Símablaðið - 01.12.1973, Qupperneq 32
Starfsmannaráð
Framhald af bls. 49.
ættu póstmenn ekki að eiga á hættu að týn-
ast eða hverfa, þar sem póstur yrði nefndur á
undan í nafngift félagsins.
En hvað um fjármálin í þessu efni? Kannski
eru þau þyngst á metunum, — þau hafa mér
vitanlega aldrei verið rædd í þessu sambandi.
En varla eru hugsanleg vandamál varðandi
fjármálahlið málsins boðleg ástæða fyrir að-
skilnaði félaganna. í fyrsta lagi vegna þess
að vart munu þær fjármunaheildir vera til,
sem ekki hefur mátt sameina, ef full ástæða
eða nauðsyn hefur komið til.
Sennilegt þætti mér, að íslenzku þjóðinni
fyndist það saga til næsta bæjar, ef P.F.Í. og
F.I.S. hefðu ekki komizt yfir einhvern fjár-
munaþröskuld á leið sinni til sameiginlegra
félagslegra átaka, stórum starfshópum til
heilla og hamingju í lífsstarfi.
J. T.
Telexþjónustan og dreifbýlið
Framhald af bls. 56.
festingu, sem þessi löngu telexsambönd út-
heimta, verður leiga í einhverju formi að
koma á móti. Þrjár leiðir eru mögulegar
að mínu áliti.
1. Sú sem nú er notuð að leigja viðbótar-
línur telexnotandanum, en á móti kemur að
þeir geta sent telexskeyti til Reykjavíkur
fyrir sama gjald og greitt er innanbæjar í
Reykjavík, þ. e. a. s. kr. 7.75 pr. mínútu.
2. Taka enga eða minni fasta leigu fyrir
viðbótarlínuna en hækka verulega mínútu-
gjaldið og hafa það mismunandi hátt miðað
við lengd línunnar.
3. Setja upp litlar telexstöðvar á stærstu
stöðunum úi á landi eins og t. d. á Akur-
eyri. Þessi möguleiki er ekki fær vegna
kostnaðar fyrr en 20—30 notendur eru fyrir
hendi á staðnum. Með þessari lausn fengist
betri nýting á þeim ritsímalínum, sem not-
aðar væru til Reykjavíkur. Þessi lausn get-
ur ekki orðið nein almenn lausn, þvi að hún
leysir aðeins stærstu þéttbýliskjarnana og
yrði því að taka upp þær lausnir, sem nefnd-
ar eru í punktum 1 og 2 fyrir telexnotend-
ur utan þeirra.
Telexþjónusta á íslandi hófst árið 1962
með handvirkri telexstöð og 9. 5. 1970 var
hún gerð sjálfvirk bæði innanlands og til
flestra Evrópulanda. Öll telexSkeyti til út-
landa s'kráir stöðin sjálfvirkt á IBM gata-
spjöld, sem notandinn fær síðan sem sér-
reikning fyrir hvert skeyti. Mynd 1 sýnir
fjölda telexnotenda frá 1962 til 1973 og má
þar greina stækkanirnar á handvirku telex-
stöðinni árin 1966, 1968 og 1969. Stærð
sjálfvirku telexstöðvarinnar í dag er 240 nr.
Þorvarður Jónsson.
Á síðunni hér til hliðar kemur svo
jólakrossgátan okkar. Þess skal get-
ið, að rétt lausn gátunnar myndar
vísuhelming, þegar stöjunum í núm-
eruðu reitunum 1—72 er raðað upp.
Eins og oft áður heitir Símablaðið
bókaverðlaunum fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Berist margar réttar
lausnir, verður dregið úr um vinning-
inn.
Skilafrestur er til 15. janúar n. k.
og skulu lausnirnar sendar Símablað-
inu, box 575 Reykjavík.
S I MAB LAÐIÐ