Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2006, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2006, Blaðsíða 40
r* f C) £ i íJjjí í) t Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar |jwfnleyndar er gætt. (j 01) () SKAFTAHLÍÐ 24, W5REYKJAVÍK [STOFNAÐ1910] SÍMISS05000 5 69071 • Kiistján Ra. Krist- jánsson og Bjami Haukur Þórisson und- irbúa sýningar á söng- leiknum Footloose, sem þeir hyggjast setja upp í Borgarleikhús- inu í sumar. Kristján afþlánar nú síðasta sprett fang- elsisdóms síns á Vemd. Hann hiaut 18 mánaða fangelsisdóm í því sem kallað hefur verið Land- símamálið. En þó Kristján og Bjami hafl takmarkaðan tíma vegna útivistarbanns, sem gildir á Vemd, gáfu þeir sér tíma til að bregða sér á Glaumbar í gær- kvöldi til að fá sér hamborgara. Þar var enda verið að sýna enska stórleikinn milli Manchester United og Arsenal, sem þeir félagar fýlgdust með innan um aðra áhugamenn umfótbolta... Er þá komin fjara? íslenskip bókaútgefendur pústa eltir jólaösina Það er víst hægt að græða ú húkaútgúfu „Hjá okkur er salan 45 pró- sentum meiri en þegar best hefur verið," segir Snæbjörn Arngrímsson hjá bókaforlaginu Bjarti. „Við erum að pústa eftir jólin auk þess að ganga frá ýmsum málum tengdum útgáf- unni okkar hér úti,“ segir Snæbjörn, sem er staddur í Danmörku að huga að Ferdinand-útgáfunni sinni. Harry Potter var söluhæstur hjá Bjarti en einnig seldust margar aðrar bækur vel fyrir síðustu jól. „Áður seldust kannski fimm titlar vel en nú eru þeir miklu fleiri," segir Snæbjörn um þróunina á íslenskum bóka- markaði. Egill Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri JPV útgáfu, hefur sofið lítið síðustu daga og var þreytulegur þegar DV náði tali af honum í gær. „Það fer nú tvennum sögum af því hvernig salan gekk á árinu. Bókaútgefendur eru að ham- ast við að telja upp úr kössunum og vona þegar upp er staðið að salan hafi gengið vel," segir Egill. Hann segir að bækur JPV hafi selst vel. „Ég er mjög kátur. Kom út í ágætis plús, þó með færri útgefna titla en fyrir ári," segir Egill. Bækur Hugleiks Dagssonar voru óvæntasta útspil JPV. Tvær prent- anir seldust upp af hvorri bók. Egill vill þó spyrja að leikslokum og bíður eftir því að landsmenn skili inn þeim bókum sem þeir hyggjast skipta. Edda útgáfa var með fjöldann allan af söluháum titlum. „Við vor- um með söluhæstu bókina, Vetrarborgina eftir Arn ald fndriðason. Svo voru fjölmargar aðrar bækur sem seldust vel hjá okkur," segir Kristján B. Jónasson þróunarstjóri Eddu. . Hann stóð í ströngu ý við að mata ungan son sinn þegar DV náði tali af honum í gær. „Þetta voru um tíu bækur sem seldust mjög vel hjá okkur fyrir jólin," segir Kristján og tínir til bókina um Thorsarana og Rokland eftir Hallgrím Helgason. Kristján hlær þegar blaðamaður spyr hvort búið sé að afsanna tíð ummæli bókaútgefanda að enginn verði ríkur af bókútgáfu á íslandi. „Þetta hefur aldrei þótt vera rík- mannlegur bransi en við erum stórt fyrirtæki með 50 starfsmenn og þar sem bókaútgáfa s er okkar aðal tekjulind þá ( lúýtur þetta að vera hægt." Snæbjörn Arngríms- sonhjáBjarti Hvllirsigl viðskiptaferð í Danmörku. Kristján B. Jónasson hjá Eddu Bætir upp glataðan tíma meö fjölskyldunni. tWíf'hjpWy Starfsfólk Aðalflutninga sendir viðskiptavinum stnum nýárskveðjur með ósk umfarsæld á komandi ári Vatnagörðum 6 • S. 581 3030 • Fax: 471 2564 • adaleg@simnet.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.