra manna, sem reyndust mér
góðir leiðbeinendur, bæði frá Póstinum og
Símanum.
Sú þekking, gem ég öðlaðist á þessu
þriggja mánaða tímabili, reyndist mér síð-
ar afar dýrmæt, en ég gerði mér far um all-
an þann tíma, sem ég starfaði við Póst og
Síma, að auka þekkingu mína á öllu því,
sem að starfinu laut. Reyndar er það
bjargföst skoðun mín, að maður verði
ávallt og stöðugt að auka og bæta þekkingu
sína, vilji maður ekki staðna í starfi og
hugsun. Sá, sem álítur sig hafa lært alla
skapaða hluti, er raunverulega staðnaður
og tröllum gefinn“.
Karl Helgason gegndi starfi stöðvarstjóra
á Blönduósi í 17 ár, eða til ársins 1947, en
þá fluttist hann til og var skipaður stöðvar-
stjóri á Akranesi og þar stjórnaði hann póst-
og símstöðinni í 26 ár, en lét af því starfi
í ágústlok á þessu ári. Karl hefur þannig
Svipmynd úr kveðjuhófinu.
S I MAB LAÐ IÐ
41