Símablaðið - 01.12.1973, Síða 17
ar nýlegar, enda hefur stöðin að mestu ver-
ið endurbyggð á síðustu árum. Ekkert und-
irlendi er á Klettinum. Göngubrýr liggja
milli húsa, sem öll eru stöguð niður með
sterkum stálvírum.
Hlutvebk stöðvarinnar er að annast radio-
viðskipti við skip og flugvélar svo og veður-
þjónusta. 2 loftskeytamenn eru á vakt allan
sólarhringinn. Stöðin er tengd sæsímanum
yfir Atlantshaf, gegnum aðalstöð sæsímans
í Frederiksdal. Þar eru einnig fjarstýrð
sendi- og móttökutæki fyrir VHF-tíðnina.
Beint símasamband (hot line) er við flug-
umferðarstjórnirnar í Gander, Reykjavík
og Prestvík. Fjarritasamband er við Gufu-
nesstöðina. Öll innanlandsviðskiptin fara
fram með morsi, þ. á m. sambandið við flug-
umferðarstjórnina í Sþndrestrþm og við
flugvöllinn í Brattahlíð. Aðalviðskiptin eru
við flugvélar í Atlantshafsflugi og eru SAS
og Loftleiðir helstu viðskiptavinirnir. En
mesta vinnan er þó við flug lítilla flugvéla
á leið yfir hafið, með viðkomu í Brattahlíð.
Er mér sérstaklega minnisstætt, er lítil eins
manns flugvél lenti á jöklinum í sumar, eft-
ir að hafa farið villur vegar frá Brattahlíð.
Flugmaðurinn brákaðist í baki og gat sig
hvergi hreyft. Vegna veðurs var ekki hægt
að koma manninum til hjálpar fyrr en næsta
dag, þrátt fyrir ítarlegar tilraunir. Hann
varð að dúsa í flugvélinni um nóttina, sem
fljótlega fennti í kaf. Alla nóttina sveimaði
amerísk björgunarflugvél yfir honum og
hélt stöðugu sambandi við hann til þess að
hann sofnaði ekki. Loks var honum bjargað
á þann hátt, að einn úr áhöfn amerísku
björgunarflugvélarinnar stökk í fallhlíf nið-
ur til hans til að leiðbeina þyrlunni niður
í gegnum skýjaþykknið. Flugvéiinni var
bjargað seinna, einnig með þyrlu.
Auk venjulegra viðskipta við skip og
báta, er hlutverk strandstöðvarinnar að
gefa upplýsingar um legu rekíssins, svo og
að safna staðarákvörðunum fyrir hina
grænlensku tilkynningaskyldu (GLK).
Veðurathugunum er einnig safnað saman
frá nærliggjandi stöðvum og þær síðan send-
ar áfram til Angmagssalik. ísathuganir, svo-
kallað Icerecco, koma frá Iscentralen í Nars-
sarssuaq. Daglega eru gerðar athuganir á
legu íssins við innsiglinguna i sundið. Loks
er hér kraftmikill radioviti, sem mörgum
farmanninum hefur vísað veginn hina
hættulegu siglingaleið fyrir Hvarf.
Hér eru alls 16 manns. Stöðvarstjóri er
John Ryberg, gamall í hettunni hér á Græn-
landi og öllum hnútum kunnugur. Hann var
lengst af stöðvarstjóri við loranstöðvarnar
OUW og OYL. Gamle Svend, „altmuligmað-
urinn“ okkar, ræktar blóm í gróðurhúsinu
sínu við rafstöðina, hefur verið meira og
minna á Grænlandi s.l. 25 ár. Við loftskeyta-
mennirnir erum 6. Fjórir okkar eru í véla-
og viðgerðarliðinu og loks eru 2 kokkar og
einn bakari. Eru þetta allt hinir bestu fé-
lagar, enda eru danskir rólegir og léttir í
lund og gera sér ekki óþarfa áhyggjur af
hlutunum.
Mörgum er sjálfsagt spurn, hvað menn
hafi fyrir stafni í frístundum sínum. Það
sem af er dvöl minni hér, hefur það ekki
verið neitt vandamál. Kemur þar einnig til
að vaktir eru á hverjum degi, en frí einn
dag í viku. Hér eru öll venjuleg tómstunda-
tæki, sem eru á svona stöðum, s. s. billiard,
borðtennis, ljósmyndatæki o. fl. Hver mað-
ur hefur skíði til afnota og hafa skíðaferð-
ir verið mikið stundaðar síðan snjórinn
kom. Byssur eru til afnota fyrir þá sem fara
í lengri ferðir frá stöðinni, ef ske kynni að
menn rækjust á ísbirni. Þeir eru þó orðnir
sjaldséðir hér um slóðir. Á laugardagskvöld-
um og hátíðisdögum er 01 og snaps með
matnum. Danskir leggja mikið upp úr borð-
haldinu og spara hvergi til.
Stöðin á 2 vélbáta, sem óspart voru not-
aðir til veiða og siglinga í sumar. Er það
ótrúlegt ævintýri að sigla milli ísjakanna á
lygnu kyrru sumarkvöldi. Minnisstæðast er
mér 3ja daga veiðiferð, er við fórum þrír
saman í sumar, upp í Lindenowsfjörðinn.
Þangað er um 8 klst sigling. Lágum við í
tjöldum við svokallað Rolfs Boplads. Eru
þar á nesi einu, lyngivöxnu, allheillegar
fornleifar frá dögum Eiríks rauða. Bláberja-
dalurinn liggur upp af byggðinni og eftir
honum rennur lítil á. Heldur hefur vist
manna verið kuldaleg þarna. Allstórt stöðu-
vatn er upp í fjöllunum, lítið eitt innar. Úr
því rennur kraftmikill foss. Renndum við
47
S I MAB LAÐ IÐ