Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1973, Page 31

Símablaðið - 01.12.1973, Page 31
gjöld verið tekin til F.I.S. af starfsmönnum á Póstgíróstofunni. Ef komið hefur í Ijós, að einhverjir þeirra hafa talið sig vera í félagi póstmanna, hefur leiðrétting á slíku verið auð- fengin, þannig að gjöldin hafa verið endur- greidd og frekari innheimtu hætt. Að lokum skal tekið fram, að F.I.S. hefur enga hlutdeild átt í framkvæmd á ofangreindri innheimtu, sem átt hefur sér stað um margra ára skeið samkvæmt hefð, af því að engar upplýsingar voru fyrirliggjandi um félaga í hvoru félaginu fyrir sig og gildir þetta einn- ig um starfsmenn, sem kunna að vera í öðr- um stéttarfélögum eins og t. d. Félagi Há skólamanna. — Bragi Kristjánsson, sign." IEinar Jónsson Framhald af bls. 53 vann hann á skiptiborðsverkstæði bæjar- símans, unz hann varð að láta af störfum fyrir aldurs sakir hinn 1. janúar 1961. Kona Einars er Jóna Sigríður, dóttir Ingvars bónda Guðbrandssonar í Grímsnesi og konu hans Katrínar Kristjánsdóttur, systur Ellerts skipstjóra Schram. Þau Ein- ar og Jóna giftust 24. okt. 1924. Lárus H. Blöndal. Einar Pálsson Framhald af bls. 57 landi að setja upp „rotary beam“ loftnet, er vakti mikla eftirtekt bæjarbúa á þeim tíma. Um og eftir 1960 færist nýtt líf í radíóamatörastarfsemi Einars. SSB var komið og tæknin var mik- ið breytt. Kom hann sér á skömm- um tíma af fádæma dugnaði upp einni bezt búnu amatörstöð lands- ins enn á ný. Á árunum 1967-68 snýr hann sér fyrir alvöru að til- raunum mcð „meteor scatter“-sam- bönd og hafði nær óslitið síðan a. m. k. vikulegar tilraunir við brezk- ar stöðvar (G3CCH, G3JVL). 0- teljandi eru þau atriði, sem Einar var fyrstur manna hér til að gera, hafði sambönd um gervitungl, sctti upp VHF-vita m. a. Var hann bú- inn að safna óhernju upplýsingum um útbreiðslu radíóbylgna, cr hann hugðist gefa út á prenti. Hinn 17. febrúar 1940 kvæntist Einar eftirlifandi konu sinni, Guð- laugu Á Valdimarsdóttur, Sigurðs- sonar útgerðarmanns frá Eskifirði og konu bans Hildar Jónsdóttur ljósmóður sama stað. Einar var skrifstofustjóri hjá Raunvísindastofnun Háskóla Is- lands, þegar hann lézt. B I MAB LAO IÐ 61

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.