Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 19

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 19
íslandi — væntanlega báðum aðilum til góðs. Fyrir nokkrum árum óskaði Póstmannafélag íslands eftir að fá aðild að Starfsmannaráð- inu. Pá dagaði hugmyndin uppi vegna þess að forráðamenn töldu eðlilegt, að starfs- mannafélögin sameinuðust fyrst í eitt starfs- mannafélag Pósts og Síma. Peirri leið vildu póstmenn þá ekki una, en hún hefur verið op- in af hálfu F.Í.S. til skamms tíma, þar eð á- greiningsefni hafa verið lítil og auðleysanleg með jákvæðu átaki beggja aðila. Nú hefur það gerzt, að forysta P.F.Í. hefur skellt svo hurðum, að gæta þarf að dyraum- búnaði, síðast með furðulegu bréfi til for- stjóra rekstursdeildar Pósts og Síma. Afrit var sent samgönguráðuneytinu og F.Í.S. Bréfið verður vafalaust birt í heild annars staðar í þessu blaði. Undanfarna mánuði hefur P.F.Í. gert harða hríð að Starfsmannaráði Landssímans. Pað verður ekki af þeim skafið forystumönnum póstmannafélagsins, að þeir eru bæði djarf- tækir og stórtækir í kröfum sínum. Peir krefj- ast tveggja fulltrúa í Starfsmannaráð til jafns við F.I.S. og vilja einnig ráða því, hverjir bætt- ust við í ráðið af hálfu stofnunarinnar. P.F.Í. hefur leitað eftir því, að ráðherra knýji þennan vilja þeirra fram í krafti þess valds, sem hann hefur yfir að ráða. F.Í.S. hef- ur stimpazt við, enda telur félagið ósann- gjarnt, að P.F.Í. fái tvo fulltrúa í Starfsmanna- ráði, sem þá yrði væntanlega Starfsmannaráð Pósts og Síma, fyrir sína 250 félaga, nema F.Í.S. fái þá að minnsta kosti þrjá fulltrúa fyr- ir sína 1000 félaga. Á það getur F.Í.S. fallizt og einnig að Póst- og símamálastjórnin bæti tveimur mönnum í ráðið af hálfu stofnunar- innar, verði starfsgrundvöllur ráðsins að öðru leyti óbreyttur frá því sem nú er. Lang eðlilegast væri, að starfsmenn einnar og sömu stofnunarinnar væru allir í einu starfsmannafélagi, lytu einni stjórn og einu félagslegu skipulagi. Tvö starfsmannafélög póst- og símafólks eru af gömlum toga spunn- in, — leifar gamals skipulags, sem hentar ekki nútímanum, og var aflægt fyrir mörgum ára- tugum, — við sameiningu pósts og síma ár- ið 1935. Póstþjónustan er að vísu mun eldri en símaþjónustan, en símaþjónustan hefur þró- azt miklu hraðar og þensla og þjónustusvið hennar margfaldazt á við póstþjónustuna. Þessi þróun hefur ekki orðið vegna áhrifa eða afstöðu einstakra manna, stjórnenda eða starfsmanna, heldur vegna vilja þjóðarinnar, sem býr við þær aðstæður, að henni hentar betur símaþjónusta en póstþjónusta eins og reyndin hefur einnig orðið í öðrum dreifbýlum löndum. Engu að síður er og verður póstþjón- ustan áfram mikilvæg og nauðsynleg og eðli- legt er, að þessar tvær þjónustugreinar, póst- þjónusta og símaþjónusta, fylgist að og hald- ist í hendur. Sama hefðu starfshóparnir átt að gera, hald- ast í hendur og aðlagast breyttum aðstæðum og viðhorfum og auka þannig félagslegan styrk sinn og þroska. F.Í.S. hefur mjög sterkt félagslegt skipulag, þar sem hver einstaklingur nýtur eins mikils félagslegs öryggis og lýðræðislegrar að- stöðu, sem frekast er kostur í jafnfjölmennu og dreifðu félagi. , Þetta hefur P.F.f. séð, skilið og virt m. a.. með því margoft að leita nánari upplýsinga um sitthvað í félagslegu skipulagi F.Í.S. Allir, sem vilja líta á þetta mál fordóma- laust, hljóta að álykta þrennt: 1. Kröfur póstmanna um aðild að Starfs- mannaráði eru um of ágengar og missa því marks. 2. Fyrr eða síðar hljóta umræddir tveir starfshópar stofnunarinnar að sameinast und- ir heitinu Starfsmannafélag Pósts og Síma. Skipulagslega séð er það afar einfalt, hvort heldur deildir póstmanna yrðu ein, tvær eða þrjár. 3. Ástæður fyrir því, að sameining hef- ur ekki enn orðið geta vart verið margar. Mér dettur í hug, að nokkru kunni að ráða í þessu efni, að minna félagið óttist að það muni hverfa og týnast í stærra félaginu og verða þar valdalaust. Deildaskipulag F.Í.S., sem væntanlega héldist, þar eð ekki er vitað, að P.F.Í. hafi hentugra félagsform, veitir öllum starfshóp- um aðild að stjórnun félagsins. Auk þess mætti ákveða nánar um skiptingu stjórnar- starfa milli póstmanna og símamanna. Pá Framh á bls. 62 S I M'AB LAÐ IÐ 49

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.