Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 16
miklum tökum á sér. Margir láta hlutina
bíða til morguns. Þannig var til dæmis ír.eð
jólapóstinn hingað til Prinsen í fyrra, hann
komst ekki til skila fyrr en í febrúar. Sagt
er, að húsbóndanum þyki allt í lagi að lána
konuna sína, hún komi bara betri til baka.
En biðjir þú hann að lána þér hundana sína,
þá kemur annað hljóð í strokkinn, þvert nei.
Hundahald er þó bannað í bæjunum, því
þeir eru hættulegir börnum. Margir Danir
hafa gifst grænlenskum konum. Eru það
heldur léleg viðskipti, því segja má að við-
komandi giftist allri fjölskyldunni og verði
að sjá henni farborða í mörgum tilfellum.
En þetta verður þó ekki sagt um alla Græn-
lendinga, flestir eru hinir gegnustu menn,
sem lifa og streita í sveita síns andlits, eins
og við allir hinir.
Síðasti viðkomustaður, áður en haldið var
til Prins Christian, var loranstöðin í Angis-
soq. Þangað var einn farþegi, loranmaður
að koma heim af námskeiði í Bandaríkjun-
um. Loranstöðin stendur á eyju rétt fyrir
utan Nanortalik. Byggingar allar eru allfrá-
brugðnar loranstöðinni á Sandi. Því miður
fékk ég ekki tækifæri til að skoða stöðina,
því viðdvöl var nánast engin. Ferðinni var
flýtt eins og kostur var, til þess að ná út
til Prins Ghristian fyrir myrkur. Var ekki
laust við, að um mann færi hálfgerður
Frá Prinsinum.
Greinarliöfundur á vinnustað.
skrekkur er þyrlan var búin sérstökum
björgunartækjum.
Ég geri ráð fyrir að flestum sé farið eins
og mér, áður en ég kom til Grænlands að
halda, að landið sé allt einn stór ísjaki. Þetta
er hinn mesti misskilningur. Landið er
hrikalegt, há tindótt gróðurlaus fjöll, en við
ströndina er víða gróðursælt inn á milli
dala. Ég verð þó að játa, að þegar við flug-
um inn í Prins Christian sund, fannst mér
helst ég vera komin í tröllaheima. Hrikaleg,
nakin fjöll á báða vegu og víða skriðjöklar í
sjó fram. í sundinu eru nokkrar einangraðar
grænlendingabyggðir, heldur eyðilegar að
sjá.
Eftir langt og viðburðarríkt ferðalag, vor-
um við loks komnir á áfangastað. Um sjc-
leytið um kvöldið lenti þyrlan okkar á
Prins Christian Heliport. Mannskapurinn
stóð vopnaður myndavélum til að taka á
móti okkur. Var okkur vel fagnað. Næsta
dag var slegið upp veislu mikilli að dönsk-
um sið.
■ Stöðin var upphaflega byggð af Banda-
ríkjamönnum í síðustu heimsstyrjöld. Dan-
ir tóku við rekstri hennar 1945. Stöðvarhús-
ið, ásamt íbúðarskálum og samkomusal
standa uppá Klettinum, sem er 77 metra
yfir sjávarmál. Niður við höfnina, þar sem
geta lagst að bryggju minni skip, stendur
pakkhúsið og rafstöðin. Byggingar eru all-
46
B I MAB LAÐ IÐ