Símablaðið - 01.12.1973, Side 13
tómstundum
Meðalaldur manna fer hækkandi með
hverjum áratugnum sem líður, og þar erum
við íslendingar víst ofarlega á blaði.
Á hinn bóginn hefur vinnutíminn smátt
og smátt verið styttur, sem þýðir, að frí-
stundum fer að sama skapi fjölgandi.
Það er að sjálfsögðu afar breytilegt hvern-
ig menn eyða frístundum sínum, en það er
óneitanlega mikið lán fyrir suma menn, að
eiga sitt ,,hobby“, ekki síst þegar aldur fær-
ist yfir og styttast fer í eftirlaunaárin.
Einn af þessum lánsömu mönnum er Jón
Eiríksson, yfirmaður Radíóeftirlits Pósts og
Síma, en hans tómstundariðja er, að teikna
og smíða skip, aðallega kappsiglara. Hann
er Völundarsmiður og það er varla til sá
hlutur um borð í skipum hans, sem hann
smíðar ekki sjálfur.
Jón er fæddur og uppalinn við sjávarsíð-
una og var árum saman á sjó, aðallega sem
loftskeytamaður á togurum, áður en hann
gerðist starfsmaður Pósts og Síma.
Allt þetta hefur komið Jóni að góðu gagni
í hans tómstundariðju, enda hefur hann afar
næmt auga fyrir línum og lagi skipa.
Jón er sífellt að auka þekkingu sína á
þessu sviði og les hann mikið af erlendum
'bókum og blöðum um þetta efni.
Allir eldri bátar Jóns eru byggðir með
hliðsjón af erlendum fyrirmyndum, en sá
nýjasti og stærsti (sjá myndir) er byggður
eftir fyrirmynd af íslenzku opnu bátunum,
sem voru smíðaðir með hliðsjón af botnlagi
víkingaskipanna.
Höfuðkostirnir við þetta lag, er að bátur-
inn lyftist án þess að plana, það er, að hann
flýtur að vissu leyti á sjónum, en ekki
beinlínis d honum. Hann skilar sjónum auð-
veldlega þannig, að sjórinn hleðst ekki upp
við afturskipið, sem þýðir að báturinn breyt-
ir ekki um stefnu við mismunandi halla.
Það er ólíkt með Jóni og öðrum útgerðar-
mönnum, að Jón þarf ekki að manna skip
sín, hann stjórnar skipum sínum úr landi
með fjarstýrisendi sínum, en með honum
getur hann bæði stjórnað seglum og stýri
þó um töluverða fjarlægð sé að ræða. Jón
hefur notið samvinnu Þorkels Gunnarssonar
deildarstjóra í Radíótæknideild um srníði
fjarstýribúnaðarins, en Þorkell á sjálfur sitt
„ihob:by“, hann smíðar flugvélar, sem hann
fjarstýrir.
Það er gaman að sjá þegar Jón lætur fley
sitt sigla seglum þöndum og þá er ýmist
lensað, vent eða krusað og öllu er stjórnað
með hnappi í landi.
Mörgum áhorfandanum hefur fundist
þetta vera göldrum næst og sumir hafa
spurt Jón undrandi hvar línan værið sem
lægi út í bátinn.
Jón Eiríksson og Þorkell Gunnarsson með
nýjasta skip Jóns.
Þyngd bátsins með öllu, rafhlöðum og fjar-
stýringu, 18 kg. (þar af blýkjölur 12 kg.)
Þykkt byrðings 0,8 cm.
S I MAB LAÐ IO
43