Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1973, Side 14

Símablaðið - 01.12.1973, Side 14
Björn Emilsson: Milli Grænlan.ds köldu kletta „Det er et h0jt land, meget hakkeligt og ujævnt og med h0je, skarpe Fjelde“ skrif- aði danski sæfarinn Jens Munk í dagbók sína, árið 1619, er hann hafði landsýn við Hvarf. Loftskeyta- og veðurstöðin, Prins Christ- ian, stendur á Ohristian den fjerde 0, rétt við Hvarf, nok'kurn veginn á sömu breiddar- gráðu og Osló. Veðurfarið ræðst af pól- straumnum og einkennist af stormum og mikilli úrkomu. ísbeltið fyrir austurströnd- inni getur orðið allt að 50 sjómílna breitt. Á veturna þrýsta vindar, straumar og hinn mikli mismunur flóðs og fjöru, sem er fjórir metrar, rekísnum fram og til baka í sund- inu, með allt að 9 sjómílna hraða á klukku- stund. Til næstu byggðfcir, Nanortalik, er 12, klst sigling í góðu veðri. Á veturna hindrar ísinn siglingar langtímum saman. Á þessum kuldalega og einangraða stað Skyldi ég hafa vetursetu. Ég var ráðinn til starfa hjá Grþnlands Tekniske Organisation (GTO) í aprílmán- uði s.l. sem loftskeytamaður við Prins Christian Sund radio. Áður en til Græn- lands var haldið, fór ég til Kaupmannahafn- ar til þess að sækja námskeið, er starfið varðaði. Námskeið þessi voru haldin í hinni nýju flugstöðvarbyggingu á Kastrupflug- velli, sem tekin var í notkun í marsmánuði s.l. Fengum við gott tækifæri til að kynnast þeirri starfsemi, sem þarna fer fram. Var okkur m. a. boðið í flugferð yfir Kaup- mannahöfn og nágrenni. Við vorum alls 8 loftskeytamenn á þessum námskeiðum og áttum allir að fara til hinna ýmsu stöðva á Grænlandi, þar af 3 til Prins Christian. í lok námskeiðsins sátum við kynningar- fund með forstjóra GTO, Gunnar H. Rosen- dal, og yfirmiönnum hinna ýmsu deilda stofnunarinnar, þar sem okkur var kynnt starfsemi og hlutverk GTO. Eftir þriggja vikna ánægjulega dvöl í Kaupmannahöfn var haldið til Grænlands með SAS þotu til Sþndrestrþm. Ferðin tók rúma fjóra tíma og var flogið yfir ísland. Heldur var landið okkar kuldalegt að sjá, allt snævi þakið. Flugvöllurinn í Sþndrestrþm liggur milli kjarrivaxinna hlíða innst í firðinum. Er þarna um 600 manna byggð. Mest ber á SAS hótelinu, sem er allmikil bygging. Við íbúð- arblokkirnar mátti sjá börn að leik. í einni og sömu byggingu eru til húsa verslun stað- arins, skrifstofur, pósthús og svo loftskeyta- stöðin. Hinum megin vallarins er amerísk herstöð. Ekki er til ætlast að neinn sam- gangur sé þarna á milli. Ameríkanar ann- ast m. a. flugumferðarstjórnina fyrir Sþndrestrþm flugstjórnarsvæðið, en Danir annast radíoviðskiptin. Gistum við þarna um nóttina. Daginn eftir var ferðinni hald- ið áfram til Prins Christian sund. Næsti áfangastaður var Narssarssuaq, eða Bratta- hlíð eins og við kennum staðinn. Farkost- urinn var gömul DC6 flugvél frá Grþn- landsfly. Ferðin tók um 2 klst og var flog- M/s Edith Nielsen kemur með vistir til ársins. S I MAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.